Morgunblaðið - 09.03.2018, Síða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2018
LED lausnir frá
Lýsing fyrir götur,
göngustíga og bílastæði.
Ráðgjöf og nánari upplýsingar
má fá hjá sölumönnum.
Smart City
lausnir
Jóhann Ólafsson & Co.
Krókháls 3, 110 Reykjavík
533 1900
sala@olafsson.is
í skóla. Aðeins á fáeinum stöðum í
heiminum er skák kennd í leikskóla,
þetta er alveg nýtt og sé ég að börnin
eru mjög öguð,“ sagði Polgar.
Hún bætir við að „það er mjög mik-
ilvægt fyrir stelpurnar að fá tækifæri
til þess að sýna hvað þær geta. Strák-
ar eru oftar hvattir til þess að tefla og
er ég mjög glöð að sjá stelpur fá
svona tækifæri“.
Afrakstur 10 ára vinnu
Skákkennsla við Laufásborg hefur
verið 10 ára þróunarverkefni, en
varaformaður Skáksambandsins,
Omar Salama, hefur séð um skák-
kennsluna. „Við héldum að þetta
myndi kannski bara snúast um að
læra mannganginn en þau eru ótrú-
lega fljót að fara að tefla. Þetta er af-
rakstur 10 ára vinnu,“ segir Matt-
hildur Hermannsdóttir
leikskólastjóri. gso@mbl.is
Susan Polgar stórmeistari heimsótti í
gær ungar skákstúlkur í leikskól-
anum Laufásborg. Polgar, sem er
margfaldur heimsmeistari og var
fyrst kvenna til að komast á HM
karla árið 1986, hitti stúlkurnar í
skákstofu leikskólans, þar sem hún
fylgdist með þeim tefla. Einnig leiddi
hún þær í stuttri kennslustund og
tóku stúlkurnar vel eftir og voru
„einbeittar“ að sögn hennar.
Fjórar leikskólastúlkur eru á leið á
HM grunnskóla í skák í Albaníu í apr-
íl, eins og sagt var frá á mbl.is á mið-
vikudaginn, og er þetta fyrsta skipti í
skáksögunni að leikskólabörn taka
þátt.
„Ég hef séð mjög ung börn tefla,
enda byrjaði ég sjálf fjögurra ára.
Það sem er merkilegt í þessu tilfelli
er að skák fyrir þennan aldurshóp
hefur yfirleitt verið kennd í heima-
húsum, en hér er verið að kenna skák Morgunblaðið/Gunnlaugur
Susan Polgar, stórmeistari í skák, hittir unga HM-fara
Glöð að sjá stelpur
fá svona tækifæri
Magnús Heimir Jónasson
Erna Ýr Öldudóttir
Haukur Hilmarsson var skotinn til
bana af tyrkneska flughernum og lík-
ið er í höndum tyrkneska hersins skv.
heimildum frá Afrin-héraði.
Mohammed Hassan, Kúrdi og
blaðamaður í Sýrlandi, sóttist eftir að
fá staðfestar fregnir af andláti Hauks
og skv. heimildum hans frá hátt sett-
um félaga innan vopnaðra sveita
Kúrda (YPG), féll Haukur ásamt
tveimur arabískum YPG-liðum í skot-
árás. Reyndu liðsmenn YPG að kom-
ast að honum en urðu að hörfa frá.
Lík Hauks sé nú í höndum tyrkneska
hersins. Fljótlega standi til að skipta
á líkum tyrkneskra hermanna og
YPG-liða, þ.á m. líki Hauks.
„Við höfum áreiðanlegar heimildir
fyrir því að YGP telji hann af og vit-
um nokkuð nákvæmlega hvar hann
féll en við vitum ekki ennþá hvar líkið
er. Kúrdar komast ekki inn á árás-
arsvæðið til þess að leita en það hefur
verið leitað á öllum sjúkrahúsum í
borginni og hann hefur ekki fundist. Í
tyrkneskum fjölmiðlum hefur komið
fram að Tyrkir séu með líkið og að
það verði sent heim, en það hefur
enginn haft samband við íslensk yfir-
völd vegna þess og þetta gæti verið
byggt á sögusögnum eða hreinlega
áróðursbragð. Það er allt eins líklegt
að hann hafi grafist undir rústum,“ er
haft eftir Evu Hauksdóttur, móður
hans.
Fjölskyldan átti fund með utanrík-
isráðuneytinu og lögreglu í dag, en
þar fengust engar viðbótarupplýsing-
ar, að sögn Evu.
Haraldur Johannessen ríkislög-
reglustjóri sagði embætti hans vera
að vinna í málinu og hafa leitað til er-
lendra samstarfsaðila en hafi ekki
fengið staðfestingu á láti Hauks.
Sveinn Guðmarsson, upplýsinga-
fulltrúi utanríkisráðuneytisins, sagði
engar formlegar upplýsingar hafa
borist um andlát Hauks. Enn væri því
ekki hægt að byrja að reyna að fá
tyrknesk stjórnvöld til að afhenda lík-
amsleifar hans, en ræðismaður Ís-
lands í Tyrklandi væri að vinna í mál-
inu sem nyti algers forgangs.
Talinn hafa fallið í skotárás flughersins
Stjórnvöld geta enn ekki staðfest lát
hans Tyrkneski herinn með líkið
Skjáskot/Youtube-IFB
Haukur Hilmarsson Eins og hann birtist á myndbandi á Youtube.
Hagstofan hefur í samstarfi við Jafn-
réttisstofu og velferðarráðuneytið
sent frá sér bæklinginn Konur og
karlar á Íslandi 2018. Þar eru teknar
saman ýmsar upplýsingar sem gefa
vísbendingar um stöðu kvenna og
karla í samfélaginu.
Meðal þess sem fram kemur í bækl-
ingnum er að hlutur kvenna við stjórn
fyrirtækja fer minnkandi eftir því sem
fyrirtækin verða stærri. Eru þær töl-
ur frá árinu 2016 og sýna að fram-
kvæmdastjórar fyrirtækja með 1-49
starfsmenn eru í ríflega 20% tilvikum
konur. Hlutfallið var 12-13% í með-
alstórum fyrirtækjum, með 50 til 249
starfsmenn. Í fyrirtækjum með meira
en 250 starfsmenn voru tæplega 10%
framkvæmdastjóra konur. Hlutur
kvenna í stjórnum fyrirtækja fer hins
vegar vaxandi eftir því sem fyrirtækin
eru stærri, eða frá 26% og upp í 39%.
Færri konur eru stjórnarformenn.
Neðra kortið sýnir hlut kynjanna í
ýmsum áhrifastöðum í þjóðfélaginu.
Hæstur er hlutur kvenna í opinberum
nefndum og ráðum, eða um 45%. Af
átta hæstaréttardómurum er aðeins
ein kona en konur voru 43% héraðs-
dómara í árslok 2017. Konur eru nú
38% þingmanna, svo dæmi sé tekið.
Hlutfall kvenna í áhrifastöðum
0% 10% 20% 30% 40% 50% 60% 70% 80%
Opinberar nefndir og ráð (2016)
Ráðherrar (febr. 2018)
Sveitarstjórnarmenn, kjörnir (2014)
Héraðsdómarar (des. 2017)
Félög blaða- og fréttam., félagsmenn (2016)
Forstöðumenn ríkisstofnana ( jan. 2018)
Alþingismenn, kjörnir (2017)
Framkvæmdastjórar fyrirtækja (2016)
Framkvæmdastjórar sveitarfélaga (jan. 2017)
Hæstaréttardómarar (des. 2017)
Heimild: Hagstofan
Því stærri fyrirtæki því
færri konur sem stjórna
Nýr bæklingur
um hlut kynjanna
Hlutfall kvenna í forystu fyrirtækja
Eftir stærð fyrirtækja 2016
50%
40%
30%
20%
10%
0%
Framkvæmdastjórar Stjórnarformenn Stjórnarmenn
1-49 starfsmenn 50-99 starfsmenn 100-249 starfsmenn 250+ starfsmenn
Heimild: Hagstofan
Hæstiréttur vís-
aði frá kröfu Vil-
hjálms H. Vil-
hjálmssonar
lögmanns um að
Arnfríður Ein-
arsdóttir lands-
réttardómari
viki sæti í máli
umbjóðanda síns
sem rekið er fyr-
ir Landsrétti
sökum vanhæfis.
Arnfríður hafði áður ásamt
tveimur öðrum landsréttardóm-
urum, úrskurðað að hún væri ekki
vanhæf. Var kröfum Vilhjálms
hafnað og kærði hann þá úrskurð-
inn til Hæstaréttar.
Taldi Hæstiréttur að ekki hefði
verið kæruheimild skv. lögum á
niðurstöðu Landsréttar út frá
ágreiningsefninu. Dómurinn hefur
enn ekki verið birtur á vef Hæsta-
réttar en Vilhjálmur staðfesti nið-
urstöðuna í samtali við mbl.is.
Vanhæfiskröfu vísað
frá af Hæstarétti
Vilhjálmur
Hans Vilhjálmsson