Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Side 26
Hinn þekkti hönnuður Carolina Herrera sýndi sína síðustufatalínu eftir meira en þrjátíu ár í starfi fyrir samnefnttískuhús á tískuvikunni í New York í upphafi vikunnar. Á
tískuvikunni sýna hönnuðir fatalínur sínar fyrir haustið 2018. Hún
lætur af störfum sem aðalhönnuður og listrænn stjórnandi tísku-
húss síns með þessari sýningu. Framvegis mun hún gegna hlut-
verki sendiherra tískuhússins um allan heim en við hönnunar-
hlutverkinu tekur Wes Gordon. Gordon ólst upp í Atlanta og
starfaði meðal annars fyrir Oscar de la Renta og Tom Ford áður
en hann fór að hanna undir eigin nafni. Föt hans hafa einkennst af
rómantík og kvenleika og þykir hann því eiga vel við Carolinu Her-
rera.
Sýningin fór fram í MoMA, nútímalistasafni New York, og þótti
umhverfið hæfa fötunum en undir hljómaði tónlist Cole Porter.
Tískuhúsið er þekktast fyrir glæsilegan kvöldklæðnað sinn og var
enginn skortur á honum í þessari síðustu línu hennar. Þarna voru
léttleikandi kjólar úr tjulli og voru sterkir litir áberandi.
Herrera er þekkt fyrir þokkafulla kjóla en hún er mótfallin því
að „sýna allt“ í nafni kynþokka. Sumum hönnuðum „finnst það svo
nútímalegt að vera nakinn eða næstum því nakinn. Þeir halda að
þeir eigi eftir að lokka að sér yngra fólk ef þeir sýna þannig kjóla,“
sagði Herrera í samtali við The Washington Post árið 2015. „Þeir
eru að reyna að fá fólk að veita sér athygli. Í veruleikanum þarf að
vera einhver leyndardómur,“ sagði Herrera sem er ekki sátt við
stjörnur sem klæðist efnislitlum kjólum fyrir athyglina. „Þær eiga
að vera tískufyrirmyndir og þær eru ekki í neinu.
Þetta er algjör þráhyggja núna,“ sagði hún.
Herrera fæddist í Venesúela 8. janúar 1939
og er því 79 ára gömul. Hún er þekkt fyrir
glæsilegan stíl sinn og það að hafa klætt margar
forsetafrúr í gegnum tíðina og eru þar á meðal
Jacqueline Onassis, Laura Bush, Michelle
Obama og Melania Trump.
Carolina Herrera þakkaði fyrir
sig í síðasta sinn á tískuvikunni í
New York í sl. viku. Hún er iðu-
lega í hvítri skyrtu og svörtum
buxum við vinnu sína. Wes
Gordon er við hlið hennar.
Carolina
Herrera
kveður
Carolina Herrera sýndi sína síðustu
fatalínu fyrir samnefnt tískuhús sitt á
tískuviku í New York í vikunni.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Allur klæðnaðurinn er úr haustlínunni 2018 þar sem glæsilegur kvöldklæðnaður var áberandi.
AFP
TÍSKA
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.2. 2018
Saga Kakala kynnir slæðulínuna Slæður fyrir læður eftir Gjörninga-
klúbbinn á Listasafni Íslands. Laugardaginn 17. mars verður listamannatal
Gjörningaklúbbsins um Slæður fyrir læður í Listasafni Íslands kl. 13.30.
Slæður fyrir læður