Morgunblaðið - 02.03.2018, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 02.03.2018, Blaðsíða 39
MENNING 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2018 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Við völdum prógrammið út frá gestasöngvara tónleikanna, sem er Elmar Gilbertsson tenór,“ segir Sig- urður Halldórsson sellóleikari um tónleika barokkhópsins Symphonia Angelic sem fram fara í Fríkirkjunni í kvöld kl. 20. Með honum koma fram Sigríður Ósk Kristjánsdóttir mezzó- sópran, Halldór Bjarki Arnarson semballeikari, Laufey Jensdóttir fiðluleikari og Arngeir Heiðar Hauksson teorbuleikari. „Við vorum strax ákveðin í því að flytja verk eftir Monteverdi,“ segir Sigurður, en fyrir valinu þar urðu aríur og dúettar úr óperunni Krýn- ing Poppeu sem ráða för fyrir hlé. „Þema tónlistarinnar fyrri hluta kvölds er ástir og örlög. Þegar nær dregur hléi birtir aðeins yfir pró- gramminu og undir lokin þróast þetta yfir í fögnuð,“ segir Sigurður, en á efnisskrá seinni hluta kvöldsins eru aríur og dúettar úr óperum eftir Georg Friederich Händel, þeirra á meðal „Ombra mai fu“ og „Lascia ch’io pianga“. „Sem rauður þráður gegnum efnisskrána eru náttúrulýsingar í tónum eftir Biber sem gefa ákveðið rými milli söngatriða,“ segir Sig- urður og vísar þar til verksins So- nata representativa þar sem fiðlan líkir eftir ýmsum dýrahljóðum. Ein- leik í fiðlusónötunni leikur Laufey. Ratar beint í hjartað Spurður um tilurð Symphonia Angelica rifjar Sigurður upp að hann hafi verið stofnaður 2015. „Sig- ríði Ósk langaði að syngja kantötu Händels, Lucreziu og fleiri verk af þeim toga með barokkhljóðfærum og var að leita að hljóðfæraleikurum til samstarfs. Þá var henni bent á mig,“ segir Sigurður, en í framhald- inu fengu þau Halldór og Arngeir til liðs við sig. Vorið 2016 varð draumur Sigríðar Óskar að veruleika á tón- leikum á Listahátíð í Reykjavík og fyrir frammistöðu sína þar var hún tilnefnd til Íslensku tónlistarverð- launanna 2016. Að sögn Sigurðar er ekki alltaf hlaupið að því fyrir hópinn að halda tónleika í ljósi þess hve stór hluti hópsins býr og starfar erlendis. „Halldór Bjarki býr í Hollandi þar sem hann stundar nám í semballeik og barokktónlist við Konunglega tónlistarháskólann. Laufey býr í Sví- þjóð og Arngeir hefur búið og starf- að í London síðustu tvo áratugi. Þeg- ar hópar í Evrópu leika barokk- tónlist eru þeir nær undan- tekningarlaust með að minnsta kosti eina teorbu í hljóðfæraskipaninni,“ segir Sigurður, en teorba er bassa- lúta. „Með sembalnum og sellóinu er teorban mikilvægur hljómur í rytmasveitinni og hefur fleiri liti og dýnamíska breidd.“ Spurður hvern- ig megi skýra vinsældir barokk- tónlistar enn þann dag í dag bendir Sigurður á að barokktónlist hafi ver- ið popptónlist síns tíma. „Með örfá- um undantekningum er tónlistin frekar létt, fjörug og rytmísk. Þetta er glæsileg gæsahúðartónlist sem ratar beint inn í hjartað,“ segir Sig- urður. „Gæsahúðartónlist“  Symphonia Angelic með tónleika í Fríkirkjunni í kvöld Morgunblaðið/Hari Hæfileikafólk Barokkhópurinn Symphonia Angelic á æfingu í Fríkirkjunni í gærdag. gegnum börnin og jafnvel úr sömu hæð og þau eru í sjálf. Í upphafi á maður erfitt með að tengja við þessi börn, þau eru svo óforskömmuð, talsmátinn ljótur og þau eru svo veraldarvön að þau virð- ast vera mun eldri en aðeins sex ára. Moonee býr með ungri móður sinni, Halley (Bria Vinaite), í hinu fjólubláa móteli. „Það er alltaf verið að taka þennan mann fastan,“ útskýrir Moo- nee litla fyrir vinkonu sinni sem var að flytja inn og er að sýna henni mót- elið. „Þessi kona heldur að hún sé gift Jesú.“ Fólkið í mótelinu er það sem kallast „the hidden homeless“ í Bandaríkjunum, fólk sem á ekki þak yfir höfuðið en hefur þó rétt svo nóg milli handanna til að geta búið í svona skítapleisum tímabundið. Móðirin, Halley, er álíka fráhrind- andi og barnið í byrjun, hún er í raun meira eins og barn heldur en kona, kann hvorki mannasiði né að ala upp börn. Annar lykilkarakter er eigandi mótelsins, leikinn af Willem Dafoe, sem er sífellt að rukka Halley um leigu og skamma krakkana. Það kemur fljótlega í ljós að hann er þó enginn leiðindagaur, í raun er hann einskonar hrörlegur og lifaður verndarengill. Kvikmyndin líður áfram án sögu- þráðar, finnst manni, sem kemur ekki að sök heldur ýtir undir tilfinn- inguna að maður sé að horfa á heim- ildarmynd og að persónurnar séu raunverulegar. Myndavélin fylgir Moonee og vinum hennar í gegnum hin ýmsu hversdagslegu ævintýri, en í síðari hluta myndarinnar byrjar at- burðarásin að skýrast. Börnin kveikja óvart í nálægri byggingu, Halley dregur barnið með sér að hliðum Disney World til að selja ódýrar eftirlíkingar af ilmvötnum, hún byrjar að selja sig og kúnnar koma til hennar á mótelherbergið á meðan barnið er í baði. Við sjáum ástina sem þessi unga móðir ber til barns síns þrátt fyrir að hafa í raun- inni brugðist öllum skyldum sínum sem foreldri. Hún fer með hana á hótel og pantar morgunmat fyrir hana sem hún setur svo á eitthvert uppfundið herbergisnúmer. Stelur morgunmatnum fyrir barnið og horf- ir brosandi á það alsælt að raða í sig kræsingum. Hægt og rólega er áhorfandinn búinn að tengjast þessum ógæfulegu persónum í myndinni. Þegar Mooney brestur loksins í grát rétt fyrir lok myndarinnar er það gríðarlega áhrifaríkt, ég fékk tár í augun, það er svo sjokkerandi að sjá allt í einu í raun hversu ungt þetta veraldarvana barn er. Þessi unga leikkona er alveg hreint mögnuð. The Florida Project er lágstemmd mynd um ömurlegan veruleika, sem fangar þó mann- gæsku og ást á mjög sterkan hátt. Lágstemmd The Florida Project er lágstemmd mynd um ömurlegan veruleika, sem fangar þó manngæsku og ást á mjög sterkan hátt, að mati gagnrýnanda. Bria Vinaite og Brooklynn Prince sjást hér í hlutverkum mæðgnanna. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Fös 16/3 kl. 20:00 Frums. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Sun 18/3 kl. 20:00 2. sýn Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Mið 21/3 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Fim 22/3 kl. 20:00 aukas. Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Fös 23/3 kl. 20:00 3. s Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Lau 24/3 kl. 20:00 4. s Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Sun 25/3 kl. 20:00 5. s Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Þri 8/5 kl. 20:00 31. s Þri 27/3 kl. 20:00 aukas. Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Fös 11/5 kl. 20:00 33. s Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Lau 12/5 kl. 16:00 34. s Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa. Elly (Stóra sviðið) Fös 2/3 kl. 20:00 132. s Fös 9/3 kl. 20:00 135. s Lau 17/3 kl. 20:00 138. s Lau 3/3 kl. 20:00 133. s Lau 10/3 kl. 20:00 136. s Sun 4/3 kl. 20:00 134. s Sun 11/3 kl. 20:00 137. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Brot úr hjónabandi (Litla sviðið) Fös 2/3 kl. 20:00 56. s Fim 8/3 kl. 20:00 58. s Lau 10/3 kl. 20:00 60. s Lau 3/3 kl. 20:00 57. s Fös 9/3 kl. 20:00 59. s Sun 11/3 kl. 20:00 Lokas. Allra síðustu aukasýningar komnar í sölu. Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið) Fös 13/4 kl. 20:00 Frums. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Sun 29/4 kl. 20:00 10. s Lau 14/4 kl. 20:00 2. s Sun 22/4 kl. 20:00 6. s Mið 2/5 kl. 20:00 11. s Sun 15/4 kl. 20:00 3. s Mið 25/4 kl. 20:00 7. s Fim 3/5 kl. 20:00 aukas. Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 8. s Fös 4/5 kl. 20:00 12. s Fim 19/4 kl. 20:00 4. s Fös 27/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 13. s Fös 20/4 kl. 20:00 5. s Lau 28/4 kl. 20:00 9. s Sun 6/5 kl. 20:00 14. s Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi? Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Lau 24/3 kl. 20:00 Frums. Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Sun 25/3 kl. 20:00 2. s Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Þri 27/3 kl. 20:00 3. s Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Lau 21/4 kl. 20:00 17. s Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis! Slá í gegn (Stóra sviðið) Fös 2/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 23/3 kl. 19:30 10.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn Fim 8/3 kl. 19:30 Auka Lau 24/3 kl. 19:30 11.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn Fös 9/3 kl. 19:30 6.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 12.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 Auka Lau 10/3 kl. 16:00 5.sýn Fös 6/4 kl. 19:30 Auka Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn Lau 10/3 kl. 19:30 7.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn Lau 21/4 kl. 19:30 18.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 8.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 9.sýn Fim 12/4 kl. 19:30 Auka Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Risaeðlurnar (Stóra sviðið) Fim 15/3 kl. 19:30 Auka Fös 16/3 kl. 19:30 Síðustu Síðustu sýningar komnar í sölu Fjarskaland (Stóra sviðið) Sun 4/3 kl. 13:00 Sun 4/3 kl. 16:00 Sun 11/3 kl. 13:00 Síðustu Síðustu sýningar komnar í sölu Faðirinn (Kassinn) Mið 7/3 kl. 19:30 25.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 27.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 29.sýn Fim 15/3 kl. 19:30 26.sýn Lau 24/3 kl. 19:30 28.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Efi (Kassinn) Lau 3/3 kl. 19:30 14.sýn Fös 9/3 kl. 19:30 16.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 19.sýn Sun 4/3 kl. 19:30 15.sýn Sun 11/3 kl. 19:30 Auka Þri 6/3 kl. 19:30 13.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 18.sýn Margverðlaunað og spennandi verk ! Ég get (Kúlan) Sun 4/3 kl. 13:00 13.sýn Sun 18/3 kl. 13:00 15.sýn Sun 11/3 kl. 13:00 14.sýn Sun 25/3 kl. 13:00 Síðasta Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar Oddur og Siggi (Stóra sviðið) Fös 2/3 kl. 11:00 Þri 6/3 kl. 11:00 Mán 5/3 kl. 11:00 Mið 7/3 kl. 11:00 Skemmtileg, sorgleg og hjartnæm sýning Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið) Lau 3/3 kl. 13:00 Lau 3/3 kl. 15:00 Brúðusýning Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn) Fös 2/3 kl. 20:00 Sun 4/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 20:00 Fös 2/3 kl. 22:30 Fim 8/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 22:30 Lau 3/3 kl. 20:00 Fös 9/3 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 22:30 Fös 9/3 kl. 22:30 Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika! Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 7/3 kl. 20:00 Fim 22/3 kl. 20:00 Fesival Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.