Morgunblaðið - 02.03.2018, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2018
London, Brussel. | AFP. Theresa
May, forsætisráðherra Bretlands,
hefur brugðist reið við uppkasti að
sáttmála um útgöngu Breta úr Evr-
ópusambandinu. Sagði hún á mið-
vikudag að hún myndi aldrei leyfa
ESB að grafa undan fullveldi Bret-
lands og bætti við að enginn for-
sætisráðherra landsins myndi sam-
þykkja slíkt.
Í drögunum er lagt til að Norður-
Írland verði í tollabandalagi við ESB
til þess að ekki þurfi að setja upp eft-
irlit á landamærunum að Írlandi.
„Drögin að hinum lagalega texta
myndu ef þau kæmu til framkvæmda
grafa undan hinum sameiginlega
markaði Stóra-Bretlands og ógna
stjórnarskrárlegri heild Stóra-Bret-
lands með því að búa til landamæri
tolla og regluverks niður með Ír-
landshafi og enginn forsætisráð-
herra Bretlands gæti nokkurn tím-
ann samþykkt slíkt,“ sagði hún.
May sagði einnig að hún vildi að
það væri „Juncker forseta [fram-
kvæmdastjórnar ESB] og öðrum al-
gerlega skýrt að við munum aldrei“
samþykkja að aðrar tollareglur gildi
í Norður-Írlandi en annars staðar í
Bretlandi.
May ræddi í gær við Donald Tusk,
forseta Evrópusambandsins, í Lond-
on. Fyrir fundinn sagði Tusk að
kynni May ekki að meta hugmynd-
ina ætti hún að finna annan kost.
Hann kvaðst þess hins vegar fullviss
að aðildarríki ESB myndu sam-
þykkja drögin. Þá bætti hann við að
viðskipti yrðu aldrei snurðulaus utan
tollabandalagsins og Evrópska efn-
hagssvæðisins. Snurður væru óhjá-
kvæmilegur fylgifiskur Brexit.
Samningsaðilar um útgöngu
Breta úr ESB hafa heitið því að finna
mjúka lendingu á því hvernig málum
verði háttað með landamæri Norður-
Írlands og Írlands.
May flytur í dag ávarp þar sem
hún hyggst gera grein fyrir áætlun-
um breskra stjórnvalda um útgöng-
una. Deilan um írsku landamærin
hefur yfirskyggt þá umræðu í vik-
unni.
Hart deilt um írsku landamærin
May segist aldrei munu samþykkja
hugmyndir ESB um tollabandalag
Fer úr ESB
Áfram í ESB
Landamæri Írlands
Eftir Brexit verða landamærin milli Norður-Írlands og Írska lýðveldisins einu landamæri Breta og ESB á landi
500 km löng
400
30.000
Landamærin nú
FólksflutningarAndsnúin Brexit Viðskipti
Útganga
Í RSKA
LÝÐVELDIÐ
NORÐUR-
ÍRLAND
Belfast
48
N-Írland hafnaði útgöngu úr ESB
52
Bretland, heild
gatnamót
fara daglega yfir
landamærin til vinnu
Ótakmörkuð
viðskipti Heimild: Evrópuþingið
Írskir ríkis-
borgarar
mega búa í
N-Írlandi og
þar með í
Bretlandi
Fólk fætt á
N-Írlandi getur
gerst írskir
ríkisborgarar
og þar með
ESB-borgarar
STÓRA-
BRETLAND
Áfram í ESB
Norður-Írland
44
56
Norður-Írland
Norður-
Írland
Írland
Írska
lýðveldið
57%
við ESB
Útflutn.
Útflutn.
við ESB
21
17
34%
Forseti Rússlands, Vladimír Pútín,
tilkynnti í ræðu í gær að landið byggi
nú yfir nýrri kynslóð ofurvopna sem
gæti komist framhjá öllum eld-
flaugavörnum og nú þyrftu önnur
stórveldi að fara að taka mark á
hernaðarmætti Rússlands, sam-
kvæmt frétt AFP.
Í ræðu sinni vitnaði Pútín í eigin
ræðu frá 2004 þar sem hann lofaði að
undir sinni forystu myndu Rússar
þróa nýja kynslóð vopna, loforð sem
hann sagðist nú hafa efnt. Pútín
sækist eftir endurkjöri í forseta-
kosningum Rússlands 18. mars.
„Það vildi enginn í raun tala við
okkur. Enginn hlusta á okkur.
Hlustið á okkur núna,“ sagði Pútín
við standandi lófatak frá æðstu emb-
ættismönnum landsins, þar á meðal
Sergei Sjoigu varnarmálaráðherra
og Sergei Lavrov utanríkisráðherra.
Á meðan á ræðunni stóð sýndi for-
setinn myndefni þar sem var verið að
prófa nýja eldflaug sem hann sagði
geta flogið á tuttuguföldum hljóð-
hraða ásamt því að geta hækkað og
lækkað flug eftir þörfum. Lýsti Pút-
ín því yfir að þetta vopn væri „ósigr-
andi“ og „fyrirmyndarvopn“.
Forsetinn tók fram að Rússland
hefði líka þróað nýjar smærri eld-
flaugar sem geta borið kjarnorku-
vopn hvert sem er á hnettinum og
sagði hann eldflaugina „komast hjá
öllum þekktum loft- og eldflauga-
vörnum“. Á sama tíma hafa Rússar
þróað nýtt ómannað neðansjávarfar-
artæki sem getur borið kjarnavopn
og er hraðskreiðara en kafbátar og
tundurskeyti.
Pútín hrósaði einnig nýrri kynslóð
vísindamanna og kallaði þá „hetjur
okkar tíma“. Rússnesk yfirvöld ætla
að efna til samkeppni um nafngiftir
þessara nýju vopna.
Pútín kynnir nýja
kynslóð ofurvopna
Telur eldflaugakerfið ósigrandi
AFP
Ofurvopn Vladimír Pútín greinir
frá hinum nýju vopnum Rússa.
Meira til skiptanna
Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna,
verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið.
Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent
12in Wall fan Hi-line Sabre Plate
DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS
Hreint loft og vellíðan
Það borgar sig að nota það besta
VENT–AXIA VIFTUR