Morgunblaðið - 02.03.2018, Síða 37
DÆGRADVÖL 37
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. MARS 2018
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár10%
afsláttur
fyrir 67 ára
og eldri
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Hugsanlegt er að þú verðir með
hugmynd tengda tekjum og fjármálum á
heilanum í dag. Reyndu að láta ekki slá þig
út af laginu.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert sparsamur þegar þú þarft á að
halda, en passaðu þig á að halda ekki of
fast í peningana þegar þess gerist ekki þörf.
Vertu óhræddur við djarfar lausnir.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert að glíma við eitthvert
vandamál sem veldur þér miklum heilabrot-
um. Láttu ekki vini þína eða kunninga telja
þér trú um eitthvað sem þú veist að er ekki
rétt.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Sumir halda að maður eigi að halda
upplýsingum sem maður fær fyrir sig. Tal-
aðu um það sem þú sérð, sérstaklega þegar
það er heillandi sérviska annarra.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú veist að þú ert á réttri leið og þarft
því ekki að gefa neitt eftir. Ef þú hefur ekki
verið að nýta hæfileika þína, er rétti tíminn
til þess núna.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Allt sem þú leggur á þig til þess að
skipuleggja þig betur og taka til í kringum
þig ber mikinn árangur núna. Varastu að
vilja grípa inn í líf annarra.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er nú svo komið að jafnvel ákvarð-
anir um smæstu hluti vefjast fyrir þér. Nú er
rétt að staldra við og bíða færis.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú hefur mikla trú á peningum,
og þeim mun meira sem þú treystir þeim,
þeim mun meira eignastu af þeim. Varastu
að sýna öðrum yfirlæti.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vertu heiðarlegur í svörum við
aðra og hugleiddu gaumgæfilega hvort þú
eigir að gera aðra að trúnaðarvinum þínum.
Samstarfsfólk þitt gæti komið þér á óvart.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er gaman að kynnast nýjum
mönnum og málefnum og sjálfsagt að vera
opinn fyrir hvorutveggja. Sýndu þeim skiln-
ing og þér mun verða launað þótt síðar
verði.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Skilningsríkt fólk býðst til að
hjálpa þér og það kemur þér á óvart. Sveigj-
anleiki og ákveðni eru kjörorð dagsins sem
og alla daga.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Nú er tækifærið til þess að setjast
niður og skipuleggja líf sitt. Reyndu að ein-
angra þig og einbeita þér að þeim verk-
efnum sem fyrir liggja.
Davíð Hjálmar Haraldsson ervafalaust meðal okkar
fremstu limruskálda. Ég tók mér
„Fyrstu Davíðsbók“ í hönd. Þar
segir Davíð Hjálmar í formála:
„Engu skal treysta í limru, oftast er
reynt að hafa hana fyndna og hún
oft því betri sem spaugið er fárán-
legra. Annars er það oft svo að ein-
um kann að finnast fyndið það sem
öðrum finnst ekki. Þannig getur
það verið með þessa limru:
Bílar í borginni spóla,
börnin ei komast í skóla,
kreppir að rónum
sem klúka í snjónum
og krapið nær hátt upp á sóla.
Norðlendingurinn er hér að gera
grín að „snjónum“ í Reykjavík, en
þarlendir sjá ekkert fyndið við að
krapasullið nái upp á sóla.“
Síðar segir Davíð Hjálmar að
ekki sé hægt að sækja höfund limru
til ábyrgðar efnis hennar og undir
hælinn lagt hvort hann sjálfur skilji
efnið til hlítar. – „Þeir sem yrkja
limrur eru því oft vandræðamenn“:
Ég er tenór sem falsetta tálmar,
tígur sem breimar og mjálmar,
vatni fyllt sáld
vandræðaskáld
en heiti þó Davíð og Hjálmar.
Það er vitaskuld erfitt að velja úr
limrum Davíðs Hjálmars og getur
aldrei orðið nema handahófskennt.
Hér er ein:
Sigrún með samninganefið
svo reynist fundvís á þrefið
að verði átakafundur
með olíu og tundur
þá er hún með eldspýtnabréfið.
Hér er skemmtilegur orðaleikur:
Árni varð afhuga frúnni,
ylgjunni, tíkinni og súnni
en það skýrt kom í ljós
er þær skruppu í fjós
að þarna stóð knífur í kúnni.
Hér er hinn óvænti endir:
Halla gaf Hans undir fót,
í húminu áttu sér mót
tvö ástfangin hjörtu
en aldrei í björtu
því hún var svo helvíti ljót
Hér segir frá hjali elskenda:
„Þú ert svoli og svín,“ æpti Binna,
„og svikari loforða þinna
og ótrúlegt flón.“
Ansaði Jón:
„Engan má fullkominn finna.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Limrur úr
Fyrstu Davíðsbók
Í klípu
„ÉG VIL BARA ÞAÐ SAMA OG ALLIR Í
LÍFINU – ÓKEYPIS SENDINGARGJALD.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ERU ÞETTA NÝJU SKÓRNIR SEM ÞÚ
FÉKKST Á ÞÚSUNDKALL?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... sönglag sem rifjar
upp gamlar stundir.
ÞARF EKKI AÐ
FARA NEITT
ÞARF EKKI AÐ
GERA NEITT
FÖRUM EITTHVAÐ OG
GERUM EITTHVAÐ!
VÁ, HVAÐ VIÐ ERUM
ÓSKYLDIR
ÞEGAR KONAN MÍN ER
REIÐ, ER HÚN KONA
SMÁRRA ORÐA!
MEINAR ÞÚ EKKI
KONA „FÁRRA“
ORÐA?
NEI, SMÁRRA ORÐA… MEÐ
EINUNGIS FJÓRUM STÖFUM!
Senn líður að því að Víkverji bregðisér af bæ og í leikhús til að sjá
sjálfan Eggert Þorleifsson leika aldr-
aðan mann með heilabilun. Getur
Víkverji vart beðið þar sem Eggert
er í sérstöku uppáhaldi.
x x x
Takist Eggerti ekki að stela sen-unni í leiksýningum eða bíó-
myndum þá telst það nánast til tíð-
inda. Hefur sérstakt lag á
senuþjófnaði.
x x x
En í þessu tilfelli er hann í burð-arhlutverkinu og heldur sjálfsagt
sýningunni uppi að miklu leyti ef Vík-
verji hefur skilið lýsingarnar rétt.
Víkverja finnst um að gera að sjá
Eggert leika aldraðan mann því fyrir
mörgum árum sá Víkverji Eggert
leika aldraða konu. Sú sýning hét
Belgíska Kongó og líklega skellti
drjúgur hluti landsmanna sér á þá
sýningu enda Eggert í fantaformi.
Gott ef hann fékk ekki verðlaun fyrir.
x x x
Iðulega virðast framúrskarandigamanleikarar geta skellt sér í
dramarísk hlutverk eins og Eggert á
auðvelt með. En ekki virðist vera
jafnauðvelt fyrir þá sem eru vanir
dramatíkinni að fara yfir í gam-
anleikinn og gera það vel.
x x x
Nokkuð er liðið frá því að ArnariJónssyni tókst það þegar hann
fór á kostum í sjónvarpsþáttunum
Fastir liðir eins og venjulega. Arnar
er að Víkverji best veit sjaldan nýtt-
ur í gamanleik en það virtist ekki
vefjast fyrir honum.
x x x
Kunnara er en frá þurfi að segja aðí gær var „Bjórdagurinn“ á Ís-
landi. Hinn 1. mars 1989 ákvað hluti
kjörinna fulltrúa að leyfa kjósendum
sínum og umbjóðendum að kaupa
bjór á heimavelli.
x x x
Illa gengur að útrýma talsmönnumboða og banna. Afturganga um-
ræðunnar um bjórinn gengur nú ljós-
um logum í annarri umræðu. vikver-
ji@mbl.is
Víkverji
Drottinn er nálægur þeim sem hafa
sundurmarið hjarta, hann hjálpar
þeim sem hafa sundurkraminn anda.
(Sálmarnir 34.19)
Matur