Morgunblaðið - 14.03.2018, Page 12
Kennsla Mohamed Sesay, einn af aðalvefurunum í
Brama Town, sýnir Snæbirni Stefánssyni veftæknina.
Snæbjörn er í hönnunarteyminu 1+1+1 og einnig í
íslenska hönnunardúóinu Hugdetta.
Í verkefninu Sweet Salone mætast
tveir heimar, íslensk hönnun og afr-
ískt handverk. Afraksturinn er sam-
bland af þeirri gleði, von, lærdómi og
vináttu sem verkefnið hefur gefið af
sér. Í dag, miðvikudag 14. mars, kl 17
verður nýjasti hluti verkefnisins
Sweet Salone kynnt í Mengi, Óðins-
götu 2, í Reykjavik. Þar verður fagnað
litríku samstarfi hönnunarteymisins
1+1+1 við handverksfólk í Sierra
Leone. Í tilkynningu kemur fram að
1+1+1 sé samstarfsverkefni hönn-
unarteymisins Hugdettu frá Íslandi,
Aalto+Aalto frá Finnlandi og hönn-
uðarins Petru Lilju frá Svíþjóð.
„Við trúum því að í gegnum samtal
og samvinnu verði til þekking og
skilningur sem víkkar sjóndeildar-
hringinn og stuðlar að bættum lífs-
kjörum fólks.“ Vefarar í þorpinu
Brama Town í Sierra Leone hafa verið
að vefa vörur hannaðar af 1+1+1 og
lært heilmikið í ferlinu. Þau nota
bambus sem þau sækja út í náttúr-
una í kringum þorpið og vefa aðallega
körfur hversdags sem þau selja við
veginn. Verkefnið er unnið að frum-
kvæði Auroru velgerðarsjóðs sem
síðastliðin 11 ár hefur stutt við upp-
byggingu í Sierra Leone. Sjóðurinn
hefur einnig stutt við íslenska hönn-
un í gegnum Hönnunarsjóð Auroru.
Samstarfsverkefnið Sweet Salone
Íslensk hönnun og afrískt handverk mætast
Ljósmynd/Olivia Acland
Ljósmynd/Michael Duff
Hópur Hluti af vefurum þorpsins Brama Town með lampa-
skerma sem þau hafa verið að gera fyrir verkefnið.
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2018
Léttir í lund Strákarnir í Barbara eru lífsglaðir og góðir vinir, alveg til í að halda hver á öðrum ef svo ber undir.
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Við kynntumst allir í kórnumí Menntaskólanum íReykjavík þegar Kári Þor-mar dómorganisti var að
stjórna honum. Á lokaári okkar í MR
stofnuðum við kvartettinn Barbara
til þess eins að taka þátt í Söng-
keppni framhaldsskólanna vorið
2014. Þá söng Pétur Björnsson bass-
ann með okkur en hann var lærð-
astur af okkur í tónlist og leiddi okk-
ur. Eftir útskrift fór Pétur af landi
brott til fiðlunáms og þá fór kvart-
ettinn í dvala um tíma. En okkur
langaði til að halda áfram að syngja
saman og halda þessum góða vin-
skap sem hafði tekist með okkur í
menntó, svo við fengum Þórð Atla-
son til liðs við okkur í stað Péturs. Og
höfum sungið saman síðan,“ segja
þeir Páll Sólmundur Eydal og Gunn-
ar Thor Örnólfsson sem skipa kvart-
ettinn Barbara ásamt fyrrnefndum
Þórði og Stefáni Þór Þorgeirssyni.
Eins og nafn kvartettsins gefur til
kynna eru lögin sem þeir syngja flest
í svokölluðum barbershop-stíl, sem
er ekki hefðbundinn kórsöngur því
melódían er alltaf í næstefstu rödd-
inni, ekki þeirri efstu. Þeir Gunnar
og Páll skiptast á að syngja tvær efri
raddirnar, „lead“ og tenór, hinir sjá
um baritón og bassa.
Masterclass hjá Paul Phoenix
„Þegar Þórður bættist í hópinn
ákváðum við að gera þetta af alvöru
og æfðum í hverri viku heilan vetur.
Það var okkur svolítið til trafala að
við vorum ekki allir jafnvígir í nótna-
lestri. Gunnar var sterkastur í því
svo hann mataði okkur á laglínunum,
en það gat verið mikið hark að púsla
þessu öllu saman.“
Eftir að Þórður byrjaði í Lista-
háskólanum höfðu þeir aðstöðu þar
til æfinga. „Til að koma pressu á okk-
ur og læra ný lög bjuggum við til
Mánubarb; vikulegt einnar mínútu
myndband þar sem við sungum bút
úr því lagi sem við vorum að æfa
hverju sinni. Við settum það á face-
booksíðuna okkar og þannig gat fólk
fylgst með hvað við vorum að gera og
við haldið okkur vel við efnið,“ segja
þeir og bæta við að í janúar í fyrra-
vetur hafi kvartettinn skellt sér á
námskeið hjá Paul Phoenix, fyrrver-
andi söngvara King’s Singers á Eng-
landi.
„Þetta var ákveðinn vendi-
punktur fyrir okkur, því eftir það
fórum við að taka sönginn fastari
tökum og hafa meiri trú á okkur. Við
áttuðum okkur á að það sem við vær-
um að gera væri gott. Paul Phoenix
sagði að hljómurinn væri algerlega á
sínum stað hjá okkur og raddirnar
okkur féllu vel saman. Hann gaf okk-
ur líka ráð í tengslum við sviðs-
framkomu, hvernig við ættum að
bera okkur, túlka og annað slíkt sem
skiptir líka miklu máli þegar við
komum fram.“
Viljum ekki nota míkrófóna
Frá því síðastliðið vor hafa fjór-
menningarnir í Barbara haft þann
háttinn á að þeir kaupa tilbúnar út-
setningar á lögum sem þeim hugn-
ast, oftast á barbershop.org. „Þar
getum við keypt bæði nóturnar og
svokallað „learning tracks“, en þá er
búið að syngja hverja rödd fyrir sig
og líka heildarsamsetninguna. Þetta
gerir allt svo miklu auðveldara fyrir
alla, bæði þá sem syngja eftir eyranu
og þá sem syngja eftir nótum. Hver
og einn hlustar þá heima á sína rödd
og svo þegar við hittumst á æfingum
stillum við saman.“
Þeir segjast hafa lagt Mánubarb
á hilluna en nota tímann frekar til að
æfa sem flest lög og fullvinna þau.
„Til að safna á lager, því við vilj-
um eiga sem mest í handraðanum
þegar við komum fram. Við höfum
undanfarin tvö ár sungið af og til á
sýningum hjá Reykjavík Kabarett,
fullorðinssýningum á vegum Mar-
grétar Erlu Maack. Þar fyrir utan
höfum við komið mest fram í einka-
samkvæmum, árshátíðum, afmælum
og öðru slíku. Við gefum kost á okkur
til hvers konar viðburða, við viljum
koma fram sem oftast. Og við syngj-
um bæði á íslensku og ensku. Við
syngjum sjaldnast með míkrófóna –
viljum frekar nota rýmið og fá að
þenja okkur,“ segja þeir félagar og
bæta við að fólk sem vilji fá þá til að
skemmta geti sent þeim skilaboð á
facebooksíðu þeirra: Kvartettinn
Barbari. „Þegar við komum fram í
einkasamkvæmum syngjum við oft-
ast þrjú til fimm lög, enda er þetta
orkumikil tónlist og mikið að gerast
á sviðinu.“
Stefna á að taka þátt í barber-
shop-söngkeppni í Las Vegas
Þeir fá greinilega seint nóg af
því að syngja félagarnir Gunnar og
Páll, því báðir eru þeir í Mótettu-
kórnum í Hallgrímskirkju og þar
fyrir utan er Gunnar í kórnum Ægi-
sif, oktettinum Fjárlaganefnd og
klassísku söngnámi. Þórður er í Há-
skólakórnum, Stebbi spilar á píanó
og Palli spilar á gítar og bassa.
„Þetta er okkar líf og yndi. Fé-
lagsskapurinn er dýrmætur og það
er gaman að gera eitthvað flott með
vinum sínum. Við erum allir mjög
uppteknir en það er sama hversu
mikið er að gera; við finnum alltaf
leið til að hittast á æfingum.“ Þeir
eru allir bæði í skóla og vinnu og í
öðrum tómstundum; Palli er í lyfja-
fræði og vinnu, Gunnar í málvís-
indum og vinnu, Stefán er að klára
verkfræði og byrjar í leiklist í LHÍ í
haust og Þórður var að skipta úr
Engir rustar
þótt kenni sig
við barbara
Þeir vita fátt skemmtilegra en að syngja og gefa því
kost á sér til söngs við hverskonar tækifæri; í afmæl-
um, á árshátíðum og öðru slíku. Kvartettinn
Barbari vill nota rýmið til að þenja sig.
Söngglaðir Þeir tóku lagið fyrir ljósmyndara, enda fúsir mjög til söngs.
Í tilefni af Heilaviku í Háskólanum í
Reykjavík hafa verið hádegisfyrir-
lestrar tengdir heilanum. Á morgun,
fimmtudag, verður einn slíkur í stofu
V101 í HR kl. 12-14. Þar ætla Ólína Við-
arsdóttir, sálfræðingur, doktorsnemi
og landsliðskona í fótbolta og Lára
Eggertsdóttir Claessen, deildarlæknir
á Landspítala, að fjalla um heilahrist-
ing undir yfirskriftinni: Erindi Heila-
hristingur og afleiðingar hans:
Reynslusaga og læknisfræðilegt sjón-
arhorn. Einnig ætlar María K. Jóns-
dóttir, dósent við sálfræðisvið HR, að
fjalla um hvernig við getum best
stuðlað að eigin heilahreysti, dregið úr
líkum á því að fá heilabilun og þar með
aukið lífsgæði okkar á efri árum. Er-
indi sitt kallar hún: Heilahreysti á efri
árum: Að taka því sem að höndum ber
eða spyrna við fótum?
Sálfræðinemar kynna einnig ýmis
verkefni sem þeir hafa unnið um heil-
ann. Allir eru velkomnir.
Hádegisfyrirlestrar í tilefni Heilaviku
Heilahreysti og heilahristingur
Heili Hann er sannarlega margslungið líffæri sem ræður mörgu um líf okkar.