Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Qupperneq 36

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Qupperneq 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 18.2. 2018 LESBÓK Það var líf og fjör á æfingu á söng-leiknum The Phantom of theOpera í vikunni en þessi vinsælasti söngleikur í heimi, eftir Andrew Lloyd Webber, er frumfluttur á Íslandi í Eld- borg í Hörpu hinn 17. febrúar. Tvær sýn- ingar til viðbótar verða 18. og 24. febrúar. Uppfærslan verður sinfónísk tónleika- sýning með þátttöku 50 hljóðfæraleikara úr Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, undir stjórn Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar, níu einsöngvara og 30 manna kórs. Með helstu sönghlutverk fara Þór Breiðfjörð, Valgerður Guðnadóttir, Elmar Gilbertsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Hlöð- ver Sigurðsson, Bergþór Pálsson, Gísli Magna, Bjarni Snæbjörnsson, Margrét Eir og Greta Salóme, sem sér einnig um leikstjórn á verkinu. Diddú, Sigrún Hjálmtýsdóttir, í hlutverki Carlottu Guiudicelli bendir á Gísla Magna á meðan Hlöðver Sigurðsson horfir á. Morgunblaðið/Ásdís Óperudraugurinn Loksins er The Phantom of the Opera kominn til landsins, en þrjár sýningar eru í Hörpu um þessar mundir. Stórskotalið íslenskrar tónlistar sér um söng og hljóðfæraleik. Gestir eiga von á veislu fyrir eyru og augu. Myndir og texti: Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson stjórnar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands. Elmar Gilbertsson, Bergþór Pálsson og Gísli Magna í hlutverkum sínum. Þór Breiðfjörð er í hlutverki óperudraugsins og Valgerður Guðnadóttir fer með hlutverk Christine Daaé. Greta Salóme líður yfir sviðið í dansi. Hún er leikstjóri verksins. SÍGILDIR SUNNUDAGAR Fyrsta flokks kammertónlist Sígildir sunnudagar eru klassísk tónleikaröð þar sem boðið er upp á fjölbreytt úrval kammertónleika. Sunnudaga kl. 17:00 í Hörpu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.