Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Page 37

Morgunblaðið - Sunnudagur - 18.02.2018, Page 37
Þú finnur allt á FINNA.IS Bókhald, skattar og vskBilly Zane er ekki sá eini sem hefurþurft að svara fyrir dauða Jacks. KVIKMYNDIR Rúmum 20 árum eftir frumsýningu Titanic ræðir fólk enn og deilir um söguþráðinn, sérstaklega þá staðreynd að persóna Leonardo Di- Caprio, Jack, var látin deyja í lok myndar. Nú síðast var það leikarinn Billy Zane sem svaraði fyrir það en Zane lék unnusta Rose, sem Kate Winslet lék, í myndinni. „Hetjan þín verður að deyja,“ sagði Zane í viðtali við People. Leikstjórinn James Cameron hefur svarað þessari sömu spurningu á þann veg að það hafi haft listrænt gildi að láta Jack deyja. Auk þess sé svarið augljóst af hverju Jack dó. „Svarið er einfalt því á bls. 147 í handritinu stendur að Jack deyi.“ Jack varð að deyja Leikstjórinn Guillermo del Toro sést hér með leikkonunni Octaviu Spencer. BÍÓ Ný kvikmynd, The Shape of Water, var frumsýnd á föstudag- inn í Smárabíói og Háskólabíói. Myndin er sögð ævintýramynd en hún gerist á tímum kalda stríðsins í Bandaríkjunum í byrj- un sjöunda áratugar síðustu ald- ar. Í leynilegri rannsóknarstofu hins opinbera starfar hin ein- mana Elisa, föst í hljóðlátu og einangruðu umhverfi. Líf henn- ar breytist til frambúðar þegar hún og samstarfskona hennar Zelda, uppgötva háleynilega til- raun. Myndin hefur verið til- nefnd til þrettán Óskarsverð- launa, m.a. fyrir bestu mynd, besta leikara, bestu leikkonu í aukahlutverki og besta leik- stjóra. Bandaríska kvikmynda- stofnunin valdi myndina eina af tíu bestu myndum ársins. Tilnefnd til 13 Óskara 18.2. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 37 STÖÐ 2 Á sunnudagskvöld kl. 22 verður sýnd heimildar- myndin The Newspaperman: The Life and Times of Ben Bradlee, frá árinu 2017. Fjallar hún um ævi Ben Brad- lee, ritstjóra Washington Post, sem talinn er hafa stuðlað að afsögn Nixons Bandaríkja- forseta. Það er Tom Hanks sem leikur ritstjórann í The Post, nýrri mynd sem nú er í kvikmyndahúsum. Í heim- ildamyndinni er farið yfir ævi ritstjórans; æskuna, háskóla- árin í Harvard, veru hans í sjóhernum og starf hans sem blaðamanns. Ítarlega er fjallað um starf hans sem rit- stjóra og vinskap við John F. Kennedy forseta. Málin um Pentagon-skjölin og Water- gate eru rakin. Ævisaga ritstjóra Washington Post Ben Bradlee árið 1973. Hann lést árið 2014. Það var 12. febrúar 1993 að myndin Groundhog Day með Bill Murray var frumsýnd. Síðan er aldar- fjórðungur liðinn og enn eru nýjar kynslóðir að horfa á myndina, enda er hún löngu orðin klassísk. Fyrir þá sem ekki hafa séð hana er hún um veðurfréttamanninn Phil, sem sendur er til Punxsutawney í Penn- sylvaniu, fjórða árið í röð. Þar fer árlega fram athöfn þar sem múr- meldýrið Punxsutawney Phil spáir fyrir um hve mikið er eftir af vetr- inum. Veðurfréttamaðurinn er mjög ósáttur við þetta verkefni og dylst það fáum. Hann klárar daginn með hangandi hendi, fer að sofa og vaknar næsta dag og sér til furðu, er sami dagurinn og sá á undan. Þannig gengur þetta dag eftir dag; það er alltaf 2. febrúar. Hann fer að nýta sér það til framdráttar en hann áttar sig fljótlega á því að hann virðist fastur á sama degi til eilífðarnóns. Hann notar tækifærið og stundar ólifnað, drekkur sig full- an trekk í trekk og sefur hjá ókunnugum konum. Til að losna við þennan leiðinlega dag reynir hann nokkrum sinnum sjálfsmorð en alltaf vaknar hann við sama lag- ið í útvarpinu, I Got You Babe með Sonny & Cher. Smátt og smátt fer hann að endurskoða lífsgildi sín. Mitt í þessu öllu saman fellur hann fyrir hinni fögru Ritu, leikinni af Andie MacDowell. Myndin er talin ein af bestu grín- myndum sögunnar. Kvikmyndin hefur gert þennan dag, 2. febrúar, enn frægari en áður. Stærstu hátíðarhöldin eru ár hvert í Punxsutawney í Pennsylv- aníu. Fyrir gerð myndarinnar mættu um 2.000 manns, en strax árið eftir voru gestir orðnir tíu þús- und og eru nú árlega um 40 þús- und. Bill Murray lék eftirminnilega lífs- leiðan veðurfréttamann í myndinni Groundhog Day, en nákvæmlega 25 ár eru síðan myndin var frumsýnd. GROUNDHOG DAY Sami dagur, 25 árum síðar Opið alla daga vikunnar. Viðburðardagatal á norraenahusid.is Hlýlegtmenningarhús í Vatnsmýrinni

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.