Morgunblaðið - 09.03.2018, Page 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2018
Hildur Símonardóttir, hönnuður og bókari, á 60 ára afmæli ídag.Hún rekur Hidda Design og býr til glerskartgripi. „Þem-
að mitt er íslensk náttúra, norðurljós, ís og eldur. Þetta allt kemur
fram í mínum skartgripum og mér finnst mjög gaman að blanda
saman hrauni og gleri.“
Hildur selur skartgripina í Kolaportinu og á Lækjartorgi. „Lækj-
artorg er mitt annað heimili á sumrin. Útlendingarnir eru mjög
hrifnir af skartgripunum, en þeir vilja fá norðurljósin heim til sín.“
Hildur er einnig með bókhaldsþjónustu. „Það er mjög gott að
geta sinnt þessu hvoru tveggja og svona ólíkum hlutum, verið í
bókhaldinu og hlaupið svo í listina.“
Auk bókhaldsins og skartgripagerðarinnar hefur Hildur gaman
af því að ferðast. „Ég vinn svolítið mikið í einu og get svo hoppað
burt í smá tíma. Ég var að koma frá Kanaríeyjum en ég er mikið
þar.
Hildur ætlar að halda upp á afmælið með fjölskyldu sinni og nán-
ustu vinum á morgun. „Vinkona mín frá útlöndum er hér hjá mér
núna svo það getur vel verið að við förum út að borða í kvöld og
skálum í tilefni dagsins.“
Sonur Hildar er Davíð Þór, rafeindatæknifræðingur hjá Starodda
og tónlistarmaður.
Listamaðurinn Hildur stödd á Lækjartorgi með skartgripina.
Norðurljósaþema
í skartgripunum
Hildur Símonardóttir er sextug í dag
Þ
orgeir V. Þórarinsson
fæddist í Viðfirði í
Norðfjarðarhreppi 9.3.
1933 og ólst þar upp.
Hann lauk vélstjóra-
prófi í Neskaupstað 1957, lærði
múrverk í Keflavík á árunum 1969-
73 og lauk þar sveinsprófi í þeirri
iðngrein.
Þorgeir bjó í Viðfirði til ársins
1955 en þá lagðist byggð þar af.
Fjölskyldan flutti í Naustahvamm
á æskuheimili Guðna, fóstra hans,
og þar bjó Þorgeir þar til hann
flutti í sitt eigið hús í Neskaup-
stað, árið 1970, sem hann byggði
sjálfur.
Þorgeir var á vetrarvertíðum á
flestum höfnum sunnanlands og
stundaði sjómennsku og vélstjórn
á árunum 1957-68. Hann hefur
lengst af unnið við sjómennsku og
Þorgeir V. Þórarinsson, vélstjóri og múrari í Neskaupstað – 85 ára
Bærinn í Viðfirði Jörðin er mjög afskekkt og þaðan gengu mergjaðar draugasögur, en þar er mikil náttúrufegurð.
Hagyrðingur og
hestamaður frá Viðfirði
Fjölskyldan Þorgeir með systkinum sínum, móður og fóstra sínum, Guðna.
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið
af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti,
hreysti og vellíðan.
Síðustu TT námskeið
vetrarins hefjast
11. mars!
Fundur fyrir alla hópa kl. 17:00
20%
VORAFSLÁ
TTUR!
Erum að
innrita
núna!
Nú er ekki eftir neinu að bíða!
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu
mynd af nýjum borgara eða
mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í
einn mánuð.
Hægt er að senda mynd
og texta af slóðinnimbl.
is/islendingar eða á
islendingar@mbl.is
Á „Íslendinga“ síðum
Morgunblaðsins er
meðal annars sagt frá
merkum viðburðum
í lífi fólks, svo sem
hjónavígslum,
barnsfæðingum
eða öðrum
tímamótum.