Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Síða 12

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Síða 12
Ólýsanleg dýpt „Nær öll tónlist Jóhanns byggist á þemum um missi og brotthvarf sem jafnvel þegar verkin eru einföld og ljúf gefur þeim ólýsanlega dýpt sem lætur hlustandanum finnast að þau geti gleypt hann ef hann hlustar of djúpt á þau.“ Blaðamaðurinn Joe Muggs um Jóhann Jóhannsson tónskáld í The Guardian. Jóhann lést um liðna helgi, 48 ára. Konunglegur villingur Hinrik Danaprins lést líka í vik- unni, 83 ára að aldri, eftir erfið veikindi. Segja má að prinsinn hafi verið konunglegur villingur, eins og það var orðað í samantekt danska ríkisútvarpsins um ævi hans. Og þegar hann var kominn fram á efri ár hélt hann áfram að storka hefðum og siðum. Fullkominn í hlutverkið „Þegar við unnum að handritinu vissi ég strax að Hörður yrði fullkominn í hlutverkið. Hann er fallegur og róleg- ur en það er líka mikill leikur í honum. Hann stóð sig mjög vel og það var alltaf eins og hann vissi hvað hann ætti að gera.“ Stefanie Plattner, einn handrits- höfunda og framleiðenda þýsku kvikmyndarinnar Hörður – Zwischen den Welten, en ís- lenski hesturinn Hörður fer með eitt aðalhlutverka. Hver saknar ekki Karenar? „Hver saknar ekki Karenar? Spurðu bara Bjarna Ara!“ Stefán Arnarson, þjálfari kvennaliðs Fram í handbolta, spurður hvort það skipti ekki máli fyrir liðið að Karen Knútsdóttir sé farin að leika á ný eftir meiðsli. Umsóknin ofan í skúffu „Að komast að því að umsóknin hafi bara legið ofan í skúffu undanfarna tíu daga var sannkallað reiðarslag.“ Sunna Elvira Þorkels- dóttir, sem legið hefur lömuð á háskólasjúkra- húsi í Malaga undanfarinn mánuð og bíður þess að vera flutt á betri spítala. VIKAN SEM LEIÐ VETTVANGUR 12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.2. 2018 Ég var alveg rólegur þegar ég heyrði talað um 101-rottur í sjónvarpinu. Mér fannst það bara nota-legt. Ég man nefnilega þá tíð þegar það var al- vörurígur á milli höfuðborgarsvæðisins og lands- byggðarinnar. Maður er alveg hættur að heyra um sér- fræðingana að sunnan, afæturnar í Reykjavík og svo varð bara landsbyggðin allt í einu töff, á einhvern krútt- legan hátt. Ég held að það hafi gerst þegar Prins Póló flutti í Berufjörðinn. Það er helst að Gísli Marteinn nái að æsa varginn að- eins upp þegar hann hjólar í kringum flugvöllinn. Þá stundum heyrum við eitthvað um kaffihúsasamfélags- miðlalattélepjandi liðið í borginni. En svo gerist það. Það byrjar að snjóa. Þá skal ekki bregðast að einhver á landsbyggðinni þarf nauðsynlega að koma því að, að við hér á suðvesturhorninu kunnum ekki að keyra. Engu skiptir þótt allt sé svo lokað að enginn komist yfir nema fuglinn fljúgandi og Ásmundur Friðriksson. Þetta lið fyrir sunnan kann bara ekki að keyra í snjó. Já, og vel á minnst. Þetta er víst ekki snjór hjá okkur. Það er alveg sama hvað það kyngir miklu niður. Hér verður þetta aldrei meira en föl. Það er sko bara á landsbyggðinni sem snjóar almennilega. Og þar virðast ekki finnast nein dæmi um að nokkur hafi lent í óhappi eða svo mikið sem fest sig í innkeyrslu. Nú gæti ég sagt ýmislegt um þorp þar sem hægt er að míga milli bæjarhluta og sitthvað fleira. En ég geri það ekki. Ég er tengdasonur landsbyggðarinnar og vil frekar útskýra þetta blíðlega fyrir vinum mínum í hin- um dreifðu byggðum. Fyrir það fyrsta erum við heldur fleiri hér. Og þið haf- ið kannski heyrt af því að umferðin getur verið soldið óstuð, jafnvel á fögrum sumardegi. Þannig að auðvitað má búast við smáveseni þegar við þurfum að eiga við fimmtán sentimetra jafnfallinn snjó sem verður reyndar að viðurkenna að kemur okkur á óvart. Sem er kannski hluti af vandamálinu. Við erum mögulega ekki alltaf tilbúin, enda svo margt annað að gera hér í stórborginni en hanga yfir veðurfréttum. Svo hefur það nú varla farið framhjá neinum að hér er mikið af ferðamönnum. Og þeir eru ekki alveg vanir þessari veðráttu. Sem væri svo sem alveg í lagi ef þeim fyndist þetta ekki svona svakalega spennandi. Þeir vilja endilega fara út að keyra og reyna sig við íslenska snjó- inn, eins og snævi þaktar göturnar séu borð í spennandi tölvuleik. Hjá þeim er óveður bara eitt stórt ævintýri. Þeim til varnar er rétt að taka fram að þeir eru alltaf af- skaplega kurteisir og glaðir þegar maður ýtir þeim uppúr sköflunum. Svo höfum við þann skemmtilega sið hér að vera ekk- ert að moka of mikið og þegar við gerum það þá reynum við helst að gera það fyrir innkeyrslur. Það er óneitan- lega hressandi að mæta hvítum vegg, vel á annan metra, þegar maður ætlar að bakka út heiman frá sér. Svo má ekki gleyma því að samkvæmt rannsóknum telja 90 prósent ökumanna sig yfir meðallagi. Það þarf ekki mörg ár í stærðfræði til að sjá að það er frekar ólík- legt. En þessir sérfræðingar reikna út að þeir séu svo góðir að þeir geti alveg náð þessu á dekkjum sem eru sléttari en skallinn á Steingrími Joð. En helst vil ég nefna frétt sem ég sá um daginn. Þar var talað við einhvern björgunarsveitarmann sem sagði að vandamálið væri hreint ekki fólkið á smábílunum, ekki einu sinni útlendingarnir. Nei, það væri helst menn á mjög stórum jeppum. Og það tengist náttúrlega ekki því hvar við búum heldur miklu frekar tiltekinni útlimastærð. (Ég vil bara taka það fram í þessu sambandi að sjálfur ek ég á penum slyddujeppa.) Ég kann víst að keyra Logi Bergmann logi@mbl.is Á meðan ég man ’Nú gæti ég sagt ýmislegt um þorp þar sem hægt er að míga milli bæjarhluta ogsitthvað fleira. En ég geri það ekki. Ég er tengdasonur landsbyggðarinnar og vilfrekar útskýra þetta blíðlega fyrir vinum mínum í hinum dreifðu byggðum. UMMÆLI VIKUNNAR ’Við höfum ekki séð neitt sak-næmt í þessu máli, ekki neitt. Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri en enginn starfsmaður verður látinn sæta ábyrgð í kjölfarið á því að það dróst að hefja rannsókn á meintum kynferðisbrotum karlmanns sem starfaði hjá Barnavernd Reykjavíkur. Skotárás í skóla Að minnsta kosti sautján létust og fjölmargir særðust eft- ir skotárás í framhaldsskóla í Flórídaríki í Bandaríkjunum á miðvikudag. Ódæðismaðurinn, sem er nítján ára gamall fyrrverandi nemandi við skólann, er í haldi lögreglu. Atvinna

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.