Morgunblaðið - 09.03.2018, Side 1
F Ö S T U D A G U R 9. M A R S 2 0 1 8
Stofnað 1913 58. tölublað 106. árgangur
www.verkogvit.is
Velkomin á stórsýninguna Verk og vit
Laugardalshöll 8.–11. mars
Allt það nýjasta í íslenskum byggingariðnaði, skipulagsmálum og mannvirkjagerð
ER GLÖÐ AÐ SJÁ
STELPUR FÁ TÆKI-
FÆRI TIL AÐ TEFLA
MÁTTUR SAM-
KENNDAR OG
HJÁLPRÆÐIS
HEFUR YNDI
AF ÞVÍ AÐ VERA
TIL OG LÆRA
ANDIÐ EÐLILEGA 38 NICHOLE LEIGH MOSTY 12SUSAN POLGAR 6
Sigríður Snævarr, fyrsti kvensendiherra Íslands, var
sérstakur gestur Nasdaq í Kauphöll Íslands í gær, á
alþjóðlegum baráttudegi kvenna, og hringdi bjöll-
unni kröftuglega eftir að hafa tekið til máls.
Hún segir m.a. forsendu fyrir völdum og áhrifum
beggja kynja í viðskiptalífinu vera að viðskiptalífið
reyni að draga til sín metnaðargjarnar konur og að
fyrirtæki leggi áherslu á að eiga viðskipti við þá sem
gæta að kynjasamsetningu stjórna og lykilstjórn-
enda.
Lítill árangur hefur náðst t.d. á sl. 10 árum í Nor-
egi þrátt fyrir reglur um fjölgun kvenna í lykil-
stöðum, en þar í landi séu aðeins um sjö prósent
kvenna forstjórar, hér á landi eru það 8%. »4, 18, 20
Morgunblaðið/Eggert
Hverjum bjallan glymur á degi kvenna
Aðeins átta prósent forstjóra á Íslandi eru konur
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Samkvæmt samantekt samtakanna Cruise
Iceland skildu útgerðir, farþegar og áhafnir
skemmtiferðaskipa eftir 7-8 milljarða króna
hér á landi í fyrra. Pétur Ólafsson, formaður
Cruise Iceland og hafnarstjóri á Akureyri,
segir að hér verði til um 300 heilsársstörf
vegna komu skipanna, mörg þeirra séu á
landsbyggðinni. Fjölmörg fyrirtæki veita
þjónustu vegna komu skipanna og ríki og
sveitarfélög innheimta af þeim ýmiss konar
skatta og gjöld.
Alls tóku fjórtán hafnir hringinn í kring-
um landið á móti skemmtiferðaskipum á síð-
asta ári. Langstærstar eru hafnirnar í
Reykjavík, á Akureyri og Ísafirði hvað varð-
ar fjölda farþega. Fleiri skip komu hins veg-
ar til Hafnasamlags Norðurlands í fyrra en
Faxaflóahafna, eða 172 skip á móti 135, en
mörg minni skemmtiferðaskipanna koma
eingöngu á minni hafnirnar. Samkvæmt
upplýsingum Péturs fóru um níu þúsund far-
þegar í hringsiglingar um Ísland í fyrra.
„Þróun í smíði skemmtiferðaskipa og bún-
aði þeirra er ótrúlega hröð þar sem umhverf-
ismál og orkunýting er í forgrunni,“ segir
Pétur. Hann segir að mörg þeirra skipa sem
nú eru í smíðum verði knúin náttúrugasi.
Brýnt sé að huga að því að koma upp birgða-
stöð fyrir náttúrugas (LNG) hér á landi og
hafi hann m.a. rætt við olíufélög um upp-
byggingu slíkrar stöðvar. Þar telji hann að
staðsetning á Dysnesi við Eyjafjörð komi vel
til greina.
Skapa
300 heils-
ársstörf
Skemmtiferðaskip
skildu eftir 7-8 millj-
arða króna í fyrra
MHröð þróun í smíði nýrra skipa »14
Ljósmynd/Sverrir Karlsson
Tekjur Skemmtiferðaskip á Grundarfirði.
„Menn hafa vanrækt lægstu hóp-
ana. Þessir hópar hafa setið eftir og
bilið breikkar á milli lægstu hóp-
anna og annarra hópa,“ segir Gylfi
Dalmann Aðalsteinsson, vinnu-
markaðssérfræðingur og dósent
við HÍ.
Hann telur að þetta sé ein meg-
inskýringin á þeim umbrotum sem
nú eiga sér stað í verkalýðshreyf-
ingunni sem sjást með sigri Sól-
veigar Önnu Jónsdóttur í
formannskosningu í Eflingu og áð-
ur í kjöri Ragnars Þórs Ingólfs-
sonar sem formanns VR.
Hann telur að það skipti launa-
fólk miklu máli að hafa sameinaða
og samstiga verkalýðshreyfingu.
Annað sé vatn á myllu vinnuveit-
enda.
Titringur er innan verkalýðs-
hreyfingarinnar eftir sigur Sól-
veigar Önnu. Óvissa er um hvaða
breytingar gætu verið í farvatninu
á vettvangi ASÍ og um samstarf
stéttarfélaga. » 10
Umbrotin vegna
þess að lægstu hóp-
ar hafa setið eftir
1. maí Bilið hefur breikkað milli lægstu
hópa og annarra, að mati sérfræðings.
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Margir þingmenn Sjálfstæðis-
flokks og Framsóknarflokks velta
því nú fyrir sér hvort þingmeiri-
hluti ríkisstjórnarinnar í fjórum
fastanefndum Alþingis sé enn fyrir
hendi eftir að þau Andrés Ingi
Jónsson og Rósa Björk Brynjólfs-
dóttir, þingmenn VG, greiddu at-
kvæði með vantrauststillögu stjórn-
arandstöðunnar á dómsmála-
ráðherra.
Hvort þeirra um sig situr í tveim-
ur fastanefndum þingsins og meiri-
hlutinn í atkvæðagreiðslum í nefnd-
um ræðst af þeirra atkvæði.
Þingmenn sem rætt var við í gær,
segja að boltinn sé hjá VG. »4
Spyrja hvort meiri-
hluti sé fyrir hendi