Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.2. 2018
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna.
Góð og öflug vörn fyrir
meltingarveginn
Bio-Kult Candéa inniheldur góðgerla,
hvítlauk og greipkjarnaþykkni.
Öflug blanda sem eflir mótstöðuafl líkamans
l Styrkir meltinguna
l Vinnur á Candida sveppnum
l Kemur jafnvægi á
meltingaflóruna
l Bestu gæði góðgerla
Öll sykurlöngun hefur minnkað
Í mörg ár fann ég fyrir óþægindum í maga. Ég upplifði það yfirleitt þegar líða
tók á daginn, varð útblásin og leið ekki vel. Ég taldi það líklegt að um óþol væri
að ræða. Fyrir rúmum þremur árum var mér bent á Bio Kult Candéa hylkin og
hef tekið staðfastlega tvö hylki á dag með stærstu máltíðum dagsins.
Öll sykurlöngun hefur minnkað, en áður fyrr drakk ég mikið sykraða gosdrykki.
Ég hef náð að halda mér í kjörþyngd og þakka ég það daglegri inntöku Bio-Kult,
sem fær að ferðast meðmér hvert sem ég fer.
Kolbrún
VETTVANGUR
Bí, bí og blaka,
álftirnar kvaka,
ég læt sem ég sofi,
en samt mun ég vaka.
Bíum bíum bamba,
börnin litlu ramba
fram um fjalla kamba
að leita sér lamba.
Hver þekkir ekki hljómfögru
barnagælurnar sem skáldin hafa
eftirlátið okkur til að syngja börnin
okkar í svefn, dreifa huga þeirra, þar
til Óli lokbrá tekur völdin, bí bí og
blaka, álftirnar kvaka ...
Það var Sveinbjörn Egilsson sem
kvað þessar litlu stökur og ekki er
síður angurvært rökkurljóð Jóhanns
Sigurjónssonar:
Sofðu, unga ástin mín,
– úti regnið grætur.
Mamma geymir gullin þín,
gamla leggi og völuskrín.
Við skulum ekki vaka um dimmar
nætur.
Þetta kom upp í hugann þegar
starfshópur ríkisstjórnarinnar um
kjararáð skilaði af sér áliti um að
ráðið yrði lagt af. Og forseti ASÍ
var að sjálfsögðu kallaður í beina
útsendingu í fréttatíma Sjónvarps
til að inna hann
eftir því hvort
tillögurnar
myndu duga til
að róa stjórn
Viðskiptaráðs
sem ekki hefur
orðið svefnsamt
eftir að ljóst varð
að ákvarðanir
kjararáðs lýstu
upp íslenskt
kjaraumhverfi,
þar á meðal
þeirra eigin kjör,
á þann hátt að stórkostleg hætta
stafaði af.
Hættan sem af þessu stafaði var
sú, eins og margoft hefur komið
fram, að láglaunafólkið vaknaði af
værum blundi og færi að gera kröf-
ur um að fá réttlátari hlut sem tæki
mið af þeim kjörum sem kjararáð
hafði opinberað með úrskurði
sínum. „Það er margt sem myrkrið
veit,“ orti Jóhann Sigurjónsson, og
þannig vilja þeir Gylfi hjá ASÍ og
Halldór Benjamín hjá SA helst hafa
það, í anda þess sem Gestur, Guð-
mundur Björnsson, réttu nafni,
kvað:
Þei, þei og ró, ró.
Brátt mun birtan dofna,
barnið á að sofna.
Þei, þei og ró, ró.
Barnið á að blunda í ró.
Þei, þei og ró, ró.
Blessað litla lífið,
laust við jarðarkífið.
Þei, þei og ró, ró.
Blunda elsku barnið í ró.
Talsmenn „aðila vinnumarkaðar“
segja að tillögusmiðir ríkisstjórnar-
innar hafi nú vissulega lagt til fram-
faraskref þótt þeir hefðu kosið að
það yrði stærra.
Sjálfur hjó ég eftir einu, nefnilega
að kjör þingmanna og ráðherra yrðu
samkvæmt tillögunum ákveðin með
lögum.
Þetta hef ég sjálfur áður lagt til
og flutt um það
þingmál. Þá
þyrftu fulltrúar
á Alþingi að
standa skil
gerða sinna. Mín
tillaga var þá sú
að þingmenn
ákvæðu eigin
laun helst í sömu
vikunni og þeir
ákvörðuðu kjör
öryrkja. Þar
með færi um-
ræðan inn í þann
farveg sem ég hefði helst viljað sjá
opnast: Að rætt yrði um launa- og
kjarahlutföll, réttlæti og ranglæti
en ekki hitt hvernig megi koma í
veg fyrir að þau sem eru hlunnfarin
í þjóðfélaginu komi auga á ranglæt-
ið og rísi upp til baráttu, þei, þei og
ró, ró.
En barátta kallar á árvekni, að
vaka verður um dimmar nætur. Bót í
máli er vissan um að þá muni líka
fyrr en varir lýsa af nýjum degi. Það
er góð tilhugsun.
Er slæmt að vaka um
dimmar nætur?
’Hættan sem af þessustafaði var sú, eins ogmargoft hefur komið fram,að láglaunafólkið vaknaði
af værum blundi og færi
að gera kröfur um að fá
réttlátari hlut sem tæki
mið af þeim kjörum sem
kjararáð hafði opinberað
með úrskurði sínum.
Úr ólíkum
áttum
Ögmundur Jónasson
ogmundur@ogmundur.is
Morgunblaðið/Ásdís
Hálfgert æði gekk yfir á Facebook í
vikunni þar sem fólk notaði app til
að sjá hvernig það myndi líta út væri
það af gagnstæðu kyni, ýmist karlar
eða konur út
frá prófílmynd
sinni. Rithöf-
undurinn
Birna Anna
Björnsdóttir
velti ákveðnu
atriði fyrir sér
á Twitter: „Faceappið sem allir eru
að gera á fbook: konur verða gamlir
frekar ljótir karlar en karlar verða
ungar sætar gellur. What does it
mean?“
Sjónvarpsstjarnan Berglind
Pétursdóttir, gjarnan kennd við
Festival, var á tónleikum með Kend-
rick Lamar í London í vikunni og
tísti:
„Leið smá eins og ég væri að
gleyma einhverju. Fattaði svo að ég
var að gleyma öllum farangrinum
mínum og
veskinu úti á
miðju gólfi á
Gatwick.“
Karen
Kjartans-
dóttir al-
mannatengill
skrifaði á Face-
book: „Er að
mastera tví-
skinnung með
því að ganga
um Múlahverf-
ið í leit að veg-
an-skyndibita,
íklædd sel-
skinnspels.“
Valur
Grettisson,
ritstjóri
Reykjavík
Grapevine,
svaraði að
bragði: Ertu kannski að skrifa status-
inn með iPhone klædd í H&M-flík
undir pelsinum? Þrælafótsporið
verður eiginlega ekki mikið lengra,“
en Karen sagði þetta erfitt: „Text-
íliðnaður er að stórum hluta svo
hræðilegur að eiginlega þykir mér
inúítakápan mín helst uppfylla kröf-
ur um sið-
ferði.“
Kamilla
Einarsdóttir
bókavörður
varpaði spurn-
ingu fram í
kosmósið á Twitter í vikunni: „Send-
ið þið stundum fólki skilaboð bara af
því ykkur langar í smá athygli og svo
um leið og þið hafið ýtt á send sjáið
þið svo eftir því að ykkur langar til
að brenna símkortið ykkar?“ Kam-
illa bætti svo við að það þyrfti að
finna upp app til að stoppa fólk eins
og hana.
Þórdís Gísladóttir, rithöfundur
og skáld, tísti um ljóðaþýðingar:
„Persónuleg amatörrannsókn mín á
ljóðaþýðingum á íslensku (sem eng-
inn hefur áhuga á) sýnir að margir
þýðendur hafa tilhneigingu til að
skrúfa texta upp og nota tilgerðar-
leg íslensk „ljóðaorð“ þegar það er
algjör óþarfi.“ Við þetta bætti hún:
„Íslenskt bókmenntamál hefur til-
hneigingu til að verða dálítið upp-
skrúfað og sérstaklega ljóð. Það er
hefð fyrir því. En þetta er bara al-
gjörlega óvísindaleg kenning mín
byggð á tilfinningu.“
AF NETINU