Morgunblaðið - 09.03.2018, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2018
Ræðum málefnin!
Á morgun, laugardaginn 10. mars, standa málefnanefndir
Sjálfstæðisflokksins fyrir sérstökum málefnadegi í Valhöll,
frá kl. 13:30-17:00.
Þar gefst flokksmönnum tækifæri til að taka þátt í um-
ræðum og stefnumótun um fyrirliggjandi drög að ályktun-
um í einstaka málaflokkum fyrir landsfund. Þau er að finna
á vef flokksins á www.xd.is, en senda má breytingartillögur
á netfangið malefnanefndir@xd.is fram að landsfundi.
DAGSKRÁ MÁLEFNADAGSINS
13:30 – 15:00
■ Atvinnuveganefnd
■ Efnahags- og viðskiptanefnd
■ Fjárlaganefnd
■ Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
15:30 – 17:00
■ Allsherjar og menntamálanefnd
■ Umhverfis og samgöngunefnd
■ Utanríkismálanefnd
■ Velferðarnefnd
Léttar veitingar í boði í lok dags.
MÁ L E F N A DAG U R S J Á L F S TÆÐ I S F L O K K S I N S
Vilt þú starfa í stjórn málefnanefndar?
Minnt er á að frestur til að skila framboðum í stjórnir málefna-
nefndanna rennur út kl. 17:00 mánudaginn 12. mars nk. Vakin
er athygli á því að allir flokksmenn geta boðið sig fram, óháð
því hvort þeir sitja landsfund. Framboðum skal skila gegnum
www.xd.is.
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Ákveðnir hópar launafólks hafa setið
eftir í launum og eru með mjög lág
laun samanborið við aðra. Þetta er ein
meginskýringin á
þeim umbrotum
sem eiga sér nú
stað í verkalýðs-
hreyfingunni,
sigri Sólveigar
Önnu Jónsdóttur í
formannskosning-
unni í Eflingu og
einnig í kjöri
Ragnars Þórs
Ingólfssonar til
formanns í VR í
fyrra. Þetta er mat Gylfa Dalmanns
Aðalsteinssonar, vinnumarkaðssér-
fræðings og dósents við Háskóla Ís-
lands.
Gylfi segir að yfir lengri tíma litið
hafi verkalýðshreyfingin náð miklum
árangri í kjarabótum, auknum kaup-
mætti launa og uppbyggingu m.a.
mjög öflugra fræðslusjóða og starfs-
menntasjóða. ,,Hins vegar er alveg
ljóst að menn hafa vanrækt lægstu
hópana. Þessir hópar hafa setið eftir
og bilið breikkar á milli lægstu hóp-
anna og annarra hópa.“
Gylfi bendir hins vegar á að VR og
Efling eru um margt mjög ólík félög.
Samsetning félagsmanna í VR með
sína 32 þúsund félagsmenn er mjög
frábrugðin Eflingu. Í VR eru ólíkir
hópar, fjöldi sérfræðinga og stjórn-
enda á háum meðallaunum á sama
tíma og stórir hópar ungs fólks, af-
greiðslufólks og lagerstarfsmanna eru
á mjög lágum launum. Um 6.800
manns svöruðu í seinustu launakönn-
un VR og þar mátti sjá að tæplega
1.900 titluðu sig sem stjórnendur og
1.400 sem sérfræðinga að sögn hans.
Þessir hópar eru mun ólíklegri til að
fallast á verkföll og herská átök en
lægst launuðu hóparnir að mati hans.
Þá hefur VR allt frá árinu 2000 lagt
áherslu á markaðslaun til viðbótar um-
sömdum kjarabótum. „Þegar ég var að
vinna hjá VR gerðum við könnun sem
leiddi í ljós að um 4% VR-félaga fengu
greidd laun eftir taxta. Hinir voru með
svokölluð markaðslaun,“ segir Gylfi.
Þessar andstæður endurspeglist í um-
ræðunni í verkalýðshreyfingunni. ,,Ég
held að það ætti hreinlega að vera
þjóðarsátt um að lyfta lægstu launun-
um,“ segir hann.
Spurður hvort hann telji hljóm-
grunn fyrir verkföllum segir Gylfi að
þó að meirihluti hafi stutt boðun verk-
falls þegar seinast var kosið um það í
VR í maí 2015 hafi ekki verið afgerandi
stuðningur við það. Fleiri voru hins
vegar hlynntir því í verkfallskosningu í
Eflingu. VR hefur ekki farið í verkfall í
30 ár.
Umræða er komin upp innan laun-
þegahreyfingarinnar um hvort hallar-
byltingar í stéttarfélögum kunni að
leiða til þess að ASÍ liðist í sundur og
slitna muni upp úr samvinnu félaga.
Að sögn Gylfa skiptir það launafólk
miklu máli að hafa sameinaða og sam-
stiga verkalýðshreyfingu. „Sundur-
lyndi eða ósamstiga verkalýðshreyf-
ing er bara vatn á myllu
vinnuveitenda.“
Hafa vanrækt lægstu hópa launafólks
Sundurlyndi og ósamstiga verkalýðs-
hreyfing er vatn á myllu vinnuveitenda
Gylfi Dalmann
Aðalsteinsson
Seinasta launakönnun sem Gall-
up gerði í fyrrahaust innan Efl-
ingar og í öðrum Flóafélögum
varpar ljósi á ólík kjör, viðhorf
og aðbúnað félagsmannanna.
Könnunin leiddi í ljós að leið-
beinendur á leikskólum eru með
lægstu heildarlaunin eða 354
þúsund kr. á mánuði að með-
altali og þar er vinnuálagið
mest.
Starfsmenn sem vinna við
ræstingar eru með lægstu dag-
vinnulaunin eða 328 þús. kr. en
skrifstofufólk, stjórnendur og
sérfræðingar með hæstu heild-
arlaunin eða 579 þúsund kr. að
meðaltali.
30% félagsmanna í Eflingu
sögðust vera sátt við laun sín en
43% eru ósátt. Þar af sögðust
12% vera mjög ósátt við laun
sín. 27% svöruðu þessu hvorki
né. 11,8% hafa mjög miklar
áhyggjur af fjárhagsstöðu sinni
og 22,4% frekar miklar áhyggjur
en 35% félagsmanna hafa litlar
sem engar fjárhagsáhyggjur.
8% óánægð með
þjónustu Eflingar
Í kosningabaráttunni til stjórnar
Eflingar kom fram gagnrýni á
starfsemi stéttarfélagsins. Í
könnun Gallup voru félagsmenn
spurðir hvort þeir væru ánægðir
eða óánægðir með þjónustu
stéttarfélagsins á heildina litið.
56% Eflingarfélaga sögðust vera
ánægðir með þjónustuna, 36%
svöruðu hvorki né en 6% voru
frekar óánægðir og 2% voru
mjög óánægðir með þjónustu fé-
lagsins.
12% mjög ósátt við laun sín
KÖNNUN GALLUP SÝNDI KJÖR OG VIÐHORF FÉLAGSMANNA
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Titringur er innan verkalýðshreyf-
ingarinnar eftir sigur B-lista Sól-
veigar Önnu Jónsdóttur í Eflingu og
óvissa um hvaða breytingar gætu
verið í farvatninu á vettvangi ASÍ
og um samstarf stéttarfélaga.
Sólveig Anna, sem tekur við for-
mennskunni 26. apríl, Ragnar Þór
Ingólfsson, formaður VR, og Vil-
hjálmur Birgisson, formaður Verka-
lýðsfélags Akraness, ætla að funda í
dag og stilla saman strengi. Er ekki
útilokað skv. heimildum Morgun-
blaðsins að Aðalsteinn Á. Baldurs-
son, formaður Framsýnar, mæti
einnig til þess fundar. Sameiginlega
er vægi þessara félaga 53% á vett-
vangi ASÍ.
Spurningar hafa einnig vaknað
um hvort framhald verður á ára-
löngu samstarfi verkalýðsfélaganna
sem mynda Flóabandalagið, Efl-
ingar, Hlífar, VSFK og StéttVest.
Kolbeinn Gunnarsson, formaður
Hlífar, tekur þó ekki undir að það
muni líða undir lok. Nokkur tími sé
þar til nýr formaður taki við í Efl-
ingu, sem eigi eftir að setja sig inn í
málin. Hann segir Flóafélögin vera
með marga sameiginlega samninga.
Kolbeinn segir að nú þegar fyrir
liggur að kjarasamningum var ekki
sagt upp eigi menn sem fyrst að
setjast yfir undirbúning að end-
urnýjun kjarasamninga og hafa
kröfur tilbúnar fyrir haustið. Gott
væri ef hægt yrði að ljúka gerð
samninga fyrir áramót. Að mati
Kolbeins er umræðan um norrænt
samningamódel úr sér gengin og ef
menn vilji enn fara þá leiðina ætti
að byrja hana upp á nýtt.
Forysta Samiðnar telur að stétt-
arfélögin eigi að draga lærdóm af
kosningunni í Eflingu. Í pistli á vef-
síðu landssambandsins segir að
stéttarfélögin eigi að taka niður-
stöðu kosningarinnar í Eflingu al-
varlega. Hún hafi víðtæka þýðingu
fyrir verkalýðshreyfinguna í heild.
,,Þessi niðurstaða hlýtur að kalla
á að fólk innan stéttarfélaganna
setjist niður og endurmeti hlutina.
Það er ekki hægt að túlka þessa nið-
urstöðu með öðrum hætti en að
grasrótin sé að kalla á breytt vinnu-
brögð.
Spurningar blasa við. Getur verið
að forysta félaganna hafi verið of
upptekin við að byggja upp stofn-
anaþáttinn á kostnað samtalsins
innan félaganna og hlustunar? Í ein-
hverjum fræðum stendur að í dag-
legu starfi leiðtogans felist 2/3 í að
hlusta og 1/3 að tala,“ segir þar.
Mikilvægt sé að fara ekki í skot-
grafir heldur nota niðurstöðuna sem
vegvísi að nýrri nálgun.
Guðmundur Ragnarsson, formað-
ur VM, sem fengið hefur mót-
framboð í formannskjöri í vor, hefur
uppi efasemdir um samflot og sam-
starf milli félaga í nýjum pistli á
síðu félagsins. Framundan sé ærið
verkefni að móta kröfur og velta
fyrir sér landslaginu sem er innan
verkalýðshreyfingarinnar. ,,Með
hverjum getum við unnið? Eru sam-
bönd eða félög að fara saman?
Hugsanleg gæti niðurstaða okkar
orðið sú að okkar kröfur samrýmist
ekki hugmyndafræði annarra. VM
mun þá láta á það reyna að fara
fram eitt sér og á eigin forsendum.
Reynsla VM af samfloti með öðr-
um félögum í kjaraviðræðum er
ekki góð.“
Skjálfti í hreyfingunni
en varað við skotgröfum
Grasrótin kalli á breytt vinnubrögð
Morgunblaðið/Árni Sæberg
1. maí Samiðn vill taka umræðu um framtíð stéttarfélaga og starfshætti.