Morgunblaðið - 14.03.2018, Page 36
MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 73. DAGUR ÁRSINS 2018
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR.
1. Handtekinn fyrir utan fangelsið
2. Hársbreidd frá því að fjúka út af
3. Réðust á stúlku í undirgöngum
4. Andlát: Sverrir Hermannsson
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Lof og dýrð er yfirskrift tónleika
sem Kammerkór Reykjavíkur og
Kammerkór Seltjarnarneskirkju
halda ásamt einsöngvurum í Sel-
tjarnarneskirkju í kvöld kl. 20. Flutt
verður verk eftir Jakob de Haan og
nýtt verk eftir Sigurð Bragason, sem
stjórnar ásamt Friðriki Vigni Stefáns-
syni. Renata Ivan leikur á orgel og
Sophie Schoonjans á blokkflautu.
Frumflytja verk eftir
Sigurð Bragason
Finnska sópran-
söngkonan og
Grammy-verð-
launahafinn
Karita Mattila
syngur með
Sinfóníu-
hljómsveit Íslands
í Eldborg Hörpu
annað kvöld kl.
19.30 undir stjórn Yans Pascals
Torteliers. Mattila túlkar ástarsöngva
sem Wagner samdi við ljóð ástkonu
sinnar Mathilde Wesendonck. Önnur
verk eru Draumórasinfónían eftir
Berlioz og Passacaglia eftir Webern.
Karita Mattila túlkar
ástarsöngva Wagners
Valgerður Guðnadóttir, Matthías
Stefánsson, Helga Laufey Finnboga-
dóttir, Guðjón Steinar Þorláksson og
Erik Qvick halda tónleika í
Salnum á föstudag kl. 20.
Flutt verða ástkær dæg-
urlög þjóðarinnar í nýj-
um útsetningum í
bland við frumflutn-
ing laga eftir Val-
gerði og Helgu
Laufeyju.
Ástkær dægurlög í
bland við nýtt efni
Á fimmtudag Austlæg átt 8-13 m/s, en 13-18 með suðurströnd-
inni framan af degi. Víða rigning, einkum þó um landið suðaust-
anvert. Hiti 2 til 8 stig, mildast syðst.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Austan- og norðaustanátt, víða 8-15 m/s.
Rigning eða slydda með köflum í flestum landshlutum. Hiti 1-6 stig
syðra, frost um mestallt norðanvert landið en hlýnar eftir hádegi.
VEÐUR
Haukakonur tryggðu sér í
gær deildarmeistaratitil
kvenna í körfubolta með
sigri á Val í æsispennandi
leik, 71:67. Enn eru þrjár
umferðir eftir af deildinni
en forskot Hauka er of mik-
ið fyrir önnur lið til að ná
þeim. Karlalið Hauka hafði
áður einnig tryggt sér deild-
armeistaratitilinn á þessari
leiktíð svo Hafnarfjarðar-
félagið getur státað af báð-
um titlum. »2
Haukar unnu
báðar deildirnar
„Mín upplifun hefur verið allt öðru-
vísi. Hérna er allt í toppmálum. Ég er
með íbúð á frábærum stað og hef
ekki yfir neinu að kvarta,“ segir Sig-
rún Ella Einarsdóttir knattspyrnu-
kona, sem notið hefur þess að vera
hjá ítalska meistaraliðinu Fiorentina í
vetur. Skammt er síðan tvær löndur
hennar riftu samningi sínum við ann-
að ítalskt félag. »1
„Mín upplifun hefur
verið allt öðruvísi“
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
„Að vinna bikarinn hefur verið
draumur minn og markmið síðan ég
vissi af þessu móti,“ segir hand-
boltakempan unga Jóhanna Mar-
grét Sigurðardóttir en lið hennar,
HK, varð bikarmeistari í handbolta,
4. flokki kvenna eldri, um helgina
eftir sigur á Val. Jóhanna var valin
maður leiksins auk þess að vera
markahæst í liði HK, með níu mörk.
Hún segist oftast vera með þeim
markahæstu en hún spilar stöðu
vinstriskyttu. „Það er staða sem
hentar mér vel því ég er hávaxin.“
Þetta er í fyrsta skipti sem Jó-
hanna vinnur bikarmeistaratitil með
liði sínu en þær komust í úrslit á Ís-
landsmeistaramótinu í fyrra. „Við
höfum ekki unnið alla leiki í vetur
en verið á mikilli uppleið und-
anfarið. Við æfðum rosalega vel fyr-
ir þennan leik, liðsheildin var sterk
og stemningin í hópnum góð,“ segir
Jóhanna, enn í skýjunum með sig-
urinn. Hún æfir einnig með 16 ára
landsliði Íslands í handbolta.
Jóhanna byrjaði að æfa handbolta
með HK þegar hún var níu ára og
sér ekki eftir því, framtíðin er hand-
bolti. „Mér hefur alltaf fundist
handboltinn skemmtilegur og svo
líður mér bara svo vel með boltann í
höndunum.“
Flytur til Noregs í haust
Jóhanna lýkur grunnskólagöng-
unni í vor, er að klára 10. bekk í
Smáraskóla og í haust hefur hún
nám við íþróttamenntaskóla í
Noregi. „Þar er lið sem
heitir NTG Kongsvinger
og ég fékk fyrirspurn
frá þeim um hvort ég
hefði áhuga á að fara
þarna út og spila
með þeim. Kvennalið-
ið þarna er sterkt en
það er með íslenskan
þjálfara sem sá mig á landsliðsæf-
ingu og sóttist eftir mér. Það spila
tvær íslenskar stelpur með NTG
Kongsvinger og önnur þeirra var í
HK. Ég var ekkert mjög spennt
fyrir þessu fyrst en eftir að ég fór
og skoðaði aðstæður vissi ég að ég
þyrfti að fara. Aðstaðan þarna er
mjög góð og ég mun læra mjög mik-
ið. Námið er þrjú ár en ég ætla að
byrja á að fara í eitt ár og sjá hvern-
ig gengur.“
Draumur Jóhönnu er að verða at-
vinnumanneskja í handbolta og er
það ein af ástæðunum fyrir því að
hún velur að fara til Noregs, til að
bæta sig. „Þarna er frábær aðstaða,
stanslausar æfingar og ég fæ ein-
kunn fyrir að spila handbolta,“ segir
hún kát.
Líður vel með boltann í hendi
Nýkrýndur bik-
armeistari í hand-
bolta með HK
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Framtíðin Jóhanna Margrét Sigurðardóttir, 15 ára, flytur til Noregs í haust til að spila með NTG Kongsvinger.
Jóhanna er barnabarn Jóhönnu
Sigurðardóttur, fyrrverandi
forsætisráðherra. „Amma
kemur alltaf að styðja mig,
hún er eiginlega stuðnings-
maður minn númer eitt,“
segir Jóhanna, sem er í
mikilli handboltafjölskyldu.
Tveir eldri bræður hennar
spila handbolta með meist-
araflokki HK og foreldrar
hennar æfðu líka handbolta
á yngri árum og spiluðu með
yngri landsliðum Íslands. „Það er
eiginlega ekki talað um neitt ann-
að en handbolta við matarborðið
heima.“
Auk þess að æfa handbolta
nánast alla daga vikunnar þjálfar
Jóhanna stelpur í 5. flokki HK.
Hún segist læra mikið af því.
Spurð um uppáhalds-
handboltamenn segir hún það
vera Aron Pálmarsson sem er í
íslenska karlalandsliðinu og Noru
Mørk í norska kvennalandsliðinu.
Amma er stuðningsmaður nr. 1
ER BARNABARN JÓHÖNNU SIGURÐARDÓTTUR
Uppáhald
Nora Mørk.
Nafn Manchester United verður ekki í
skálinni þegar dregið verður í 8-liða
úrslit Meistaradeildar Evrópu í knatt-
spyrnu á föstudaginn. Liðið tapaði á
heimavelli gegn Sevilla, 2:1, í gær-
kvöldi eftir að liðin höfðu gert marka-
laust jafntefli á Spáni. Roma komst
einnig áfram. »3
United féll úr leik í
Meistaradeildinni