Morgunblaðið - 14.03.2018, Blaðsíða 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2018
Vertu viðbúinn vetrinum
LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR
SNJÓKEÐJUR
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú verður að láta reyna á dómgreind
þína því það hefur ekkert upp á sig að láta
aðra stjórna lífi þínu á öllum sviðum. Vertu
varkár, segðu ekki of mikið.
20. apríl - 20. maí
Naut Yfirmaðurinn sér eitthvað í þér. Þótt
erfiðleikar skjóti upp kollinum hér og þar eru
þeir bara til að sigrast á og þú hefur gaman
af þeirri glímu.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér er heitt í hamsi og þarft að
gæta þess að það bitni ekki á þeim sem síst
skyldi. Þú hefur tekið ákvörðun sem hreyfir
við vinum þínum og ættingjum.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú hefur margt að gleðjast yfir á
þessum degi. Fólk er vingjarnlegt, fullt af
stuðningi og því þykir gaman að hitta þig.
Njóttu þess að eyða tíma með fjölskyldunni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það er skynsamlegt að hafa eitthvað í
bakhöndinni ef einhver áætlun skyldi ekki
verða að veruleika. En sjálfsagt er að njóta
meðbyrsins meðan hann er.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Það má alltaf finna þann flöt á málum
að hægt sé að halda upp á þau. Mikilvæg
reynsla fæst ekki alltaf án sársauka. Skoðaðu
málin frá öllum hliðum.
23. sept. - 22. okt.
Vog Með gamansemi léttir þú bæði þér og
öðrum störfin og hennar vegna vilja allir
vinna með þér og fá þig í samkvæmi sín.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Hafðu fullkomnunaráráttuna
með þér inn í daginn, því hátt viðmið þitt fær-
ir þig nær draumunum þínum. Sinntu hjálp-
arbeiðni gamals vinar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Freistingarnar eru ekki til þess að
falla fyrir þeim; það er bara afsökun þeirra,
sem veikir eru á svellinu. Sannir vinir ýta
hverjir öðrum áfram til afreka.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Gættu þess að vera sérstaklega
skýr í öllum tjáskiptum við aðra í dag, ekki
síst fjölskyldumeðlimi. Notaðu tækifærið og
ræddu þýðingarmikil mál við aðra, ekki síst
systkini.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Brynjaðu þig fyrir andstöðu ann-
arra og haltu þig við fyrri áætlanir. Farðu var-
lega í fasteignaviðskiptum og samninga-
viðræðum um arf og sameiginlegar eignir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þér finnst mjög gaman að sýna þig
þegar völlur er á þér. Farðu þér samt hægt og
láttu öryggið sitja í fyrirrúmi. Beittu eðlilegri
gagnrýni áður en þú tekur undir málstað
annarra.
Ólafur Stefánsson birti á Leirn-um „skrýtnar vísur og
skemmtilegar“ og hélt sig við töl-
una tólf. Níu komust fyrir í Vísna-
horni á mánudag og hér koma þrjár
þær síðustu:
Sveinbjörn Egilsson er þungorð-
ur og skorinyrtur í þessum „rit-
dómi“:
Þetta birtir bragarskort
blómaskert og heldur þurrt,
það er stirt og illa ort
ekki vert að láta burt.
Það er „fútt“ í Stellurímum Sig-
urðar Péturssonar:
Þar var gleði, glaumur, svall,
garpar sungu og léku á mis,
beljandi straumur skála skall
um skjálfandi gljúfur vélindis.
Og þá er að velja tólftu og síðustu
vísuna. Látum Sigluvíkur-Svein
hafa síðasta orðið:
Það er ætíð meining mín
mestan bæti trega
brúði mæta og brennivín
brúka gætilega.
Hér lýkur Ólafi. Mér finnst rétt
að halda áfram og fylla Vísnahorn-
ið í sama anda – með skrýtnum vís-
um og skemmtilegum. Ísleifur
Gíslason orti:
Landið okkar vigtað var
– að vísu er það talið ungt:
Það eru fjórir fjórðungar.
Mér finnst það ekki vera þungt.
Mývetningar eru löngum hnyttn-
ir. Svo kvað Hjálmar Stefánsson
Vagnbrekku:
Heitir Gola hryssa stinn.
Hún er í fola bráðskotin.
Brýtur í mola meydóm sinn,
mörg eru svola tilfellin.
Friðrik Jónsson á Helgastöðum
kvað:
Heimsins brestur hjálparlið,
hugur skerst af ergi.
Þegar mest ég þurfti við
þá voru flestir hvergi.
Enginn veit sitt endadægur.
Kristmann Guðmundsson orti:
Gegnum lífið létt án vanda
liðugt smó hann.
Nennti seinast ekki að anda
og þá dó hann.
Hér er gömul manvísa:
Fyrri kýs ég, falda brú,
í faðmi að sofna þínum,
en Indíalöndin eiga þrjú
með öllum gæðum sínum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Síðustu stökurnar
og fjórir fjórðungar
„ÞAU HÖFÐU EKKERT Í HÖNDUNUM. VERST
AÐ ÞÚ SAGÐIR RANNSÓKNARLÖGGUNNI AÐ
„TAKA VÍSBENDINGUNNI“.“
„STRÆTÓINN MINN FER EFTIR TVÆR
MÍNÚTUR OG ÉG ÆTLA AÐ VERA UM
BORÐ!“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar hún lætur þér
líða eins og sólin skíni!
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
KANNSKI
HEFÐUM VIÐ
EKKI ÁTT AÐ
KOMA ÓBOÐIN!
NEI NEI! KALLI
OG FRÚ MUNU
ELSKA AÐ SJÁ
OKKUR!
ÞAU SVARA
EKKI! HELDURÐU
AÐ ÞAU SÉU ÚTI?
NEI, ÉG HEYRI
Í ÞEIM BLÓTA
ÞARNA INNI!
BANK
BANK
BANK
ÞAÐ ER SVO MARGT Í
GANGI Í VERÖLDINNI
ÞAÐ ER ERFITT
AÐ FYLGJAST MEÐ
KJAFTÆÐI.
GERÐU BARA ÞAÐ
SEM ÉG GERI
HUNSAÐU
ÞAÐ Víkverji lýsir velþóknun sinni áCliff Burton-þemanu í spurn-
ingakeppnmi framhaldsskólanna
Gettu betur! á þessum vetri. Ætli
bassaleikarinn sálugi úr Metallica
hafi séð það fyrir þegar hann „tjill-
aði“ á fallegu vorkvöldi vestur í San
Francisco 1986 að hann ætti eftir að
verða í lykilhlutverki í spurn-
ingakeppni ungmenna hér uppi á Ís-
landi 32 árum síðar? Svona er heim-
urinn skrýtinn.
x x x
Burton hefur borið í tvígang ágóma í sjónvarpshluta Gettu
betur!, svo Víkverji hafi séð, það
gæti verið oftar, og birt af honum
ljósmynd. Fyrst var spurt um hljóm-
sveit hans, þrassbandið góðkunna
Metallica, og stóðu svarendur þá á
gati. Staðreynd sem Víkverji og
fleiri þrasshausar eiga erfitt með að
kyngja. Nú á föstudaginn var svo
spurt um dánarstað franska heim-
spekingsins René Descartes en hann
sálaðist í Svíþjóð á því herrans ári
1650. Og hvernig tengist það Cliff
Burton? Jú, hann lét líka lífið í Sví-
þjóð, haustið 1986, í rútuslysi. Mun-
urinn er sá að Descartes lést í
Stokkhólmi en Burton skammt frá
Ljungby í Smálöndunum.
x x x
Spurningin um Descartes var íbesta falli loðin og myndefnið
ruglandi en lið Fjölbrautaskólans í
Breiðholti lét ekki slá sig út af laginu
og kom með rétt svar. Vel gert! Af
því tilefni henti annar spurningahöf-
unda, Villi naglbítur, í meinfyndinn
René Descartes-brandara. Það er
létt yfir mönnum þarna í Gettu bet-
ur! í vetur og er það vel.
x x x
Svarið dugði FB skammt en gamliskólinn hans Víkverja, Mennta-
skólinn á Akureyri, vann sannfær-
andi sigur í keppninni. Sú sveit virk-
ar óvenju vel að sér enda þótt hún
kveikti hvorki á Burton né Desc-
artes. Skólameistari hefur vænt-
anlega farið yfir það með henni strax
í gær. Hvað er annars með þessa
ágætu kisu í MA? Hvenær kom hún
til skjalanna? Var ekki meðan Vík-
verji nam nyrðra.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Og Jesús sagði við alla: „Hver sem vill
fylgja mér afneiti sjálfum sér, taki
kross sinn daglega og fylgi mér
(Lúk: 9.23)