Morgunblaðið - 21.04.2018, Side 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018
✝ Gréta SigrúnTryggvadóttir
fæddist 12. ágúst
1941 á Raufafelli í
Austur-Eyjafjalla-
hreppi. Hún and-
aðist á gjörgæslu-
deild FSA 11. apríl
2018.
Foreldar Grétu
Sigrúnar voru Ei-
ríkur Tryggvi Þor-
björnsson, f. 6.8.
1909, d. 22.5. 1969, og Kristín
María Guðjónsdóttir, f. 18.2.
1909, d. 24.10. 1986. Bræður
Grétu Sigrúnar eru drengur, f.
andvana 1935, Ástþór Jón
Tryggvason, f. 6.4. 1937, d.
13.10. 2014, Þórir Finnur
Tryggvason, f. 22.3. 1939, og
Ólafur Guðjón Tryggvason, f.
5.6. 1940, d. 20.2. 2010.
Hinn 27. desember 1969 gift-
ist Gréta Sigrún Guðmundi Má
Sigurbjörnssyni, f. 12.10. 1943,
d. 4.4. 2014, þau slitu sambúð
árið 1992. Börn Grétu Sigrúnar
og Guðmundar eru: 1) Sigríður
Kolbrún, f. 1966, maki Svavar
Magnússon, f. 1960, börn
þeirra eru a) Guð-
mundur Gísli, maki
Friðrik Halldór
Kristjánsson. b)
Magnús Ingi, maki
Oddný Alda
Bjarnadóttir. c)
Sigurður Svavar,
maki Poula Rós
Mittelstein og syn-
ir þeirra Petur
Marinó og Daníel
Máni. d) Kristín
María, maki Róbert Atli Di-
dron. 2) Tryggvi Kristbjörn, f.
1967, m. Lára Soffía Hrafns-
dóttir, f. 1971, börn þeirra a)
Petra Breiðfjörð, maki Ingi
Valur Davíðsson, synir þeirra
eru Baltasar Ríó og Rómeó
Bent. b) Alexander Reynir, c)
Siguringi Hólmgrímsson. 3)
Guðmundur Rúnar, f. 1974,
maki Sigurlaug Íris Hjaltested,
f. 1974, börn þeirra eru Birg-
itta Þórey, maki William Divin-
agracia. b) Greta Þórunn, c)
Áróra Sif.
Útför Grétu fer fram frá
Stærri-Árskógskirkju í dag, 21.
apríl 2018, klukkan 13.30.
Að morgni miðvikudagsins 11.
apríl síðastliðinn lést móðir mín
eftir tveggja ára baráttu við
krabbamein.
Elsku mamma mín, þá er kom-
ið að kveðjustund. Mikið á ég eftir
að sakna samtala okkar, við hitt-
umst næstum á hverjum degi og
töluðumst við í síma 2-3 á dag. Þú
varst sönn hetja í þinni baráttu,
aldrei kvartaðir þú, alveg sama
hversu mikið sem þú varst veik.
Þá er komið að kveðjustund,
sem kom of fljótt í mínum huga.
Ég vissi að kallið kæmi en var
ekki tilbúin. Ég veit að pabbi, afi
og amma munu taka vel á móti
þér. Ég kveð þig með tárum og
mun ávallt elska þig, mamma
mín. Guð geymi þig.
Blessuð vertu baugalín.
Blíður Jesú gæti þín,
elskulega móðir mín;
mælir það hún dóttir þín.
(Ágústína J. Eyjólfsdóttir)
Þín dóttir
Sigríður Kolbrún.
Elsku amma Gréta.
Í dag verður elsku amma mín
lögð til hinstu hvílu.
Mér er þungt fyrir brjósti að
horfa á eftir henni og er ég ekki
einn um það.
Ég man eftir ferðinni okkar
saman sem er mér mjög minnis-
stæð.
Við keyrðum suður og stopp-
uðum í gamla Staðarskála og var
ferðinni heitið undir Eyjafjöll til
Ástþórs að ná í kjöt. Svo komum
við við hjá Önnu og Kidda á Rauf-
arfelli sem var hefð. Allt þetta
gerðum við á einum degi, elsku
amma, og fífluðumst við mikið í
þessari ferð.
Mig langar að koma með eitt
ljóð til þín, elsku amma:
Þú varst okkur amma svo undur góð
og eftirlétst okkur dýran sjóð,
með bænum og blessun þinni.
Í barnsins hjarta var sæði sáð,
er síðan blómgast af Drottins náð,
sá ávöxtur geymist inni.
Við allt viljum þakka amma mín,
indælu og blíðu faðmlög þín,
þú vafðir oss vina armi.
Hjá vanga þínum var frið að fá
þá féllu tárin af votri brá,
við brostum hjá þínum barmi.
Við kveðjum þig elsku amma mín,
í upphæðum blessuð sólin skín,
þar englar þér vaka yfir.
Með kærleika ert þú kvödd í dag,
því komið er undir sólarlag,
en minninga ljós þitt lifir.
Leiddu svo ömmu góði guð
í gleðinnar sælu lífsfögnuð,
við minningu munum geyma.
Sofðu svo amma sætt og rótt,
við segjum af hjarta góða nótt.
Það harma þig allir heima.
(Halldór Jónsson)
Þangað til næst, elsku amma
Gréta. Þinn
Guðmundur Gísli.
Elsku amma.
Þegar við Magnús kynntumst
þá talaði hann um þig og hve mik-
ilvæg þú værir honum og um leið
þótti mér vænt um þig án þess þó
að hafa hitt þig, ég vissi einfald-
lega að kona sem hefði svo falleg
áhrif á þennan unga mann væri
dásamleg kona en mig óraði ekki
fyrir þeirri ólýsanlegu væntum-
þykju sem ég fann þegar við hitt-
umst fyrst í mars 2012. Strax frá
og með þeirri stundu varstu ekki
lengur bara amma hans Magga
heldur amma okkar beggja. Orð
fá ekki lýst hve heppin við erum
að hafa fengið þig sem ömmu,
annað okkar í vöggugjöf og hitt
síðar á lífsleiðinni, þar sem við
eigum bara hund og kött en engin
börn þá talaðirðu um þau sem
hluta af langömmubörnunum og
þótti okkur ósköp vænt um það.
Þú kenndir okkur að ást er ekki
tengd blóðböndum heldur því
sem býr í hjartanu og mun það
fylgja okkur út lífið. Ekkert var
betra en hitta þig eða heyra rödd-
ina þína í símanum og í hvert
skipti sem þú kvaddir okkur
sagðist þú elska okkur og ó hve
vel okkur leið að heyra í þér rödd-
ina, að heyra þig segja þessi þrjú
mikilvægu og sterku orð. Stund
með þér gerði alla daga sannar-
lega betri.
Í kringum þig gátum við alltaf
verið við sjálf og þannig komst þú
til dyranna, klædd eins og þú
varst í hvert sinn. Hreinskilin,
sanngjörn og umfram allt full af
umhyggju fyrir öllum dýrum og
mönnum. Þú varst svo glæsileg
kona á allan hátt og okkur mik-
ilvæg fyrirmynd.
Nú er komin sú stund sem í
von okkar var í órafjarlægð.
Stund sem við höfum kviðið fyrir
og þrátt fyrir veikindi og vitn-
eskju um að líkami þinn myndi á
endanum gefa sig þá smitaðir þú
okkur af óbilandi baráttuhug og
fögnuður yfir hverri framför,
veittir okkur þá von að þú ættir
mun meira eftir og við ættum eft-
ir að eiga margar stundir saman,
jafnvel eftir að símtalið kom um
að þú hefðir verið flutt með
sjúkrabíl til Akureyrar trúðum
við því að þú kæmir sterkari til
baka. Því voru fréttirnar um frá-
fall þitt á einhvern hátt líkt og
þruma úr heiðskíru lofti og til-
finningin einkennist af dofa og
von um að þetta sé allt vondur
draumur og við vöknum á hverri
stundu þar sem allt verður gott á
ný.
Minning þín lifir alla tíð í
hjarta okkar sem eftir lifum.
Elsku yndislega amma okkar,
sem ert núna orðin fallegur eng-
ill, við viljum þakka þér fyrir allar
samverustundirnar og fyrir alla
þá ást sem þú okkur gafst. Ef við
ættum eina ósk myndum við óska
þess að hitta þig og segja þér hve
heitt við elskum þig þó að ekki
væri nema einu sinni enn. Við
hittumst aftur hinumegin þegar
okkar tími kemur en þangað til
mun minning þín ylja okkur um
hjartarætur. Við munum ávallt
elska þig af öllu okkar hjarta.
Margt þú hefur misjafnt reynt,
mörg þín dulið sárin.
Þú hefur alltaf getað greint,
gleði bak við tárin.
(J.Á.)
Ástar- og saknaðarkveðjur.
Þinn
Magnús Ingi
og Oddný Alda.
Minningarnar hrannast upp er
við kveðjum einstaka vinkonu.
Vinskapur okkar spannar
fimmtíu ár og aldrei féll skuggi á
þá vináttu.
Margt var brallað í gegnum ár-
in, þegar við Garðar komum
norður, fyrst til Grétu og Gumma,
en þegar þau slitu samvistum þá
til Grétu, sem tók á móti okkur
eins og henni einni var lagið. Þá
var spilað frameftir nóttu, spjall-
að og hlegið enda stutt í gamanið
hjá Grétu. Á daginn sátum við og
prjónuðum og veltum vöngum yf-
ir þessari og hinni prjónaupp-
skriftinni, en Gréta var snillingur
með prjónana og liggur eftir hana
aragrúi verka, en ekkert þótti
henni skemmtilegra en að prjóna
á barnabörnin og ekki síst á
langömmustrákana sem hún kall-
aði litlu puttana sína. Gréta gerði
ekki upp á milli manna og var
hrókur alls fagnaðar.
Fyrir nokkrum árum kom hún
suður í afmælið mitt alveg óvænt,
hafði hún sagt mér að hún treysti
sér ekki, en það var í febrúar og
allra veðra von, en nema hvað hún
ákvað að skella sér sem leynigest-
ur, við þvílíkan fögnuð hjá mér,
oft hlógum við að viðbrögðunum
hjá mér þegar hún birtist.
Ég get ekki verið annað en
þakklát fyrir að geta aðstoðað
hana þegar hún veiktist og þurfti
að vera fyrir sunnan, en mikið var
hún fegin þegar hún komst norð-
ur.
Það var alltaf gott að heyra í
Grétu en við töluðum saman í
síma nánast í hverri viku.
En það var ekki talað um veik-
indi ef hún var spurð leið henni
vel, en hún gat ekki þakkað lækn-
um og starfsfólki Dalbæjar nóg
fyrir einstaka umönnun, sagði að
það væri dekrað við hana á allan
hátt og megum við vera þakklát
fyrir það.
Við vorum farnar að hlakka til
að hittast í byrjun júlí eins og
undanfarin ca. 30 ár en þá komum
við Garðar norður, hann að fara á
Pollamót Þórs en við gistum hjá
Grétu í Árgerði öll árin fyrir utan
nokkur ár.
Við sendum börnum Grétu,
þeim Kollu, Tryggva og Rúnari
og tengdabörnum, barnabörnum
og langömmubörnum okkar inni-
legustu samúðarkveðjur.
Megi góðar vættir styrkja ykk-
ur og vernda á þessum erfiðu tím-
um.
Við kveðjum Grétu, vinkonu
okkar, með söknuði í hjarta.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
(Vald. Briem.)
Anna og Garðar.
Gréta Sigrún
Tryggvadóttir
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Jón G. Bjarnason,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
STEFNIR HELGASON,
lést þriðjudaginn 10. apríl.
Útförin fer fram frá Digraneskirkju
mánudaginn 23. apríl klukkan 15.
Birna Stefnisdóttir Aðalsteinn Steinþórsson
Brynja Sif Stefnisdóttir Agnar Strandberg
Sigurður Hrafn Stefnisson Hekla Ívarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÞÓRÓLFUR ÞORSTEINSSON,
Laugartúni 19a, Svalbarðseyri,
lést á heimili sínu fimmtudaginn 12. apríl.
Útför hans fer fram frá Svalbarðskirkju
föstudaginn 27. apríl klukkan 13.30.
Anna Jóhannesdóttir
Þórdís Þórólfsdóttir Þorvaldur Vestmann
Árný Sveina Þórólfsdóttir Tryggvi Jónsson
Eva Dís, Bjarki Þór og Anna Stella
Daníel Snær og Aríana Ísis
Ástkær móðir okkar, dóttir, systir og
mágkona,
ÞÓRA STEPHENSEN
aðstoðarskólastjóri,
sem lést mánudaginn 16. apríl, verður
jarðsungin frá Dómkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 24. apríl klukkan 13.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Heilaheill.
Örvar Andrésson
Dagbjört Andrésdóttir
Þórir Stephensen Dagbjört G. Stephensen
Elín Stephensen
Ólafur Stephensen Ragnheiður D. Agnarsdóttir
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
HELGA JÓHANNESDÓTTIR,
áður til heimilis að Heiðarvegi 4,
Selfossi,
lést á hjúkrunarheimilinu Ljósheimum,
mánudaginn 16. apríl.
Hún verður jarðsungin frá Selfosskirkju miðvikudaginn 25. apríl
klukkan 14.
Fyrir hönd aðstandenda,
Oddný Magnúsdóttir Emil Guðjónsson
Jónína Valdimarsdóttir Guðmundur Baldursson
Björgvin Þ. Valdimarsson Sigríður Magnea Njálsdóttir
Guðrún Valdimarsdóttir Sigurður Bragason
Magnea K. Valdimarsdóttir
Björk Valdimarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
HÁLFDÁN DAÐI HINRIKSSON,
áður til heimilis í Aðalstræti 13,
Ísafirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Hömrum,
Mosfellsbæ, mánudaginn 16. apríl.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 23. apríl
klukkan 11.
Fyrir hönd aðstandenda,
Þórir Hálfdánarson
Elsku mamma, tengdamamma, amma og
langamma,
EYGLÓ INGVADÓTTIR,
lést á líknardeildinni í Kópavogi
mánudaginn 16. apríl.
Útför hennar fer fram í Laugarneskirkju
föstudaginn 27. apríl klukkan 11.
Haraldur Schiöth Elfarsson
Gunnar Þór Schiöth Elfarsson, Arnhildur R. Árnadóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
UNNUR INGÓLFSDÓTTIR,
lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli aðfaranótt
laugardags, 14. apríl.
Útförin fer fram frá Áskirkju miðvikudaginn
25. apríl klukkan 13.
Björn Svavarsson
Svavar Bergsteinn Björnsson Eva-Marie Björnsson
Margrét Gróa Björnsdóttir Egill Þorsteinsson
Hjördís Björnsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn