Morgunblaðið - 02.03.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 02.03.2018, Blaðsíða 1
F Ö S T U D A G U R 2. M A R S 2 0 1 8 Stofnað 1913  52. tölublað  106. árgangur  SKRÁÐIR UM 5.000 ÍSLENSKIR FJÁRHUNDAR ALLT UM VINNUVÉLAR OG VERKFÆRI LISTAHÁTÍÐIN FERSKIR VINDAR VERÐLAUNUÐ 24 SÍÐNA SÉRBLAÐ EYRARRÓSIN 38FRÁBÆR FÉLAGI 12 Morgunblaðið/Eggert Barnaspítali Brýnt er að greina hvað veld- ur flótta hjúkrunarfræðinga úr stéttinni.  Svandís Svavarsdóttir heilbrigð- isráðherra vill setja á fót sérstakt fagteymi í kringum stuðning við langveik börn og börn með sjald- gæfa sjúkdóma. „Slíkt fagteymi hefði það verk- efni að tryggja samfellu í þjónustu við þennan hóp, bæði börnin og fjöl- skyldur þeirra,“ segir hún í samtali við Morgunblaðið. Svandís segir að við gerð kjara- samninga við BHM á dögunum hafi verið undirrituð sérstök bókun um að taka á starfsmannaskorti í heil- brigðiskerfinu. Þeim málum verði ekki kippt í liðinn á stuttum tíma, en mikilvægt sé að greina rætur vandans í samvinnu við heilbrigð- isstéttirnar, ekki síst hjúkrunar- fræðinga. Mikilvægt sé að finna út úr því hvað valdi því að fjöldi hjúkr- unarfræðinga kjósi sér annan starfsvettvang. »11 Greina þarf rætur mönnunarvandans Innbrotaalda » Alls hafa um sextíu innbrot verið framin á höfuðborg- arsvæðinu síðan í desember. » Fjórir sitja í gæsluvarðhaldi. » Þeir voru handteknir eftir ábendingar frá árvökulum ná- grönnum. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Lögregla rannsakar nú tengsl fjög- urra manna sem sitja í gæsluvarð- haldi í tengslum við mikla innbrota- öldu á höfuðborgarsvæðinu síðustu vikur. Tilraun var gerð til innbrots í heimahúsi í Garðabæ í fyrrakvöld og því er talið að fleiri þjófar gangi enn lausir. Meðal þess sem lögregla rannsak- ar eru ferðir mannanna til og frá landinu til að sjá hvaða innbrotum þeir geta tengst. Alls eru um sextíu innbrot óupplýst frá því í desember. Þá skoðar lögregla líka farsímanotk- un mannanna til að sjá hverjir hafa rætt saman og hvenær. Innbrotin vel skipulögð Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlög- regluþjónn segir að grunur leiki á að innbrotin tengist skipulagðri glæpa- starfsemi. „Maður sér það á gögnum sem tekin voru af þessum mönnum. Menn fara og skoða húsin með ein- hverjum hætti og láta svo til skarar skríða,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið. Talið er að þýfi úr innbrotunum hafi verið sent úr landi en fylgst hef- ur verið með sendingum frá landinu frá því innbrotahrinan hófst. Rannsaka ferðir og síma  Fjórir menn sitja í gæsluvarðhaldi vegna innbrotaöldu  Grunur um að fleiri gangi lausir eftir innbrotstilraun í Garðabæ  Vel skipulagt og þýfið sent úr landi MGrunur um að fleiri... » 14 Morgunblaðið/Eggert Ferðamenn Margt ber fyrir augu á Íslandi sem þarf að mynda. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Þó að afleggjarinn heim að bænum láti lítið yfir sér í landslaginu hefur litlum Yarisum sem leggja leið sína eftir holóttum afleggjaranum fjölgað mikið. Aka þeir flestir hægt, stoppa og taka myndir, keyra heim á hlað og snúa við og eru farnir. Sumir hafa þó meira við, stoppa og borða nestið sitt hér og þar eða gista jafnvel í veg- kantinum úti undir beru lofti og halda síðan áfram sína leið,“ skrifa bændurnir á Bakka á Kjalarnesi. Þau skrifa á Facebook-síðu sína að steininn hafi þó tekið úr á dögunum þegar lítilli rútu var lagt á þeirra landi. Þegar Birgir Aðalsteinsson bóndi ætlaði að athuga hvort einhver væri í vandræðum var hann beðinn um að slökkva ljósin á bílnum því hann væri að trufla norðurljósaskoð- un. Sagðist íslenskur fararstjóri hópsins vera í fullum rétti til að at- hafna sig á túninu. „Hvernig í ósköp- unum getur einhver talið sig í rétti til að stunda atvinnurekstur á annarra manna eign án þess að fá til þess leyfi?“ spyrja bændurnir. »4 Truflið ekki sýninguna  Bændur finna fyrir auknum átroðningi ferðafólks Bæirnir hafa lifnað við eftir að langa óveðurs- kaflanum lauk. Iðnaðarmenn fá svigrúm til að taka til hendinni og vinna verk sem beðið hafa vegna veðurs og snjóalaga. Smiðirnir sem eru að reisa límtréshús í Kópavogi klæða sig þó vel enda var hann heldur svalur í gær. Fólk sést meira á ferðinni á tveimur jafnfljótum eða hjól- hestum. Jafnvel er haft á orði að sumarið sé komið, þótt marsmánuður sé rétt að hefjast. Iðnaðarmenn taka til hendinni í útiverkum Morgunblaðið/Árni Sæberg Bæirnir lifna við eftir langan óveðurskafla  Reykjavíkurborg mun í næstu viku opna útboð vegna strætóskýla og auglýsingastanda í borginni. Þorsteinn R. Hermannsson, sam- göngustjóri Reykjavíkur, segir verktaka heimilt að setja upp allt að 400 biðskýli í borginni. Meðal nýjunga í skýlunum er að settir verða upp skjáir með upplýs- ingum um næstu strætisvagna og biðtímann. Þeir skjáir verða þó að- eins settir upp á fjölförnum stöðum. Franska fyrirtækið AFA JCDe- caux rekur grænu biðskýlin í borg- inni. Einar Hermannsson, fram- kvæmdastjóri félagsins á Íslandi, segir það taka þátt í útboðinu. »10 Borgin býður út hundruð biðskýla Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Bið eftir tíma hjá bæklunarlækni á Landspítalanum getur verið upp undir hálft ár. Læknirinn metur ástand sjúklingsins og ákveður hvort þörf er á aðgerð. Þá tekur við biðlisti en meðalbiðtími eftir liðskiptaaðgerð hér á landi er nú um sex mánuðir á spítalanum, eins og fram hefur kom- ið í blaðinu. Eldri maður, sem bíður heima hjá sér sárkvalinn af verkjum, eftir að fá tíma hjá bæklunarlækni á Landspít- alanum segir að biðlistarnir segi ekki allt. Liðið geti allt að 16 mánuðir frá því beðið er um tíma og þar til aðgerð er gerð. Haldið upplýstum Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum er sjúklingi og lækninum sem gefur út tilvísun hald- ið upplýstum um hvenær líklegt er að tími fáist á göngudeild. Sjúklingur fari ekki á biðlista eftir aðgerð fyrr en eftir skoðun bæklunarlæknis á göngudeild, það er að segja ef lækn- irinn metur hann skurðtækan. » 6 Bíður í 16 mánuði eftir liðskiptaaðgerð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.