Morgunblaðið - 09.03.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2018
Ármúla 17, 108 Reykjavík, sími 552 8636, mbr.is
Allt fyrir raftækni
Hljómtæki
Cambridge
Audio YOYO S
Bluetooth hátalari
26.900 kr.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Einar Hugi Bjarnason hæstaréttar-
lögmaður telur dóm Hæstaréttar í
máli umbjóðanda hans hafa víðtækt
fordæmisgildi. Hagsmunirnir kunni
að hlaupa á milljörðum.
Málið varðar dráttarvexti sem
Arion banki reiknaði af láni meðan
stefnandi var í greiðsluskjóli. Tíma-
bilið var um 34 mánuðir, frá feb.
2011 til nóv. 2013.
„Niðurstaðan er afdráttarlaus.
Bankanum var óheimilt að krefja
umbjóðanda minn um vexti meðan
hann var í greiðsluskjóli,“ segir
Einar Hugi sem áætlar aðspurður
að umbjóðandi hans fái líklega á
aðra milljón endurgreidda frá Arion
banka, auk málskostnaðar og vaxta.
„Þetta er fyrsta mál sinnar teg-
undar sem fær efnislega niðurstöðu
í Hæstarétti. Málið varðar heimild
fjármálafyrirtækja til töku dráttar-
vaxta á tímabili
greiðslustöðv-
unar. Þetta er
auðvitað aðeins
fyrsta málið. Það
á eftir að koma í
ljós hver við-
brögðin verða. Ef
Arion banki þrá-
ast við að end-
urgreiða skuld-
urum oftekna
dráttarvexti vænti ég þess að ein-
hverjir sjái sér hag í að leita réttar
síns á grundvelli þessa dóms,“ segir
Einar Hugi. Dómur Héraðsdóms
Reykjavíkur féll í okt. 2016 og stað-
festi Hæstiréttur hann í gær.
Einar Hugi segir um og yfir tvö
þúsund einstaklinga kunni að eiga
rétt á endurgreiðslu dráttarvaxta
meðan þeir voru í greiðsluskjóli.
„Ef hagsmunir í þessu máli eru
margfaldaðir með fjölda fólks í
sambærilegri stöðu hlaupa hags-
munirnir á milljörðum,“ segir hann.
Einar Hugi segir aðspurður að
Arion banki hafi talið 11. grein laga
um greiðsluaðlögun óljósa, þ.e. að
óljóst væri hvort eingöngu væri átt
við almenna vexti, eða bæði al-
menna vexti og dráttarvexti.
Markmiðið að aðstoða fólk
„Það er að mínu mati með ólík-
indum að bankinn hafi talið sér
stætt á að krefja skuldarann um
dráttarvexti. Vísa ég þar til þess
markmiðs laga um greiðsluaðlögun
að koma skuldsettum einstaklingum
til aðstoðar eftir efnahagslegt áfall í
kjölfar hrunsins.
Í öðru lagi, sem er nú kannski
þungamiðjan í þessu, mátti skuld-
arinn samkvæmt lögum um
greiðsluaðlögun ekki greiða af
skuldum sínum og kröfuhafar ekki
taka við greiðslum á tímabili
greiðsluaðlögunar. Því voru engin
vanskil til staðar. Það lá því mjög
skýrt fyrir frá upphafi að það var
engin heimild til töku dráttarvaxta.
Þetta atriði er áréttað í 7. grein
vaxtalaganna. Þar kemur fram að
ekki megi krefjast dráttarvaxta ef
skuldari heldur eftir greiðslu af lög-
mætum ástæðum. Í mínum huga er
það auðvitað skólabókardæmi um
að greiðslu sé haldið eftir af lög-
mætum ástæðum þegar lög mæla
beinlínis fyrir um að það megi ekki
greiða af skuldunum,“ segir Einar
Hugi.
Hann hefur sem lögmaður komið
að fleiri dómsmálum sem varða
efndir fjárhagslegra skuldbindinga í
kjölfar efnahagshrunsins. Þá meðal
annars gengislánamál Plast-
iðjunnar. Hann kveðst aðspurður
ekki hafa trú á að dráttar-
vaxtamálið sé síðasta dómsmálið
sem varðar uppgjör skulda eftir
hrun.
Bankinn mun skoða málið
Haraldur Guðni Eiðsson, upplýs-
ingafulltrúi Arion banka, segir gott
að niðurstaða sé komin í málið.
Með því sé búið að eyða „ákveð-
inni óvissu um hvernig bæri að
túlka lögin“. „Við munum fara yfir
niðurstöðuna,“ segir Haraldur
Guðni.
Hagsmunirnir hlaupi á milljörðum króna
Lögmaður skuldara telur dóm Hæstaréttar fordæmisgefandi Maður í greiðsluaðlögun krafinn
um dráttarvexti af hálfu Arion banka Bankinn telur að dómurinn eyði óvissu um túlkun laganna
Morgunblaðið/Eggert
Arion Tekist var á um innheimtu
dráttarvaxta í greiðsluskjóli.
Einar Hugi
Bjarnason
„Dublin er skemmtileg borg og ég hlakka til að koma
þangað aftur. Síðast var ég þarna árið 1992 og sjálf-
sagt hefur margt breyst síðan þá,“ segir Sigurlína
Ellertsdóttir, leikskólakennari í Hafnarfirði.
Hún er ein fimm sem fengu nöfn sín dregin úr
pottinum í áskrifendaleik Morgunblaðsins í gær og að
þessu sinni var í vinning ferð fyrir tvo með WOW air
til höfuðborgar Eyjunnar grænu, eins og Írland er
oft kallað. Áskrifendaleikurinn stendur í tíu vikur og
var útdrátturinn í gær sá níundi í röðinni. Enn á eftir
að draga út þá vinninga sem eru farmiðar til Dallas í
Texas í Bandaríkjunum. Það verður gert í næstu
viku, en alls verða 104 flugmiðar gefnir í áskrifenda-
leiknum.
Vinningshafarnir að þessu sinni auk Sigurlínu voru
Pétur Magnússon, Anna Ólafsdóttir, Guðrún Sig-
urþórsdóttir og Þórður Jóhannesson. „Ég er búin að
vera áskrifandi að Morgunblaðinu síðan árið 1983,
reyndar með einhverju smá hléi endur fyrir löngu.
Mér finnst alveg ómissandi að fá blaðið og byrja dag-
inn á því að renna yfir það fjölbreytta efni sem er í
blaðinu. Í rauninni er Morgunblaðið aðgöngumiði
manns út í samfélagið. En um ferðina til Dublin þá
er hún virkilega spennandi og tilhlökkunarefni. Þetta
kom reyndar upp bara núna fyrr í dag svo ég er ekk-
ert mikið farin að velta þessu fyrir mér, en það væri
gaman að bjóða börnunum mínum með,“ segir Sig-
urlína Ellertsdóttir.
Sigurlína er á leið til Dublin
Áskrifendaleikur WOW og Morgunblaðsins Dallas næst
Dublin Höfuðborg Eyjunnar grænu er vinsæll ferða-
mannastaður sem Íslendingar hafa jafnan sótt mikið.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Sveitarstjórn Reykhólahrepps ákvað
á fundi sínum í gær að nýr Vestfjarða-
vegur um Gufudalssveit skuli liggja
um Teigsskóg.
Fjórir sveitar-
stjórnarmenn
greiddu atkvæði
með þessari leið
en einn var á móti.
Lengi hefur
verið deilt um nýj-
an veg á þessum
slóðum. Sveitar-
stjórnin hefur að
undanförnu skoð-
að tvo möguleika,
leið Þ-H sem fer um Teigsskóg og
Vegagerðin taldi besta, og leið D2
sem Skipulagsstofnun mælti með. Sú
síðarnefnda, með jarðgöngum undir
Hjallaháls, hefur minni umhverfis-
áhrif en er mun dýrari.
„Við viðurkennum að það eru meiri
neikvæð umhverfisáhrif af þessari
leið en hins vegar hefur hún jákvæð
samfélagsleg áhrif. Hún bætir sam-
göngur og eykur umferðaröryggi. Þá
er verulegur munur á kostnaði,“ segir
Ingibjörg Birna Erlingsdóttir, sveit-
arstjóri Reykhólahrepps. Ingibjörg
segir að lagning vegarins um Teigs-
skóg muni kosta rúma sjö milljarða
króna en hinn kosturinn, gangaleiðin,
myndi kosta rúma 13 milljarða
króna.
„Við vitum líka að það væri bið eftir
þeim peningum og bið eftir göngum á
biðlista. Það eru einhver göng á undan
í röðinni og það yrði engin sátt um að
setja þessi göng fram fyrir þau. Töf
vegna þessa hefði mjög neikvæð áhrif
á sunnanverða Vestfirði. Okkur bar
siðferðislega að horfa til þess líka.“
Þessi ákvörðun er hluti af vinnu við
breytingu á aðalskipulagi hreppsins.
Sú tillaga verður nú send til Skipu-
lagsstofnunar hvar hún fær umsögn
og verður í kjölfarið auglýst.
Þá verður hægt að gera athuga-
semdir við tillöguna. Skipulagsnefnd
hreppsins tekur í kjölfarið afstöðu til
athugasemda. Endanlegt aðalskipu-
lag verður svo samþykkt í sveitar-
stjórn og tekur gildi með staðfestingu
Skipulagsstofnunar.
Ingibjörg segir að ef allt gangi að
óskum verði hægt að gefa út fram-
kvæmdaleyfi með haustinu og hefjast
handa. Hún segir að ekki liggi fyrir
hvernig fjármögnum þessa verkefnis
verði háttað.
„Við höfum bara orð vegamála-
stjóra og samgönguráðherra fyrir því
að því verði komið í kring. Já, þetta
voru orð fyrrverandi samgönguráð-
herra en við fórum líka og hittum nú-
verandi ráðherra og hann er sam-
mála.“
Vegurinn lagður um Teigsskóg
Nýr Vestfjarðavegur verði lagður um Teigsskóg Ódýrari kostur en ganga-
leiðin en meiri neikvæð umhverfisáhrif Vonast eftir framkvæmdaleyfi í haust
Djú
pif
jör
ðu
r
Þor
ska
fjör
ður
Þo
rs
ka
fjö
rð
ur
Skálanes-
fjall
Teigssk
ógur
Hja
llah
áls
Reykjanes
Gufudalssveit
Grónes-
-hyrna
Vestfjarðavegur um Gufudalssveit
Loftmyndir ehf.
Núverandi vegur
Kostur D2
Nýtt vegstæði, kostur Þ-H
Ingibjörg Birna
Erlingsdóttir
Erlendir ferðamenn, karl og kona,
létust í árekstri vörubifreiðar og
fólksbifreiðar á Lyngdalsheiðarvegi
í gær. Slysið átti sér stað um
klukkan hálffjögur og var veginum
lokað á meðan viðbragðsaðilar
unnu á vettvangi. Rannsókn máls-
ins er í höndum rannsóknardeildar
lögreglunnar á Suðurlandi og nýtur
hún aðstoðar tæknideildar lögregl-
unnar á höfuðborgarsvæðinu, sam-
kvæmt fréttum mbl.is.
Teknar hafa verið skýrslur af
vitnum og af ökumanni vöru-
bifreiðarinnar. Hann, ásamt far-
þega sem einnig var í bílnum, var
fluttur til aðhlynningar á sjúkra-
húsi en meiðsl þeirra eru ekki al-
varleg.
Lyngdalsheiði er á milli Laug-
arvatns og Þingvalla.
Morgunblaðið/Júlíus
Árekstur Karl og kona létu lífið á
Lyngdalsheiðinni í gær.
Banaslys á
Lyngdals-
heiðarvegi
Ljósmynd/Guðlaugur Albertsson
Flaggað Vestfirðingar tóku tíð-
indum gærdagsins afar vel.