Morgunblaðið - 14.03.2018, Blaðsíða 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2018
Nokkrir af virtustu karlkyns lista-
mönnum Suður-Kóreu hafa undan-
farið verið sakaðir um alvarlegt kyn-
ferðislegt ofbeldi og áreitni og
skekur umræðan menningarlíf
landsins. Ásakanirnar hafa komið
fram með #MeToo-hreyfingunni og
hefur þekktasta skáld þjóðarinnar,
Ko Un, meðal annars verið sakaður
um alvarlega áreitni og þá hafa þrjár
leikkonur stigið fram og sagt kvik-
myndaleikstjórann Kim Ku-duk,
sem hlotið hefur virtustu verðlaun á
kvikmyndahátíðunum í Cannes,
Berlín og Feneyjum, hafa ráðist á
þær og nauðgað þeim. Hann hafnar
því með öllu og kveðst hafa stundað
kynlíf með konunum með fullu sam-
þykki þeirra.
Einn þekktasti leikari Suður-
Kóreu, Jo Min-ki, fyrirfór sér í lið-
inni viku. Hann hafði verið rekinn úr
starfi leiklistarprófessors í einum
háskóla landsins eftir að átta konur
stigu fram og sögu hann hafa nauðg-
að þeim og áreitt kynferðislega. Jo
hafði verið boðaður í yfirheyrslu hjá
lögreglunni en hann hengdi sig og
skildi eftir sex síðna bréf þar sem
hann bað fjölskyldu sína og nem-
endur afsökunar.
Þá baðst fyrrverandi listrænn
stjórnandi Þjóðleikhúss Suður-
Kóreu opinberlega afsökunar á
gjörðum sínum, eftir að kona hafði
borið hann þungum sökum um kyn-
ferðislega áreitni.
Sýningu lokað og ljóðum eytt
Skáldið Ko Un, sem hefur undan-
farin ár ítrekað verið orðaður við
Nóbelsverðlaunin og er 84 ára gam-
all, er sakaður um grófa framkomu
við yngri skáldkonur. Þess má geta
að úrval þýðinga Gyrðis Elíassonar
á verkum Ko Un, Sorgin í fyrstu
persónu, kom út í fyrra.
Fyrstu ásakanirnar á hendur Ko
Un birtust í desember í fyrra, í ljóð-
inu „Skrímsli“ eftir skáldkonuna
Choi Young-mi en í því er fjallað um
áreitni af hálfu gamals karlskálds
sem er kallað En. Lesendur þóttust
þar þekkja Ko, enda pössuðu ýmsar
lýsingar í því við feril hans. Gegnum
útgefanda sinn í Bretlandi bar Ko
Un ásakanir um „ítrekaða óviður-
kvæmilega hegðun“ af sér – athygli
vekur að hann hefur ekki neitað því í
heimalandinu – en Choi steig þá
fram og þótt hún nafngreindi ekki
Ko sagði hún lýsingarnar sannar. Og
fleiri skáld hafa tekið undir það og
lýst ruddalegri framkomu Ko, sem
er meðal annars sagður hafa þuklað
konur ítrekað og fróað sér fyrir
framan þær.
Í kjölfar ásakananna hafa borgar-
yfirvöld í Seúl lokað sérstakri sýn-
ingu um skáldskap Ko Un í borg-
arbókasafninu, Manibo-safninu hans
svokölluðu en í því voru 4.001 hand-
skrifuð ljóð skáldsins frá 30 árum,
með nöfnum 5.600 manna og kvenna
sem hann hafði hitt. Þá hafa ljóð Ko
Un verið fjarlægð úr sýnisbókum
um skáldskap sem kenndar eru við
skóla landsins.
Ko Un er langþekktasta skáld
Suður-Kóreu. Ungur var hann
búddamunkur í um áratug en kvaddi
regluna árið 1962 og hefur verið
gríðarlega afkastamikið skáld síðan
og sent frá sér yfir 150 ljóðabækur.
Hafa ljóð eftir hann verið þýdd á
fjölda annarra mála.
Listamenn sakaðir um
nauðgun og áreitni
AFP
Leikarinn Jo Min Ki fyrirfór sér í kjölfar ásakana átta kvenna.
Leikstjórinn Kim Ki Duk er sak-
aður um að hafa nauðgað konum.
Ko Un Þekktasta skáld landsins er
borið þungum sökum.
Alvarlegar ásakanir skekja menningarlíf í Suður-Kóreu
Hinn víðkunni hljómsveitarstjóri
James Levine var rekinn frá hljóm-
sveit Metropolitan-óperunnar í
New York á mánudag. Hann hafði
verið listrænn stjórnandi hennar í
40 ár og er eignað að hafa gert
hana að einni af bestu hljómsveitum
samtímans. Hann hefur iðulega
verið sagður áhrifamesti og besti
bandaríski hljómsveitarstjórinn.
Levine var rekinn eftir að rann-
sóknarnefnd sem yfirstjórn óp-
erunnar skipaði sagðist hafa nægi-
legar sannanir fyrir því að
stjórnandinn hefði misnotað yngri
hljóðfæraleikara kynferðislega
gegnum árin.
Levine hafði verið sendur í leyfi í
desember eftir að The New York
Times birti alvarlegar ásakanir
nokkurra manna á hendur honum
og lýstu því hvernig hann hefði not-
að vald sitt sem virtur og áhrifa-
mikill stjórnandi til að áreita þá og
níðast á þeim.
Levine sagði árið 2016 upp sem
aðalstjórnandi. Hann hafði þá
stjórnað úr hjólastól um hríð vegna
bakmeiðsla, en stjórnaði þó hljóm-
sveitinni áfram af og til.
AFP
Rekinn James Levine var rekinn eftir 40 ár við Metropolitan-óperuna.
Levine rekinn frá
Metropolitan óperunni
Sagður hafa beitt yngri menn ofbeldi
Röng mynd birtist
með ljósvakapistli
Við vinnslu Ljósvakans sem birt-
ist í blaðinu í gær urðu þau mistök
að röng mynd var birt með pistl-
inum. Beðist er velvirðingar á þess-
um leiðu mistökum. Skrifunum átti
að fylgja meðfylgjandi mynd af Gísla
Marteini Baldurssyni, umsjónar-
manni bráðskemmtilegrar þátta-
raðar um belgíska myndasöguhöf-
undinn George Remi, betur þekktur
sem Hergé, og Tinnabækurnar sem
verið hefur á dagskrá Rásar 1 und-
anfarnar helgar. Í pistlinum var les-
endum á það bent að hægt væri að
nálgast þessa skemmtilegu, fróðlegu
og vönduðu þætti Gísla Marteins í
Sarpinum á vef RÚV í þrjá mánuði
frá frumflutningi sem og innslög í
Lestinni þar sem rætt var við Tinna-
aðdáendur. Gísla Marteini var hrós-
að í hástert fyrir jafnt fagmennsku
og ástríðu við þáttagerðina.
LEIÐRÉTT
Fagmennska Gísli Marteinn beindi
sjónum sínum að Hergé og Tinna.
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Rocky Horror (Stóra sviðið)
Fös 16/3 kl. 20:00 Frums. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Lau 28/4 kl. 20:00 25. s
Sun 18/3 kl. 20:00 2. sýn Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 26. s
Mið 21/3 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Fim 3/5 kl. 20:00 27. s
Fim 22/3 kl. 20:00 aukas. Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Fös 4/5 kl. 20:00 28. s
Fös 23/3 kl. 20:00 3. s Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Lau 5/5 kl. 20:00 29. s
Lau 24/3 kl. 20:00 4. s Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s
Sun 25/3 kl. 20:00 5. s Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Þri 8/5 kl. 20:00 31. s
Þri 27/3 kl. 20:00 aukas. Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Mið 9/5 kl. 20:00 32. s
Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Fös 11/5 kl. 20:00 33. s
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Lau 12/5 kl. 16:00 34. s
Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Fim 17/5 kl. 20:00 35. s
Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Fös 18/5 kl. 20:00 36. s
Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa.
Elly (Stóra sviðið)
Lau 17/3 kl. 20:00 138. s Sun 9/9 kl. 20:00 140. s Fim 13/9 kl. 20:00 142. s
Fös 7/9 kl. 20:00 139. s Mið 12/9 kl. 20:00 141. s Sun 16/9 kl. 20:00 143. s
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Fólk, staðir og hlutir (Litla sviðið)
Fös 13/4 kl. 20:00 Frums. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Sun 29/4 kl. 20:00 10. s
Lau 14/4 kl. 20:00 2. s Sun 22/4 kl. 20:00 6. s Mið 2/5 kl. 20:00 11. s
Sun 15/4 kl. 20:00 3. s Mið 25/4 kl. 20:00 7. s Fim 3/5 kl. 20:00 aukas.
Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 8. s Fös 4/5 kl. 20:00 12. s
Fim 19/4 kl. 20:00 4. s Fös 27/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 13. s
Fös 20/4 kl. 20:00 5. s Lau 28/4 kl. 20:00 9. s Sun 6/5 kl. 20:00 14. s
Komumst við vímulaus af í geggjuðum heimi?
Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið)
Lau 24/3 kl. 20:00 Frums. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s
Sun 25/3 kl. 20:00 2. s Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s
Þri 27/3 kl. 20:00 3. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s
Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Lau 21/4 kl. 20:00 18. s
Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Sun 22/4 kl. 20:00 19. s
Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Fim 26/4 kl. 20:00 20. s
Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Fös 27/4 kl. 20:00 21. s
Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis!
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Lau 17/3 kl. 19:30 8.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 19.sýn
Sun 18/3 kl. 19:30 9.sýn Fim 12/4 kl. 19:30 Auka Sun 29/4 kl. 20:00 25.sýn
Fös 23/3 kl. 19:30 10.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn Lau 5/5 kl. 19:30 27.sýn
Lau 24/3 kl. 19:30 11.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn Sun 6/5 kl. 16:00 28.sýn
Sun 25/3 kl. 19:30 12.sýn Sun 15/4 kl. 19:30 Auka Sun 13/5 kl. 19:30 29.sýn
Fös 6/4 kl. 19:30 Auka Fös 20/4 kl. 19:30 17.sýn
Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn Lau 21/4 kl. 16:00 18.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Fim 15/3 kl. 19:30 Auka Fös 16/3 kl. 19:30 Síðustu
Síðustu sýningar komnar í sölu
Faðirinn (Kassinn)
Fim 15/3 kl. 19:30 26.sýn Lau 24/3 kl. 19:30 28.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 30.sýn
Fös 16/3 kl. 19:30 27.sýn Sun 25/3 kl. 19:30 29.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 31.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Efi (Kassinn)
Lau 17/3 kl. 19:30 18.sýn Mið 21/3 kl. 19:30 20.sýn
Sun 18/3 kl. 19:30 19.sýn Fim 22/3 kl. 19:30 21.sýn
Margverðlaunað og spennandi verk !
Ég get (Kúlan)
Sun 18/3 kl. 13:00 15.sýn Sun 25/3 kl. 13:00 Síðasta
Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00
Fim 22/3 kl. 20:00 Fesival Mið 18/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
Íslensku
þjónustufyrirtækin
eru á finna.is
VEISTU UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?