Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Síða 27
5Off-White HönnuðurinnVirgil Abloh gerði fatamerk-ið vinsælt á sl. ári.
Ítalska tískuhúsið Gucci trónir á toppnum á lista yfir umtöluðustu fatamerkiársins 2017 sem Lyst tók saman í samstarfi við Business of Fashion. Oftarvar leitað að Gucci á Lyst.com á árinu en að orðunum „skór“ eða „kjóll“.
Listrænn stjórnandi Gucci, Alessandro Michele, hefur komið tískuhúsinu í
fremstu röð á ný. Gucci var líka það tískuhús sem mest var leitað að á Google
um heim allan. Fatamerkið hefur ennfremur bætt við sig átta milljón fylgj-
endum á Instagram á árinu 2018. Rómverjinn Michele er alls enginn naum-
hyggjumaður og á litríkur og hlaðinn stíll hans vel við sjónræna veröld Insta-
gram.
Balenciaga, sem situr í öðru sæti, hefur sömu-
leiðis verið mikið í umræðunni eftir að Demna
Gvasalia tók við stjórninni. „Báðir þessir [Gva-
salia og Michele] hafa þá stefnu að nota sterkt
hönnunartungumál sem auðvelt er að bera
kennsl á sem þróast frá einni sýningu til ann-
arrar, í stað þess að vera alltaf að finna upp hjól-
ið og byrja upp á nýtt. Þannig þjálfa þeir neyt-
endur sem vita við hverju þeir eiga að búast en á
sama tíma koma þeir með nógu mikið nýtt til að
halda athyglinni,“ segir í grein á www.bus-
inessoffashion.com.
Í kringum 65% af kaupendum Balenciaga til-
heyra svokallaðri aldamótakynslóð og ber hún
ábyrgð á um helmingi allrar sölu hjá þessu
gamla franska tískuhúsi, sem hefur algjörlega
endurnýjað sig með tilkomu Gvasalia.
Demna Gvasalia er líka maðurinn á bak við
Vetements, sjóðandi heitt tískumerki sem er í
þriðja sæti listans. Vetements hefur notið mik-
illa vinsælda og höfðar til yngra fólks þrátt fyrir
að sumum þyki fötin líta út fyrir að koma beint
af flóamarkaðnum.
Business of Fashion spáir því að tískuhúsin í
efstu tveimur sætunum haldi velli á þessu ári en
aðdráttarafl Vetements fari dvínandi.
Til þess að búa til þennan vinsældalista voru
notuð gögn frá yfir 70 milljón neytendum frá
Google og Lyst hvað sölu varðar og hvað neyt-
endur skoða. Vegna öðruvísi dreifingaraðferða
eftirfarandi tískuhúsa nær Lyst-listinn ekki til
Chanel, Christian Dior, Hermès, Louis
Vuitton, Céline og
Prada.
Tískumerkin
á toppnum
Tískuhúsin sem fjallað er um hér eru þau sem
eru á topp tíu á lista Lyst yfir eftirsóttustu
merki ársins 2017. Tvö tískuhús voru allsráð-
andi, Gucci og Balenciaga, en þessi merki voru
þau umtöluðustu á síðastliðnu ári bæði meðal
neytenda og fólks í tískuiðnaðinum.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
6Givenchy Frá fyrstu hátísku-línu Clare Waight Keller fyrirGivenchy. Lógómerktir sand-
alar seldust vel á síðasta ári.
10Yeezy Kanye West hefur hannað vinsælastrigaskó í samvinnu við Adidas en fatalínurmerkisins hafa líka vakið athygli. Hér sýnir Par-
is Hilton í gervi Kim Kardashian nýjustu tísku frá Yeezy.
2Balenciaga Tískuhúsið hef-ur verið vinsælt hjá ungufólki. Sokkastrigaskórnir hér
til hægri seldust upp á fyrsta degi
hjá mörgum vefverslunum.
8Stone IslandRapparinn Drakeákvað að klæðast
einungis fatnaði frá Stone
Island á tónleikaferðalagi
sínu um heiminn og í kjöl-
farið jókst eftirspurn eftir
fötum frá merkinu mjög.
3Vetements Flóamarkaðatískaí yfirstærð frá Vetements hefurheillað tískuaðdáendur.
1Gucci Tískuhúsið bætti við sigátta milljón fylgjendum á Insta-gram á síðasta ári.
7Moncler Tískuhúsið er þekkt fyrir vetr-arklæðnað sem þennan en ennfremur hafadúnúlpur frá fatamerkinu notið vinsælda. 9
Balmain Það var ekki síst samvinna Oliviers
Rousteings frá Balmain við Victoria’s Secret sem
vakti athygli á fatamerkinu á árinu.
4Valentino Skýr sýnPierpaolos Picciolisásamt söluvænlegum
vörum hefur haldið
Valentino í
fremstu röð.
18.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 27