Morgunblaðið - 21.04.2018, Page 20
Hvað brennur á kjósendum?
Sigríður
Garðarsdóttir
Sirrý í sjoppunni
í Þorlákshöfn
Auðvitað brenna at-
vinnumálin á okkur.
Við þurfum að fá eitt-
hvað fjölbreyttara hing-
að, við þurfum fleiri
störf. Það er haugur af
fólki sem keyrir úr bæn-
um á hverjum degi.
Birgir Þór
Brynjarsson
nemandi á húsa-
smíðabraut í FSu
Ég er aðallega að
hugsa um hús-
næðismálin. Við
þurfum fleiri ódýr-
ar íbúðir þannig
að ekki þurfi að
taka risastór lán
fyrir fyrstu íbúð-
inni sinni.
Morgunblaðið/Hari
Einar Kristinsson
verslunarmaður
í Mosfelli á Hellu
Það þarf að bæta sam-
göngur. Hér við versl-
unina leggur hrepp-
urinn stétt hérna megin
við hringtorgið en Vega-
gerðin vill hafa hana
hinum megin og þar
leggja þeir sebrabraut-
ina. Svo er bara ófært
beggja vegna. Þetta er
smá mál en búið að
standa í þeim lengi.
Íris Dröfn
Kristjánsdóttir
verslunarmaður á Flúðum
Mér finnst málefni aldr-
aðra brýnust. Það geng-
ur ekki að senda fólk
sem er búið að byggja
upp sveitarfélögin í ann-
að sveitarfélag til að
eyða síðustu metrunum.
Auðvitað þarf að hugsa
um þessa vegi, en hugs-
um fyrst og fremst um
okkur.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Húsnæðisskortur, samgöngumál,
bygging hjúkrunarheimila, heil-
brigðisþjónusta og sambúðin við
ferðamenn eru þau mál sem brenna
hvað helst á Sunnlendingum þegar
nær dregur kosningum til sveitar-
stjórna. Þetta má ráða af viðtölum
Morgunblaðins við nokkra íbúa á
svæðinu að undanförnu.
„Við erum að sjá ótrúlega eftir-
spurn eftir húsnæði hérna í upp-
sveitunum. Þú verður bara að beita
einhverjum bellibrögðum til að
leysa húsnæðismál fyrir starfsfólk í
ferðaþjónustu og landbúnaði. Það er
ekkert til sölu á Selfossi nema á
uppsprengdu verði og svo pressast
þetta út í jaðarbyggðirnar. Ég held
að ríkisvaldið þurfi að beita sértæk-
um aðgerðum á þessum svæðum þar
sem hefur orðið markaðsbrestur. Ef
við ætlum að halda landinu í byggð
þá verðum við að sætta okkur við að
það kostar,“ segir Gunnar Þorgeirs-
son, formaður Samtaka sveitarfé-
laga á Suðurlandi.
Gunnar segir að fyrir utan hús-
næðismál séu stóru sameiginlegu
málin á Suðurlandi um þessar
mundir þrjú.
„Samgöngumálin eru númer
eitt. Hjúkrunarheimili númer tvö og
heilbrigðisþjónustan, sjúkrastofn-
anir, nærþjónusta við íbúa og
sjúkraflutningar númer þrjú,“ segir
hann.
Augljóst er að brýn þörf er fyr-
ir ný hjúkrunarheimili eftir að
Kumbaravogi og Blesastöðum var
lokað. Um þessar mundir bíða 36
eftir hjúkrunarrými á Suðurlandi og
86 bíða eftir hvíldarinnlögn. „Þessi
60 rými sem á að byggja hverfa
bara á einum degi,“ segir Gunnar
um stöðu mála.
Brothætt heilbrigðisþjónusta
Tíðar fréttir hafa verið fluttar
af stöðu heilbrigðismála á Suður-
landi í tengslum við fjölda umferðar-
slysa þar. Mikil mildi þykir að oft
hafi ekki farið verr en ella sökum
langra vegalengda milli stofnana.
„Við höfum sagt að Heilbrigðis-
stofnun Suðurlands standi sig frá-
bærlega með þeim fjármunum sem
hún hefur en samfélögin undir HSU
eru gríðarlega brothætt. Nærtækt
dæmi er heilsugæslustöðin á
Klaustri sem fékk þetta rútuslys í
fangið. Auðvitað leystu þau verk-
efnið en það hefði getað farið verr.
Bílstjórinn á sjúkrabílnum er líka
slökkviliðsmaðurinn og aðstoðar-
maðurinn er líka hjúkrunarfræðing-
urinn. Hvað hefði gerst ef þessi tvö
Morgunblaðið/Hari
Grænmetisræktun Hjá gróðrarstöðinni Jörfa á Flúðum var starfsfólk í óðaönn að pakka gulrótum á dögunum.
Húsnæði, heilbrigð-
ismál og samgöngur
Sambúðin við ferðamenn ofarlega í huga Sunnlendinga
SUÐURLAND
VEITARSTJÓRNARKOSNINGAR 2018
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er frábært að búa hérna. Hér
er fullt af tómstundum og íþrótta-
starfi fyrir börn og fullorðna. Leik-
skólagjöldin eru með þeim lægstu á
landinu og næg vinna fyrir þá sem
vilja vinna,“ segir Margrét Harpa
Guðsteinsdóttir, bóndi og sveit-
arstjórnarkona í Lambhaga á
Rangárvöllum.
Margrét og Ómar Helgason
reka ásamt öðrum eitt stærsta
nautgripabú landsins og fram und-
an eru framkvæmdir; byggja á nýtt
fjós sem mun bæta aðstöðu til mik-
illa muna. Þau eiga fjögur börn svo
það er oft ansi líflegt á heimilinu.
Það er því eðlilegt að Margrét sé
spurð af hverju hún sé að bæta
sveitarstjórnarstörfum ofan á allt
annað.
„Á maður ekki að taka þátt í
þessu meðan maður er ungur og er
að nýta sér þjónustu sveitarfé-
lagsins? Það er góður kostur að
vera sjálfs sín herra, það auðveldar
Samfélagsverkefni að
sitja í sveitarstjórn
Margrét Harpa í Rangárþingi ytra
Morgunblaðið/Hari
Fjölskyldan í Lambhaga Það er oft líf í tuskunum hjá Margréti og Ómari og börnunum fjórum.