Morgunblaðið - 21.04.2018, Qupperneq 29
UMRÆÐAN 29
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018
Hinn 24. mars sl.
birtist grein í Morg-
unblaðinu eftir Önnu
Kolbrúnu Árnadóttur
og Viðar Frey Guð-
mundsson, frambjóð-
endur Miðflokksins,
undir nafninu, „Hugs-
um lengra en Hring-
braut“. Enn og aftur
þarf að leiðrétta rang-
færslur um staðarval
Landspítala og í
þessu tilfelli er framkvæmdum í
Danmörku blandað af vanþekk-
ingu inn í málið.
Rangar ályktanir um
staðarvalsgreiningar
Í greininni eru dregnar rangar
ályktanir af staðarvalsvinnu um
nýjan Landspítala. Rökstuðningur
Önnu og Viðars byggir m.a. á að
Ementor-skýrsla, frá árinu 2001
hafi mælt með byggingu nýs spít-
ala frá grunni á nýjum stað, en
henni hafi svo verið stungið undir
stól. Þetta er rangt. Aðalverkefni
Ementor snerist ekki um stað-
arval á nýjum Landspítala heldur
að innviðum og vinnuferlum spít-
alans og sú vinna nýttist vel. Í lok
skýrslunnar var Fossvogur ráð-
lagður sem vænlegri bygging-
arstaður „ef ekki ætti að byggja
nýjan spítala á nýjum stað“. Ekk-
ert val eða mat fór fram hjá þeim
á hagkvæmni þess að byggja á
nýjum stað. Ementorskýrslan full-
yrti ekkert um að betra væri að
byggja á nýjum stað frá grunni,
eins og Hilmar Þór Björnsson,
arkitekt gefur í skyn grein þann
19.4. Um það lögðu þeir ekkert
mat, enda hefði það kallað á ít-
arlega skoðun, en gáfu vissulega
til kynna að byggja mætti nýjan
spítala við Hringbraut.
White arkitektar unnu um svip-
að leiti ítarlega úttekt á staðarvali
við Vífilsstaði, í Fossvogi og
Hringbraut. Niðurstaða þeirra var
sú að Hringbraut væri ákjósanleg-
asti staðurinn. White
arkitektar greindu
staðina þrjá með til-
liti til kosta og galla
hverrar staðsetn-
ingar, en Vífilsstaðir
voru að þeirra mati
versti kosturinn.
Hvað getum við
lært af Dönum?
Í grein þeirra Önnu
og Viðars er staðhæft
að verið sé að byggja
hátt í 30 spítala í
Danmörku og flestir
séu reistir í útjaðri byggðar. Þetta
er rangt. Flestar framkvæmdanna
eru misstórar viðbyggingar við
núverandi spítala, en sex verkefni
eru nýbyggingar. Hér að neðan
eru nánari upplýsingar um þá
spítala sem byggðir eru frá grunni
á nýjum stað og hver reynsla
Dana er af þessum nýbygging-
arverkefnum eftir að maður
kynnti sér það sérstaklega.
Nýi spítalinn í Hilleröd hefur
ítrekað farið fram úr fjárhags-
áætlunum. Ákveðið að fara í ný-
byggingu árið 2007. Bygging-
armagn og sjúkrarými skorið
niður og afhendingu spítalans
seinkað um 2-3 ár og verður 2022,
15 árum eftir að ákvörðun er tek-
in.
Nýi háskólaspítalinn í Köge
er að stærstum hluta nýbygging:
Ráðgjafa-/arkitektafyrirtækið C.F
Möller og Ramböll ráðgjafaverk-
fræðingar voru reknir frá verkinu
2017 vegna þess að fyrsti hluta
spítalaverkefnisins var kominn
marga milljarða íslenskra króna
fram úr áætlunum. Fram-
kvæmdum á um það bil 110.000
fermetrum átti að vera lokið 2023,
en mun seinka til 2024 vegna nýs
útboðs sem fór fram í september
2017. Samtals 14-16 ár frá ákvörð-
un.
Nýi spítalinn í Gödstrup: Plan
frá 2007. Áætlun um afhendingu
2017 stóðst ekki fremur en kostn-
aðaráætlanir; útboðsgögnum hefur
seinkað og lengja þarf bygging-
artíma til að draga úr kostnaði.
Endurskoðuð áætlun miðar við að
fyrsti hluti spítalabyggingarinnar
verði afhentur 2020. Samtals
verður byggingatími 13 ár.
Nýi háskólaspítalinn í Aar-
hus, Skejby: Ákveðið að byggja
árið 2005. Fjárhagsáætlanir hafa
ekki staðist; byggingarmagn
skrifstofuhúsnæðis skorið niður í
kjölfarið. Innleiðing á starfsemi
bráðamóttökunnar seinkaði um ár
og veruleg mistök við uppsetn-
ingu pípulagna hafa leitt af sér
miklar rakaskemmdir. Fyrsta lagi
tilbúinn 2019. 14 ára bygging-
artími.
Nýi háskólaspítalinn í
Odense: Það var ákveðið 2008 að
byggja háskólaspítalann á auðu
svæði við hliðina á Syddansk-
háskólanum og planlögðum Cor-
tex park vísindagörðum. Ekki
ósvipuð hugmyndafræði og með
LSH við Hringbraut. Útboð fer
fram 2010 og 2011. Búið að seinka
byggingunni um tvö ár frá upp-
haflegri áætlun. Kostnaðaráætlun
um 100 milljarðar króna, en hefur
reynst mörgum milljörðum hærri
en upphafleg fjárhagsáætlun.
Byggingarframkvæmdir skornar
niður og sveitarfélagið tók á sig 7
milljarða til að hægt yrði að halda
áfram. Áætluð afhending 2022, 14
árum eftir ákvörðun.
Nýi háskólaspítalinn í Ála-
borg: Ákveðið 2009. Fjárhags-
áætlanir stóðust ekki. Því var
m.a. ákveðið að sleppa byggingu
„foreldrahótels“ og minnka
sjúkrahótelið. Áætluð afhending
2020. Samtals 11-13 ára fram-
kvæmdatími.
Meðal fjölmargra viðbygginga
við spítala í Danmörku má nefna
að í Viborg er verið að byggja um
32.000 m2 viðbyggingu við sjúkra-
húsið, framkvæmdatíminn 11 ár,
frá 2009 – 2020. Í Kolding er ver-
ið er að byggja við spítalann álíka
stóra viðbyggingu og í Viborg og
einnig er verið að byggja við
Rigshospitalet í Kaupmannahöfn.
Það verk hefur gengið ágætlega.
Hver eru þá skilaboðin? Það er
mjög víða verið að byggja við
spítala sem oft hefur reynst ágæt-
lega, en mun sjaldnar eru byggðir
spítalar frá grunni á nýjum stöð-
um. Þegar Danir byggja spítala
frá grunni, er ekki reynt að eltast
við einhvern miðjustað borgar-
svæðisins eins og Hilmar Þór álít-
ur heldur koma mörg önnur sjón-
armið til skoðunar.
Stærri verkefni kalla almennt á
meiri seinkanir og framúrkeyrslu
í kostnaði. Hér á landi má búast
við mun meiri seinkunum og
framúrkeyrslu kostnaðar við
helmingi stærri framkvæmd en
nú er í gangi eða um 140.000 fer-
metra nýbyggingu. Byggingartími
yrði að lágmarki 12 ár til viðbótar
við langan undirbúningstíma við
aðal- og deiliskipulagsbreytingar,
umhverfismat, umferðatengingar,
þarfagreiningu byggingarinnar
innanhúss, útboð, hönnun o.fl.
sem getur auðveldlega tekið 10
ár. Nýr spítali í fyrsta lagi tilbú-
inn í kringum 2040, vonandi
a.m.k. fyrir 100 ára afmæli lýð-
veldisins.
Frá 2002 hefur verið miðað við
áframhaldandi uppbyggingu við
Hringbraut. Aðalskipulagi og
deiliskipulagi við Hringbraut var
breytt í kjölfar skipulags-
samkeppni sem fram fór 2005;
unnin var ítarleg þarfagreining og
haldin alþjóðleg samkeppni í kjöl-
far hæfnisvals um forhönnun spít-
alans árið 2010. Fullnaðarhönnun
sem boðin var út og er nú vel á
veg komin; útboð framkvæmda
við jarðvinnu og innviði verður
boðin út í sumar og í kjölfarið
bygging meðferðarkjarnans. Al-
þingi hefur samþykkt fjármögnun
og að stöðva hana og ætlað að
setja aðra og stærri í gang síðar
er algjörlega óábyrgt.
Krafa okkar Reykvíkinga
ætti að vera skýr. Klára upp-
byggingu við Hringbraut sem
fyrst.
Reykvíkingar eiga að gera þá
kröfu að ríkið klári hratt og vel
uppbyggingu spítalans. Fram-
bjóðendur til borgarstjórnar eiga
ekki að gefa ríkisstjórninni neinn
afslátt af því að klára núverandi
uppbygginu meðferðarkjarna og
rannsóknarhúss árin 2023/2024 og
algjörlega ábyrgðarlaust að tefja
málið. Slík er eingöngu til þess
ætluð að vinna hylli óánægða íbúa
með einhverri draumsýn. Stað-
arval fyrir annar spítala á öðrum
stað er aftur á móti eðlilegt og
tímabært verkefni sem Reykja-
víkurborg á að hafa strax frum-
kvæði að með framtíðarþarfir í
huga. Sá spítali, austar í borginni,
hefði annað hlutverk en bráða-
sjúkrahús/háskólasjúkrahús.
Keldnalandið kæmi þar aug-
ljóslega vel til greina ásamt íbúa-
byggð. Eitt sjúkrahús á Íslandi er
ekki nóg, - er óöruggt fyrir ey-
land þekkt af náttúruhamförum
og óásættanlegt fyrir sjúklinga og
heilbrigðisstarfsfólk sem eini val-
kosturinn.
Sú aðferðafræði sumra [stjórn-
málamanna], að forðast stað-
reyndir og vandaða greiningu, en
höfða frekar til tilfinninga fólks,
er ekki ábyrg pólitík. Vandamálið
er ekki staðsetning Landspítala
heldur þarf að ráðast í nauðsyn-
legar úrbætur samgöngumála í
höfuðborginni, ekki fyrir Land-
spítala heldur fyrir okkur öll. Þar
þarf ný borgarstjórn að taka til
hendinni.
Endurteknar rangfærslur um
byggingu Landspítala við Hringbraut
Eftir Þorkel
Sigurlaugsson » Frambjóðendur til
borgarstjórnar eiga
ekki að gefa ríkisstjórn-
inni neinn afslátt af því
að klára núverandi upp-
byggingu meðferðar-
kjarna og rannsóknar-
húss árin 2023/2024.
Þorkell
Sigurlaugsson
Höfundur er formaður velferðar-
nefndar Sjálfstæðisflokksins.
thorkellsig@gmail.com
Seinni umferð Íslandsmóts
skákfélaga hefur undanfarin ár
farið svo nálægt dagskrá Reykja-
víkurskákmótsins að úrslit og við-
ureignir hafa því ekki alltaf fengið
verðskuldaða athygli. Eins og
komið hefur fram vann Víkinga-
klúbburinn öruggan sigur með
einu hæsta vinningshlutfalli í sögu
keppninnar. Þess ber þó að geta
að liðið sem hafnaði í 2. sæti, Hug-
inn, fékk fleiri mótsstig og réði
þar mestu sigurinn yfir Víkinga-
klúbbnum í lokaumferðinni. Grein-
arhöfundur deilir þeirri skoðun
með fjölmörgum að löngu sé tíma-
bært að taka upp stigafyrir-
komulagið eins og í þýsku Bundes-
ligunni, á ólympíumótum og víðar.
Þetta er ekki sett fram til að gera
lítið úr frammistöðu Íslandsmeist-
aranna sem unnu góðan sigur eftir
þeim leikreglum sem í gildi voru.
Í síðustu viku skilaði Daði Óm-
arsson því ágæta verki að færa
inn á skrár allar skákir 1. og 2.
deildar. Þetta er mikið verk og
þakkarvert og margar athygl-
isverðar skákir sjá nú dagsins ljós.
Ein sú umtalaðasta var viðureign
Margeirs Péturssonar á 3. borði
gegn litháíska stórmeistaranum
Kveinys í keppni TR við Vík-
ingaklúbbinn. Eftir vafasama byrj-
un hitti Margeir á sterka leiki í
flóknu miðtafli og var með unnið
tafl þegar hér var komið sögu:
Íslandsmót skákfélaga 2017-’18,
7. umferð:
Margeir – Kveinys
36. Hf1!
Svartur vonaðist til að geta leik-
ið 36. … Rgf3 en nú valdar hrók-
urinn f3- reitinn og hótar mát-
sókn.
36. … Rd7
Eini leikurinn en hvítur á 37.
Hf7 og svartur er varnarlaus, t.
37. … Hc8 38. Dc3 eða 38. Hh7.
37. bxc6??
Hrikalegur afleikur sem ekki er
hægt að skýra með öðru en æf-
ingaleysi.
37. …. Dxa5
– og hvítur gafst upp.
Hin þétta dagskrá mótsins gat
af sér margar yfirsjónir jafnvel
hjá hinum sterkustu meisturum.
Þannig misstu Hannes Hlífar og
Hjörvar Steinn vænlegar stöður
niður í tap í viðureign Hugins og
TR.
Ef hægt er að draga lærdóm af
næstu skák þá er hann sá að eng-
inn skyldi stóla á æfingaleysi hjá
„gömlu brýnunum.“ Daði Ómars-
son vann glæsilegan sigur á Nóa
Síríus-mótinu í fyrra og vann þá
t.d. Jón L. Árnason sem var eitt-
hvað að þæfast í vængtafli. Við
svipað tækifæri nokkrum áratug-
um fyrr – eftir 1. Rg1-f3 – stóð
sjálfur Mikhael Tal yfir Jóni og
sagði honum að þetta ætti hann
ekki að gera. Af hverju? spurði
Jón á móti. Vegna þess að þú ert
kóngspeðsmaður, var svarið.
Hvort töframaðurinn hafi vitjað
Jóns fyrir eftirfarandi skákina
liggur ekki fyrir en hann tefldi all-
tént í stíl meistarans:
Íslandsmót skákfélaga 2017-’18,
7. umferð:
Jón L. Árnason – Daði Ómars-
son
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 e6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 a6 5. Bd3 Bc5 6. Rb3 Be7 7.
0-0 d6 8. c4 b6 9. Rc3 Rf6 10. f4
0-0 11. Df3 Bb7 12. Bd2 Rbd7 13.
Kh1 Dc7 14. Hae1 Hfe8
Allt eftir „bókinni“ en Jón hefur
margsinnis meðhöndlað svipaðar
stöður með góðum árangri.
15. Rd4 g6 16. Dh3 e5 17. Rf3
exf4 18. Bxf4 Rc5 19. Rg5 h6
20. Rxf7!
Tilfinningin fyrir stöðunni svík-
ur ekki. Allir menn hvíts eru til-
búnir til sóknar.
20. …. Kxf7 21. e5 Rxd3 22.
Dxd3 dxe5 23. Bxe5 Had8 24.
Rd5! Bxd5 25. cxd5 Hd6
Betra var 25. … Dc5 en „vél-
arnar“ segja mér að hvítur eigi að
vinna eftir 26. b4! Dxb4 27. He4
Dc5 28. De2! o.s.frv.
26. Bxd6 Dxd6 27. He6! Db4 28.
De2 Da4 29. De5 Dh4 30. d6
– og svartur gafst upp.
Skák
Helgi Ólafsson
helol@simnet.is
Þú ert kóngspeðsmaður Móttaka aðsendra
greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfu-
daga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk-
un og tryggir öryggi í sam-
skiptum milli starfsfólks Morg-
unblaðsins og höfunda.
Morgunblaðið birtir ekki greinar
sem einnig eru sendar á aðra
miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn „Senda inn grein“ er
valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít-
arlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem
notanda í kerfið er nóg að slá inn
kennitölu notanda og lykilorð til
að opna svæðið. Hægt er að
senda greinar allan sólarhringinn.
Nánari upplýsingar veitir
starfsfólk Morgunblaðsins alla
virka daga í síma 569-1100 frá kl.
8-18.