Morgunblaðið - 02.03.2018, Page 28

Morgunblaðið - 02.03.2018, Page 28
28 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2018 ✝ Kristinn Svein-björnsson fæddist í Reykjavík 29. maí 1945. Hann lést á Landspít- alanum Grensási 20. febrúar 2018. Foreldrar hans voru Sveinbjörn Sigurðsson, f. 3. okt. 1919, d. 27. maí 2005, og Helga Kristinsdóttir, f. 1. júní 1923. Systkini Kristins eru: 1) Sigurður Sveinbjörnsson, f. 1949, maki Dagný Jónasdóttir, f. 1948, 2) Árni Sveinbjörnsson, f. 1952, maki Áslaug Sigurðar- dóttir, f. 1953, 3) Sveinbjörn Sveinbjörnsson, f. 1955, maki Soffía Theodórsdóttir, f. 1965 4) Anna María Sveinbjörns- dóttir, f. 1961. 21. mars árið 1970 giftist Kristinn Valgerði Bjarnadótt- ur, f. 1942, þau skildu 1994. Börn þeirra eru 1) Helga Kristinsdóttir, f. 12. des. 1969, maki Helgi Hjartarson, f. 1968, börn þeirra eru Sigrún, f. 1996, Kristinn, f. 2001, og Valgerður, f. 2003, 2) Berglind Krist- húsasmíði. Að því loknu fór hann í nám til Kaupmannahafn- ar í Byggeteknisk Højskole þar sem hann lærði byggingafræði. Að loknu námi í byggingafræði vann hann einn vetur á teikni- stofu í Kaupmannahöfn. Eftir að hann sneri aftur til Íslands vann hann fyrstu árin hjá Fast- eignamati ríkisins og síðar hjá Húsameistara ríkisins þar sem hann vann allan sinn starfs- feril. Kristinn vann einnig sjálf- stætt og var með Teiknistofu Kristins Sveinbjörnssonar. Kristinn var afkastamikill húsateiknari og eftir hann standa mörg einbýlishús, iðn- aðarhús, skrifstofuhús, sum- arbústaðir o.fl. Á námsárunum í Kaup- mannahöfn kynntist Kristinn Valgerði. Þau fluttu til Íslands árið 1969 og hófu búskap í Safamýri 27. Árið 1972 fluttu þau í Traðarland 12 í Fossvogi, í hús sem Kristinn byggði. Þar bjuggu þau til áramóta 1991/ 1992. Þá fluttu þau í Hvassa- leiti 60, einnig í hús sem Krist- inn byggði. Eftir að Kristinn og Valgerður skildu bjó Kristinn í Eskihlíð í stuttan tíma en fljót- lega flutti hann í Kringluna 87 þar sem hann bjó allt til dauða- dags. Kristinn verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju í dag, 2. mars 2018, klukkan 13. insdóttir, f. 4. feb. 1971, maki Axel Valur Birgisson, f. 1969, börn þeirra eru Álfheiður Edda, f. 1998, Anna Vala, f. 2001, og Bergþór, f. 2005, 3) Elínóra Kristinsdóttir, f. 5. jan. 1974, maki Karl Konráðsson, f. 1972, börn þeirra eru Katrín Ásta, f. 1999, Eiríkur Atli, f. 2002, og Karól- ína, f. 2006, 4) Herdís Krist- insdóttir, f. 28. sept. 1977, maki Rafn Hermannsson, f. 1975, börn þeirra eru Emilía Ósk, f. 2000, Júlía, f. 2004, og Rut, f. 2009, 5) Bjarni Kristinsson, f. 30. maí 1983, maki Ingunn Loftsdóttir, f. 1983, börn þeirra eru Tómas Bogi, f. 2006, Erik Þór, f. 2008, og Nína Dröfn, f. 2011. Kristinn ólst upp í vesturbæ Reykjavíkur. Hann tók lands- próf og var einn vetur í Menntaskólanum í Reykjavík og fór síðan í Iðnskólann í Reykjavík og lauk sveinsprófi í Elsku pabbi, nú ertu farinn frá okkur, þú sem virtist eiga níu líf. Það var ótrúlega sárt að kveðja þig nú eftir þann tíma sem við höfum átt saman und- anfarið. Það eru einmitt sjö mánuðir frá því þú dast heima hjá þér og hryggbrotnaðir. Því fylgdi lömun frá brjósti. Þetta varð þér og okkur nánustu að- standendum þínum mikið áfall. Í sameiningu náðum við smám saman sátt við breytt lífsgæði þín og færni. Þessari umbylt- ingu á lífi þínu fylgdu daglegar heimsóknir okkar til þín oft á erfiðum stundum, en þó áttum við saman virkilega dýrmætan og góðan tíma. Í byrjun þessara veikinda dansaðir þú við dauð- ann og barðist fyrir lífi þínu með ótrúlegri seiglu. Þegar þú dróst öndunarvélina úr þér í sumar, sýndir þú að þú varst ekki tilbúinn að fara og þyrftir að sinna ákveðnu verkefni áður en þú yfirgæfir Hótel jörð. Við systkinin höfum alltaf eytt góðum stundum saman og verið náin. Að taka þátt í þessu verkefni með þér var okkur öll- um mjög lærdómsríkt og nú er- um við enn nánari. Þökk sé þér. Það má segja að við höfum öll fengið nýtt upphaf með þér, tækifæri til að deila tilfinning- um og notalegum samveru- stundum sem nú ylja okkur. Það var auðséð að þú naust þessara samverustunda og við erum sammála að þessi tími var blessun fyrir okkur öll, þrátt fyrir allt. Þú tókst þessari um- byltingu í lífi þínu með ótrúlegu æðruleysi og vorum það ekki bara við sem tókum eftir því heldur flestallir sem umgengust þig á þessum tíma. Þú varst alltaf þakklátur fyrir heimsókn- ir okkar á spítalann og passaðir alltaf að þakka okkur fyrir komuna. Þú varst alveg einstakur pabbi, óhætt er að segja að þú varst engum líkur. Ekki varstu dæmigerður faðir, ef hann er til. Þú varst mjög skapandi og frumlegur. Þú varst mjög eft- irminnilegur fyrir okkur krakk- ana og börnin í hverfinu með hinum ýmsu uppátækjum þín- um. Æskuheimili okkar var eins og félagsmiðstöð og önnur börn sóttu í að leika á heimili okkar. Örlög þín voru ráðin þegar þú hittir mömmu Valgerði, sveitastúlku úr Hreppunum í Kaupmannahöfn 1967, sem var stóra ástin í lífi þínu. Þú varst að læra byggingafræði og stóðst þig vel í þínu námi. Eftir þig standa ótal byggingar sem lifa þig. Þú varst óvenjudugleg- ur til vinnu, ósérhlífinn og þér féll varla verk úr hendi. Þegar heim var komið tók við auka- vinna sem þú sinntir að ein- hverju leyti langt fram eftir aldri. Síðar þegar við börnin þín vorum að kaupa okkur hús- næði sem sumt þurfti að stand- setja, varstu alltaf innan hand- ar til að gefa góð ráð og aðstoða. Sumir lýsa þér þannig að þú vildir alltaf allt fyrir aðra gera, en varst minna að velta fyrir þér eigin líðan, heilsu og þörfum. Lífið býður upp á gleði og sorg. Mesta sorgin í lífi þínu er tengd andlegum veikindum sem hittu þig í blóma lífsins og rændu þig allt of mörgu. Heils- unni, vinnuþrekinu og því sem þér var kærast, hjónabandinu. Þrátt fyrir að þið hafið skilið fyrir um 24 árum var vinskapur ykkar einstakur og héldu marg- ir að þið mamma væruð enn hjón. Þú varst alltaf heima hjá mömmu, fórst í búðina og þið borðuðuð saman. Elsku pabbi, að ferðalokum liggja fyrst og fremst ljúfar og góðar minningar um þig sem varst góður í gegn og vildir allt fyrir okkur gera. Fyrir það er- um við óendanlega þakklát. Takk fyrir allt og hvíl í friði. Helga, Berglind, El- ínóra, Herdís og Bjarni. Meira: mbl.is/minningar Hversvegna er leiknum lokið? Ég leita en finn ekki svar. Ég finn hjá mér þörf til að þakka þetta sem eitt sinn var. (Starri í Garði) Hvíl í friði, kæri vinur. Valgerður. Í dag kveð ég elsta bróður minn, Kristin Sveinbjörnsson. Þegar ég var smástelpa var Kiddi bróðir við nám í Dan- mörku og í mínum huga var það einhvers staðar langt í burtu og ég þekkti hann frekar lítið. Þegar Kiddi og Vala konan hans fluttu heim var það mjög spennandi tími og ekki skemmdi fyrir að Helga litla var rétt ókomin í heiminn. Í námi Kidda var eitt af verk- efnum hans að gera módel af húsi sem hann teiknaði. Hann var svo sniðugur að útfæra módelið sem dúkkuhús sem hann færði mér við heimkom- una. Fljótlega eftir að Kiddi og Vala fluttu heim, byggðu þau sér hús í Traðarlandi 12. Kiddi hannaði húsið sjálfur með þarf- ir stækkandi fjölskyldu í huga. Eldhúsið var opið inn í sjón- varpshol og í minningunni sat Kiddi í sófanum með teikni- bretti, krakkarnir að leika sér í kringum hann og Vala að stúss- ast í eldhúsinu. Stórfjölskyld- unni og vinum þótti gott að koma til Kidda og Völu sem tóku vel á móti öllum gestum. Kiddi vann hjá húsameistara ríkisins og þar fyrir utan vann hann á sinni eigin teiknistofu, oft um kvöld, nætur og helgar. Kiddi var oft með sérstakar hugmyndir t.d. tók hann upp á því að drepa á bílnum á ljósum og í brekkum til að spara bens- ínið. Kom hann eitt sinn mjög kátur í sumarbústað foreldra okkar og sagðist hafa látið bíl- inn renna niður Kambana og að bíllinn hafi staðnæmst við Hveragerði. Kiddi naut þeirrar gæfu að eignast fimm frábær börn með Völu og fimmtán barnabörn. Hann var duglegur að aðstoða þau, ef eitthvert þeirra var að breyta eða bæta húsnæði var hann alltaf mættur. Kiddi var líka duglegur að heimsækja mömmu okkar á tíræðisaldri og oft sat hann hjá henni á kvöld- in. Veikindi settu svip á líf Kidda. Á miðjum aldri fór að bera á andlegum veikindum sem erfitt að var að eiga við. Upp úr því skildu Kiddi og Vala, en hann var alltaf velkom- inn á hennar heimili og var virkur þátttakandi í öllu sem viðkom fjölskyldunni. Síðasta sumar datt Kiddi heima hjá sér og lamaðist fyrir neðan brjóst. Erfiður tími tók við þar sem Kidda var oft ekki hugað líf. Kiddi dvaldi á Grensásdeild síðustu mánuði lífs síns og fékk þar góða aðhlynningu. Hann tók veikindum sínum með ótrúlegu jafnaðargeði og æðruleysi og naut þess að fá börnin og barnabörnin í heim- sókn, jafnt sem aðra gesti. Hvíl í friði, elsku bróðir. Anna María Sveinbjörnsdóttir. Kristinn Sveinbjörnsson  Fleiri minningargreinar um Kristin Sveinbjörns- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. ✝ Jóhannes Sig-mundsson fæddist í Syðra- Langholti í Hruna- mannahreppi 18. nóvember 1931. Hann lést á dval- arheimilinu Ási í Hveragerði 19. febrúar 2018. Foreldrar: Sig- mundur Sigurðs- son, f. 1903 á Litla-Kálfalæk í Hraunhreppi, d. 1981, bóndi og oddviti í Syðra-Langholti, og Anna Jó- hannesdóttir, f. 1902 á Fremri-Fitjum, V-Hún., d. 1997. Systkini: Alda, f. 1930, d. 1931, Alda Kristjana, f. 1933, Sigurgeir Óskar, f. 1938, d. 1997, Sigurður, f. 1938, d. 2013, og Sverrir, f. 1944. Eiginkona Jóhannesar er Hrafnhildur Svava Jónsdóttir, f. 5.11. 1934. Þau kynntust á Laugarvatni er hún stundaði Maki 1: Anna Marý Snorra- dóttir, f. 1960, d. 1992. Dætur þeirra: Tinna Björk, f. 1980. Arna Þöll, f. 1988, maki Þor- steinn Gunnar Þorsteinsson, dóttir Svava Marý, f. 2011. Maki 2: Kristín Jónsdóttir. 3) Sigurbjörg Jóna, f. 5.1.1959. Maki Ólafur Ó. Stephensen. Börn: Jóhannes, f. 1980, maki Thelma Guðmundsdóttir og börn Guðmundur Óli, f. 2007, og Kristín Lóa, f. 2012. Pét- ur, f. 1983. Hrafnhildur Eva, f. 1985, maki Kristinn Björg- úlfsson og börn Karen Birna Einarsdóttir, f. 2008, og Daði Fannar Kristinsson, f. 2017. 4) Snorri Freyr, f. 11.3. 1965. Maki Vigdis Furuseth. Börn: Hákon Snær, f. 1998, og Birg- it Ósk, f. 2000. 5) Gunnar Þór, f. 30.10. 1967. Maki Arn- dís Eiðsdóttir. Börn Hrafn- hildur Ósk, f. 2003, og Ásgeir Ægir, f. 2009. Áður átti Arn- dís Jón Aron Lundberg, f. 1994, og Jóhönnu Rut, f. 1998. 6) Anna Lára, f. 17.12. 1969. Maki Sigurjón Krist- insson. Börn Önnu Láru: Alexia Björk Lebas, f. 1993, og Anton Hrafn Greipsson, f. 2006. Sigurjón á 6 börn og 7 barnabörn. 7) Ásdís Erla, f. 2.6. 1972. Maki Yngvi Ragnar Kristjánsson. Börn: Elvar Goði, f. 2001, og Anna Marý, f. 2004. Jóhannes stundaði nám í Héraðsskólanum að Laug- arvatni og varð stúdent frá Menntaskólanum að Laug- arvatni árið 1954. Jóhannes stofnaði nýbýlið Syðra-Lang- holt 3 árið 1954 og stundaði búskap og var með ferðaþjón- ustu. Hann var kennari við Flúðaskóla í 33 ár. Jóhannes stundaði íþróttir og félagsstörf alla tíð. Hann var í vara-stjórn UMFÍ og for- maður HSK í tíu ár. Hann var kjörinn heiðursformaður HSK árið 2011. Jóhannes hlaut fjölda viðurkenninga m.a. gullmerki og heiðurskross ÍSÍ, var heiðursfélagi ÍSÍ, gull- merki F.R.Í, starfsmerki og gullmerki U.M.F.Í. Hann var formaður Kennarafélags Suð- urlands og Ferðamálasamtaka Suðurlands og sat í Ferða- málaráði Íslands auk fjölda annarra félagsstarfa. Jóhannes gaf út Gamansög- ur úr Árnesþingi árið 2014. Útförin fer fram frá Skál- holtskirkju í dag, 2. mars 2018, klukkan 13. nám við Hús- mæðraskólann og gengu í hjóna- band 5.11.1954. Hrafnhildur er dóttir Jóns S. Sig- fússonar og Sigurbjargar T. Guttormsdóttur á Sauðárkróki. Börn Jóhannes- ar og Hrafnhild- ar: 1) Hilmar, f. 18.4. 1955. Maki Fanney Þór- mundsdóttir. Börn þeirra: Árni Þór, f. 1980, maki Freyja Þorkelsdóttir og börn þeirra Eyþór Orri, f. 2003, Óðinn Freyr, f. 2005, og Íris Birna, f. 2009. Haukur Már, f. 1983, maki Rudy Witt Dahlin og dóttir Elín Kría, f. 2017. Hugrún Jóna, f. 1988, maki Ársæll Einar Ársælsson og börn Birkir Aron, f. 2011, og Rakel Lilja, f. 2016. Þór- mundur Smári, f. 1995. 2) Sigmundur, f. 25.9. 1957. Þegar ég var strákur vildi ég helst eyða öllum mínum sumar- og skólafríum í sveitinni hjá afa og ömmu. Ég var ávallt velkom- inn í Syðra-Langholt og alltaf var afi boðinn og búinn að sækja mig í rútuna hvort sem það var á Selfoss eða niðri á afleggjara. Í sveitinni var ýmislegt brall- að í leik auk þess sem þurfti að gefa skepnum, heyja og sinna öðrum bústörfum. Mér þótti allt- af sérstaklega gaman að brasa í gróðurhúsinu hjá afa og ömmu og var iðinn við að tína þar gúrk- ur og tómata sem við svo gædd- um okkur á. Í eldhúsinu sátum við krakkarnir á bekknum og afi á stól fyrir endann á borðinu. Í glugganum á móts við hann stóð útvarpstækið og fréttatíminn ómaði yfir matartímanum. Afi missti aldrei úr fréttatíma og er það lýsandi fyrir það hversu fróðleiksfús hann var. Aldrei var komið að tómum kofanum hjá afa, hann vissi allt. Hvort sem um var að ræða Íslandsmet í ein- stökum íþróttagreinum, stjórn- mál eða landafræði, hann hafði svörin alltaf á reiðum höndum. Einnig hafði hann gaman af því að segja sögur og hafði einstak- lega gott lag á því. Margar sög- urnar voru sagðar í heita pott- inum þar sem venjan var að enda daginn í sveitinni. Ég naut þess að fá að svamla í pottinum og hlusta á merkilegar frásagnir um allt milli himins og jarðar. Ég kveð þig nú, elsku afi minn. Ég er þakklátur fyrir að eiga allar góðu minningarnar um þig og dvöl mína í sveitinni. Þú markaðir líf mitt svo sannarlega og sá sem auðgar líf annarra hef- ur vissulega lifað góðu og þýð- ingarmiklu lífi. Þinn nafni, Jóhannes Stephensen. Látinn er náfrændi minn og vinur Jóhannes Sigmundsson Syðra-Langholti, fyrrverandi bóndi og kennari. Mig langar að minnast þessa mæta manns með nokkrum orðum. Við kynntumst ungir enda systkinasynir fæddir sitthvorn daginn. Við gengum saman í barnaskólann á Flúðum og vorum sessunautar þar. Eftir fermingu gekk Jóhannes í Menntaskólann að Laugarvatni og útskrifaðist þaðan í hópi fyrstu stúdenta frá skólanum. Hann var ráðinn til kennslu við barnaskólann á Flúðum. Við Jó- hannes gengum í Ungmanna- félag Hrunamanna. Vorum fljót- lega kosnir fulltrúar á héraðsþing Skarphéðins. Við sát- um þar saman á fimmtíu þing- um, Jóhannes var vel virkur þar og var síðan kosinn formaður HSK. Og gegndi því starfi í ára- tug, síðar kosinn heiðurs- formaður HSK. Sem unglingar fórum við að stunda íþróttir. Jó- hannes var góður liðsmaður í gullaldarliði Hrunamanna um 1950. Hans aðalgrein var stang- arstökk, þar var hann einn af bestu stökkvurum Suðurlands, var meðal annars valinn í lands- lið Íslands. Á unga aldri lærðum við að spila bridge og skák. Þeg- ar bridgedeild UMFH var stofn- uð 1967 fórum við að spila keppnisbridge saman sem par. Hélst það samstarf í nær fimm- tíu ár. Þegar Golfklúbburinn Flúðir var stofnaður kom Jó- hannes fljótlega með í golfið. Við spiluðum mikið saman fjórir. Jó- hannes, Karl, Emil og Þórður, þetta var kallað svartagengið. Var þá oft spilað meira af kappi en forsjá. Ógleymanlegar eru golfferðirnar sem við fórum til útlanda, þar var Jóhannes ómiss- andi ferðafélagi. Hæst stendur 60 ára afmælisferð til Flórída. Fórum við sex saman, við Jó- hannes, Emil bróðir og konurn- ar. Þar héldum við stórt afmæl- ismót með verðlaunum og afmælistertum fyrir alla. Jó- hannes var oft mistækur í golf- inu, sló boltana sína út í skóg, inn í runna eða ofan í tjarnir, en hann var óhræddur að sækja boltana, þó að skógurinn iðaði af höggormum og í tjörnunum syntu stærðar krókódílar. Spunnust oft margar skemmti- legar sögur úr þessum ferðum. Ég má til með að láta eina flakka. Jóhannes keypti sér flott- ar ljósar golfbuxur, svo var farið á völlinn. Ekki vildi betur til en svo að Jóhannes sló boltann sinn út í skóg, hann fór að sækja bolt- ann en lenti þá í svörtu drullu- feni, Þegar hann kom til baka voru buxurnar ekki lengur hvítar heldur útataðar í leðju. Þegar heim var komið og Hrafnhildur sá buxurnar varð hún fyrst orð- laus en sagði svo Jóóóhannnes, eru þetta nýju buxurnar þínar. Svo var það ekki meira, buxurn- ar voru komnar í samt lag morg- uninn eftir. Hrafnhildur er nefni- lega einstök kona og húsmóðir. Það er mikil gæfa að eiga slíkan vin og félaga í gegnum árin, því verður ekki með orðum lýst. Að lokum vil ég þakka þér vinur og félagi, Jóhannes, kærlega fyrir allar þær góðu stundir sem við áttum saman, mundu svo að hafa spilin og kylfurnar klárar þegar minn tími kemur eftir einhver x ár. Að lokum viljum við hjónin votta þér Hrafnhildur og ykkar fjölskyldum okkar innilegustu samúðarkveðjur. Vorið fer að koma og þá birtir á ný. Karl Gunnlaugsson. Meira: mbl.is/minningar Jóhannes Sigmundsson  Fleiri minningargreinar um Jóhannes Sigmunds- son bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað get- ur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Lengd | Minningargreinar sem birtast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri grein. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5-15 línur. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.