Morgunblaðið - 09.03.2018, Qupperneq 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2018
Indverski arkitektinn Balkrishna
Doshi hlýtur hin virtu Pritzker-
verðlaun í ár, en þau eru ein virtasta
viðurkenning sem veitt er á sviði
arkitektúrs.
Doshi, sem er níræður, starfaði
með svissneska arkitektinum Le
Corbusier og hafði yfirumsjón með
hönnun hans á borginni Chandigarh
í norðurhluta Indlands sem var
fyrsta borgin sem byggðist upp eftir
að Indland hlaut sjálfstæði 1947.
Doshi er þekktur fyrir að vinna að
hagkvæmum húsnæðislausnum og
varð einn áhrifamesti arkitekt í
heimalandi sínu eftir að Indland öðl-
aðist sjálfstæði. Doshi er fyrsti Ind-
verjinn sem hlýtur Pritzker-
verðlaunin sem veitt hafa verið frá
árinu 1979.
„Balkrishna Doshi hefur alltaf
skapað alvarlegan arkitektúr, sem
er laus við íburð eða eltist við
tískuna,“ segir í umsögn dómnefnd-
ar verðlaunanna. Þar kemur fram
að hönnun hans búi yfir „djúpri til-
finningu fyrir ábyrgð og löngun til
að leggja sitt af mörkum fyrir föð-
urlandið og íbúa þess með ekta há-
gæðaarkitektúr“.
Doshi fæddist 1927 inn í fjölskyldu
sem fengist hafði við húsgagnagerð í
tvær kynslóðir. Hann lærði arkitekt-
úr í Mumbai áður en hann fluttist til
Parísar 1951 til að vinna fyrir Le
Corbusier og sneri aftur til Indlands
Balkrishna Doshi hlýtur Pritzker-verðlaunin í ár
AFP
Þakklátur Balkrishna Doshi.
1954 til að hafa yfirumsjón með
hönnunarverkum lærimeistara síns.
„Ég get þakkað læriföður mínum,
Le Corbusier, fyrir að hafa hlotið
þessi virtu verðlaun,“ sagði Doshi
þegar hann frétti af verðlaununum.
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það hefur verið afskaplega lær-
dómsríkt og gefandi ferli að vinna
plötuna, prófa alls konar hugmyndir
og leggja svo lokahönd á verkið. Ég
hlakka mikið til að leyfa fólki að
heyra útkomuna,“ segir tónlistar-
konan Hildur Vala sem heldur út-
gáfutónleika í Salnum í kvöld kl.
20.30 til að fagna útkomu þriðju
plötu sinnar, Geimvísindi.
Hildur Vala vakti fyrst athygli
2005 þegar hún sigraði í Idol
Stjörnuleit. Í framhaldinu sendi hún
frá sér tvær plötur, Hildur Vala 2005
og Lalala 2006, en dró sig síðan úr
sviðsljósinu til að sinna tónlistar- og
háskólanámi ásamt barneignum.
„Ég menntaði mig í grunnskóla-
kennslufræði og lauk meistaraprófi
sem tónmenntakennari. Auk þess
lærði ég söng, hljómfræði og teoríu í
Tónlistarskóla FÍH.“
Datt í lukkupottinn
Tólf ár eru síðan Hildur Vala
sendi frá sér síðustu plötu sína, en
nýja platan sker sig frá fyrri plötum
hennar að því leyti að hún inniheldur
aðeins frumsamið efni eftir Hildi
Völu sjálfa. „Ég samdi einnig tvo
texta, en fékk síðan til liðs við mig
textahöfundana Dag Hjartarson,
Hjalta Þorkelsson og Skúla Jóns-
son,“ segir Hildur Vala og bendir á
að lögin hafi fæðst fyrst og síðan
textarnir. „Ég er afar ánægð með
hvað þeir hafa góða tilfinningu fyrir
tónlistinni og hvað textarnir syng-
jast vel, því það er ákveðin áskorun
að setja íslenskan texta við tilbúið
lag enda þarf að huga vel að fraser-
ingunni. Mér finnst ég hafa dottið í
lukkupottinn að hafa fengið svona
góða textahöfunda til liðs við mig.“
Aðspurð segist Hildur Vala hafa
samið megnið af lögunum á síðustu
árum, en önnur séu eldri. „Mér
fannst að ég yrði að koma efninu frá
mér, því ég var komin með svo ansi
góðan lagabunka. Mér fannst ég
ekki endalaust geta haldið áfram að
semja fyrir skúffuna. Mér fannst ég
verða að henda þessu út í kosmósið
til að geta haldið áfram og valdi því
að ofhugsa ekki hlutina eða liggja of
lengi yfir þeim,“ segir Hildur Vala
og tekur fram að ekki muni líða önn-
ur 12 ár þar til hún sendir næst frá
sér nýtt efni.
„Nú er ég komin á bragðið, enda
er svo einstaklega skemmtilegt að
vinna að eigin tónlist,“ segir Hildur
Vala sem tók virkan þátt í upptöku-
ferlinu og eftirvinnslu. „Næst langar
mig að gera ennþá meira sjálf, vinna
sjálf í tónlistarforritunum og fikta
meira í tækninni,“ segir Hildur Vala
og tekur fram að sér hafi þótt nauð-
synlegt að vera með puttana í öllu í
ljósi þess að hún væri með eigið efni.
„Það er svo miklu skemmtilegra
að vera með eigið efni. En manni
stendur ekki á sama um hvernig það
er unnið og sett fram,“ segir Hildur
Vala. Spurð hvort því fylgi meira
stress svarar hún því neitandi. „Nei,
alls ekki. Í starfi mínu sem tónlistar-
kennari, meðal annars á vegum
Stelpur rokka, legg ég mikla áherslu
á að fólk í tónlisti eigi ekki að hugsa
of mikið um viðtökurnar og við-
brögðin. Ég hvet nemendur, ekki
síst stelpur sem skortir stundum
sjálfstraust, til að kýla á hlutina og
vera ekki að ofhugsa málið. Full-
komnunaráráttan skilar engu heldur
kemur bara í veg fyrir að farið sé af
stað,“ segir Hildur Vala og tekur
fram að ungt tónlistarfólk veiti
henni mikinn innblástur. „Mér
finnst ungt tónlistarfólk oft vera
frumlegt í hugsun og sýna nauðsyn-
lega dirfsku,“ segir Hildur Vala og
bætir við að gróskan í íslenskri tón-
list sé mikil.
Aðspurð hvernig hún myndi lýsa
tónlist plötunnar segir Hildur Vala
hana vera ljúfsára með nettum
trega. „Í hljóðheimi laganna legg ég
mikla áherslu á röddina, þótt söng-
urinn sjálfur sé nokkuð látlaus.
Þetta er hugguleg stemning með
smá töff ívaf, örlítill blús.“
Listafólk í miklu uppáhaldi
Á tónleikunum í kvöld verður efni
plötunnar í fyrsta sinn flutt í heild
sinni auk þess sem nokur lög af eldri
plötunum fá að fljóta með. „Ég
hlakka til að leika öll tíu lög plöt-
unnar á einum og sömu tónleikum
og frumflytja stærstan hluta lag-
anna,“ segir Hildur Vala. Hljómsveit
kvöldins skipa Birgir Baldursson á
trommur, Stefán Már Magnússon á
gítar, Andri Ólafsson á bassa, Jón
Ólafsson á hljómborð, Grímur
Helgason á klarínett og Vilhjálmur
Guðjónsson á saxófón, sem allir
(nema Vilhjálmur) leika á plötunni
ásamt þeim Sigurði Flosasyni á
saxófón og Þórdísi Gerði Jónsdóttur
á selló. Sérstakir gestir á tónleik-
unum verða söngvaskáldið Svavar
Knútur, ljóðskáldið Dagur Hjartar-
son og Hljómsveitin Eva. „Mig lang-
aði til að fá til liðs við mig listafólk
sem er í miklu uppáhaldi hjá mér til
þess að vera með á þessari sjálfs-
hátíð, sem svona útgáfutónleikar eru
óhjákvæmilega,“ segir Hildur Vala
kímin. Hljómsveitin Eva mun leika
eigið efni, en Hildur Vala og Svavar
Knútur taka lagið, en hann samdi
einmitt titillag plötunnar Lalala.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Tækni „Næst langar mig að gera ennþá meira sjálf, vinna sjálf í tónlistarforritunum og fikta meira í tækninni,“ seg-
ir tónlistarkonan Hildur Vala, sem tók á móti ljósmyndara blaðsins á æfingu með hljómsveit sinni fyrr í vikunni.
„Ég hlakka mikið til
að leyfa fólki að heyra“
Hildur Vala fagnar nýrri plötu í Salnum í kvöld kl. 20.30
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fös 16/3 kl. 20:00 Frums. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Lau 28/4 kl. 20:00 25. s
Sun 18/3 kl. 20:00 2. sýn Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 26. s
Mið 21/3 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Fim 3/5 kl. 20:00 27. s
Fim 22/3 kl. 20:00 aukas. Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Fös 4/5 kl. 20:00 28. s
Fös 23/3 kl. 20:00 3. s Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Lau 5/5 kl. 20:00 29. s
Lau 24/3 kl. 20:00 4. s Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s
Sun 25/3 kl. 20:00 5. s Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Þri 8/5 kl. 20:00 31. s
Þri 27/3 kl. 20:00 aukas. Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s
Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Fös 11/5 kl. 20:00 33. s
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Lau 12/5 kl. 16:00 34. s
Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s
Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Fös 9/3 kl. 20:00 135. s Lau 17/3 kl. 20:00 138. s Mið 12/9 kl. 20:00 141. s
Lau 10/3 kl. 20:00 136. s Fös 7/9 kl. 20:00 139. s Fim 13/9 kl. 20:00 142. s
Sun 11/3 kl. 20:00 137. s Sun 9/9 kl. 20:00 140. s Sun 16/9 kl. 20:00 143. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Fös 9/3 kl. 20:00 59. s Lau 10/3 kl. 20:00 60. s Sun 11/3 kl. 20:00 Lokas.
Allra síðustu aukasýningar komnar í sölu.
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Fös 13/4 kl. 20:00 Frums. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Sun 29/4 kl. 20:00 10. s
Lau 14/4 kl. 20:00 2. s Sun 22/4 kl. 20:00 6. s Mið 2/5 kl. 20:00 11. s
Sun 15/4 kl. 20:00 3. s Mið 25/4 kl. 20:00 7. s Fim 3/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 8. s Fös 4/5 kl. 20:00 12. s
Fim 19/4 kl. 20:00 4. s Fös 27/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 13. s
Fös 20/4 kl. 20:00 5. s Lau 28/4 kl. 20:00 9. s Sun 6/5 kl. 20:00 14. s
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Lau 24/3 kl. 20:00 Frums. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s
Sun 25/3 kl. 20:00 2. s Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s
Þri 27/3 kl. 20:00 3. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s
Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Lau 21/4 kl. 20:00 18. s
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Sun 22/4 kl. 20:00 19. s
Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Fim 26/4 kl. 20:00 20. s
Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Fös 27/4 kl. 20:00 21. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Fös 9/3 kl. 19:30 6.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 12.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 Auka
Lau 10/3 kl. 16:00 5.sýn Fös 6/4 kl. 19:30 Auka Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn
Lau 10/3 kl. 19:30 7.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn
Lau 17/3 kl. 19:30 8.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn
Sun 18/3 kl. 19:30 9.sýn Fim 12/4 kl. 19:30 Auka Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn
Fös 23/3 kl. 19:30 10.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn
Lau 24/3 kl. 19:30 11.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Fim 15/3 kl. 19:30 Auka Fös 16/3 kl. 19:30 Síðustu
Síðustu sýningar komnar í sölu
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 11/3 kl. 13:00 Síðustu
Síðustu sýningar komnar í sölu
Faðirinn (Kassinn)
Fim 15/3 kl. 19:30 26.sýn Lau 24/3 kl. 19:30 28.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 30.sýn
Fös 16/3 kl. 19:30 27.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 29.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 31.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Efi (Kassinn)
Fös 9/3 kl. 19:30 16.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 18.sýn Mið 21/3 kl. 19:30 20.sýn
Sun 11/3 kl. 19:30 Auka Sun 18/3 kl. 19:30 19.sýn Fim 22/3 kl. 19:30 21.sýn
Margverðlaunað og spennandi verk !
Ég get (Kúlan)
Sun 11/3 kl. 13:00 14.sýn Sun 18/3 kl. 13:00 15.sýn Sun 25/3 kl. 13:00 Síðasta
Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00
Fim 22/3 kl. 20:00 Fesival Mið 18/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fös 9/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 20:00
Fös 9/3 kl. 22:30 Lau 10/3 kl. 22:30
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?