Morgunblaðið - 21.04.2018, Page 43
1992-93 og aftur árin 1996-1997. Einn-
ig hefur Arnór átt sæti í ýmsum
nefndum og ráðum bæjarins, til dæm-
is áfengisvarnarnefnd og framtals-
nefnd.
Arnór sat í stjórn Almennra líf-
trygginga hf. 1984-88, í stjórn Versl-
unarmannafélags Reykjavíkur 1978-
82, í stjórn Þingeyingafélagsins 1976-
82, var varaformaður sóknarnefndar
Hjallakirkju 1987-2002. Þegar Linda-
sókn var stofnuð í febrúar 2002 var
hann kosinn sóknarnefndarformaður
og hefur verið þar síðan. Hann átti
sæti í byggingarnefnd við byggingu
Lindakirkju. Auk þessa sat hann í
stjórn Kirkjugarða Reykjavíkur-
prófastsdæma 1987-2000. Arnór sat í
stjórn eignarhaldsfélags Brunabóta-
félags Íslands EBÍ frá 2003-11.
Arnór heldur upp á afmælið ásamt
konu sinni á Tenerife.
Fjölskylda
Arnór kvæntist 6.6. 1964 Betsý
Ívarsdóttur, f. 22.12. 1944. Hún er
dóttir hjónanna Ívars Ágústssonar bif-
reiðastjóra, f. 3.5. 1921, d. 12.1. 1950,
og Regínu Rósmundsdóttur símavarð-
ar, f. 29.10. 1923, d. 7.2. 2009.
Börn Arnórs og Betsýar eru: 1)
Páll, f. 2.6. 1965, fisksali í Reykjavík,
kvæntur Sigríði Rut Hallgrímsdóttur
og eru börn þeirra Andri Már og
Andrea; 2) Ívar f. 2.6. 1965, d. 30.4.
1994, bifreiðasmiður í Kópavogi. Hann
var kvæntur Jóhönnu Steinsdóttur
hárgreiðslumeistara og eiga þau Silju,
Katrínu, Evu Karen og Arnór Stein; 3)
Ágúst f. 17.11. 1971. útibússtjóri á Eg-
ilsstöðum, kvæntur Maríu Veigsdóttur
og eru börn þeirra Viktor og Baldvin;
4) Elísabet, f. 11.6. 1981, d. 15.5. 2008,
dóttir hennar er Betsý Ásta.
Systkini Arnórs eru: Jóhanna f.
10.2. 1933, d. 24.1. 2017, fyrrv. yfir-
féhirðir í Búnaðarbankanum, gift séra
Jóni Bjarman sjúkrahúspresti og áttu
þau tvö börn; Stefán, f. 7.12. 1934, d.
2.1. 2018, fyrrv. bankastjóri Búnaðar-
banka Íslands, kvæntur Arnþrúði
Arnórsdóttur kennara og eiga þau
fjögur börn; Þorleifur, f. 17.6. 1938, fv.
sýslumaður í Kópavogi, kvæntur Guð-
björgu Kristinsdóttur lyfjafræðingi og
eiga þau eitt barn; Sigurður, f. 30.7.
1948, d. 19.9. 2017, rithöfundur í
Reykjavík, kvæntur Kristínu Jóhann-
esdóttur kvikmyndagerðarmanni og
eiga þau eitt barn.
Foreldrar Arnórs voru hjónin séra
Páll Þorleifsson, f. 23.8. 1898, d. 19.8.
1974, prófastur á Skinnastað í Öxar-
firði og Guðrún Elísabet Arnórsdóttir,
f. 22.12. 1905, d. 18.11. 1983, húsmóðir.
Þau bjuggu að Skinnastað í 40 ár.
v
Úr frændgarði Arnórs L. Pálssonar
Arnór L. Pálsson
Jón Stefánsson
b. á Neðra-Nesi, af Presta-
Högna ætt, bróðursonur
Þuríðar, langömmu Vigdísar
Finnbogadóttur, fyrrv. forseta
Guðrún Elísabet Jónsdóttir
húsfr. á Hesti
Arnór Þorláksson
pr. á Hesti í Borgarfirði
Guðrún Elísabet Arnórsdóttir
húsfr. á Skinnastöðum
Þorlákur Stefánsson
pr. á Undirfelli í Vatnsdal
Vilborg Þórðardóttir
húsfr. b. í Krossbæjargerði
Sigurður Þórarinsson
b. í Krossbæjargerði
Sigurborg Sigurðardóttir
húsfr. í Hólum
Þorleifur Jónsson
alþm. í Hólum
Páll Þorleifsson
prófastur á Skinnastað
Þórunn Þorleifsdóttir
húsfr. í Hólum
Jón Jónsson
hreppstj. í Hólum í Nesjum
Þorbergur Þorleifsson
alþm. í Hólum
Jón Þorleifsson
listmálari
Þórarinn B.
Þorláksson
fyrsti lærði
listmálarinn
hér á landi
Þorlákur Þorlákss.
hreppstj. í
Vesturhópshólum
Jón
Þorláksson
forsætisráðh.
dr.Björg
Þorláksson
fyrsti íslenski
kvendoktorinn
Marta Stephensen
húsfr. á Neðra-Nesi
Lárus
Arnórsson
pr. á Miklabæ
Ragnar Fjalar
Lárusson
sóknarprestur
í Hallgrímskirkju
Stefán
Lárusson
prestur í Odda
Jóhanna Pálsdóttir
yfirféhirðir við
Búnaðarbankann
Stefán Pálsson
bankastjóri
Búnaðarbankans
Sigurður Pálsson
skáld og rithöfundur
Þorleifur Pálsson fyrrv.
sýslumaður í Kópavogi
Guðrún Jónsd.
húsfr.
Hallgrímur
Sveinsson
biskup
Friðrik
Hallgrímss.
dómprófastur
Elísabet
Sveinsdóttir
húsfr. í Rvík.
Sveinn
Björnsson
forseti
Sigurbjörg Jónsdóttir
húsfr. á Undirfelli
Hans Stephensen
b. að Hurðarbaki
í Kjós
Þorsteinn Ö. Stephensen
leiklistarráðunautur RÚV
Guðrún Ö.
Stephensen
húsfr. í Rvík
Ögmundur
Jónasson
fyrrv. ráðherra
Hans St.Ögmundur
Stephensen
ökumaður í
Hólabrekku á
Grímsstaðaholti, b.
að Hurðarbaki í Kjós
ÍSLENDINGAR 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018
Karl Dietrich Roth fæddist íHannover í Þýskalandi 21.apríl 1930. Foreldrar hans
voru Karl Ulrich Roth bókari og
Vera Ella Dolla Roth Feltman, hús-
móðir og ljóðskáld.
Fyrstu 13 árin bjó Dieter í for-
eldrahúsum í Hannover. Árið 1943
var hann, ásamt hópi barna með
svissneskan ríkisborgararétt, send-
ur til Sviss til að forða þeim frá
hörmungum stríðsins. Í Zürich hlaut
hann almenna menntun til sautján
ára aldurs. Í stríðslok settist fjöl-
skylda hans að í Sviss.
Dieter lauk námi í auglýsinga-
teiknun í Bern árið 1951, en vann
jafnframt að eigin myndlist. Árið
1955 hóf hann störf sem hönnuður í
Kaupmannahöfn en í byrjun árs
1957 fluttist Dieter til Reykjavíkur
og var fyrsta einkasýning hans hér á
landi haldin árið 1958. Hann hafði
mikil áhrif á þróun íslenskrar mynd-
listar á 7. og 8. áratugnum.
Af mörgum hefur Dieter Roth
verið viðurkenndur sem einn frum-
legasti og afkastamesti listamaður
þessarar aldar. Hann var einn af for-
vígismönnum konkret-ljóðlistar,
hreyfilistar og bókverkagerðar; í
senn ljóðskáld og rithöfundur, kvik-
myndaleikstjóri, gjörningalista-
maður, hönnuður, grafíker, listmál-
ari, myndhöggvari, tónsmiður, kenn-
ari og útgefandi bóka, tímarita,
geisladiska og myndbanda. Hann
kenndi við Philadelphia Museum
College of Art og Rhode Island
School of Design og var skipaður
prófessor við Akademie der Kunst í
Düsseldorf árið 1968, en sagði starf-
inu lausu skömmu síðar.
Dieter Roth sýndi verk sín víða
um heim og verk hans eru í eigu
allra helstu listasafna báðum megin
Atlantsála auk þess sem honum
hlotnuðust mörg eftirsótt verðlaun á
ferlinum.
Dieter Roth var giftur Sigríði
Björnsdóttur en þau skildu. Börn
þeirra eru Karl, Björn og Vera og
stjúpdóttir hans er Guðríður Adda
Ragnarsdóttir. Síðustu árin var
Dieter búsettur í Basel í Sviss.
Dieter Roth lést í Basel 5.6. 1998.
Merkir Íslendingar
Dieter Roth
Laugardagur
85 ára
Ólafur Einar Ólafsson
Sigurður Þórhallsson
80 ára
Halldór Gíslason
Páll G. Sigurþórsson
Ragnhildur Björnsson
Vera Einarsdóttir
75 ára
Arnór L. Pálsson
Bergljót B. Gíslason
Edda Steingrímsdóttir
Guðjón Samúelsson
70 ára
Einar G. Friðgeirsson
Hólmberg Magnússon
Ingveldur G. Þórarinsdóttir
Kristín Sæmundsdóttir
Margrét Magnúsdóttir
Óskar Gíslason
Rolf Birger Hannén
Sigurður Ingi Sigurðsson
Sigurþór L. Sigurðsson
Stefán Friðfinnsson
60 ára
Ewa Urszula Kraszewska
Gylfi Sigurðsson
Haraldur Leifsson
Helga G. Guðmundsdóttir
Inga Steinunn Ágústsdóttir
Jón Kristján Jóhannsson
Ottó Þormar
Sigríður D. Bergmann
Sigurlaug Díana Kristjánsd.
Þórhallur Ö. Gunnlaugsson
50 ára
Borghildur Þórisdóttir
Einar Sigvaldason
Ester Þorsteinsdóttir
Gunnar Már Geirsson
Gunnþórunn Guðmundsd.
Hrönn Ingólfsdóttir
Hörður Bender
Kristín Ósk Kristinsdóttir
Kristrún Júlíusdóttir
Laima Kuodiene
Sigurþór Sævarsson
Vaidas Rasiukevicius
Vilhjálmur Birgisson
40 ára
Anna María Ingþórsdóttir
Anna Sif Farestveit
Ágúst Elfar Jóhannsson
Bjarki Már Halldórsson
Daníel Pétur Daníelsson
Eyþór Guðmundsson
Gunnar Thoroddsen
Padraig Eamonn Mara
Radoslav Betinský
Sandra Rós Pétursdóttir
Sigrún Pétursdóttir
Tómas Edwardsson
Yngvi Páll Gunnlaugsson
30 ára
Andri Már Engilbertsson
Aron Steinþórsson
Bernharð Arinbjarnarson
Davíð Sigurðsson
Eyþór Vestmann Hilmarss.
Gunnar Grétar Sverrisson
Ignas Gaizauskas
Juvicsa R. Vela Carrero
Karen Ösp Hansen
Kristófer Úlfur Hauksson
Stefán Hrafn Bjarkason
Sunna Einarsdóttir
Þorbjörg D. Kristbjörnsd.
Þorsteinn Jóhannsson
Þórunn Lilja Hilmarsdóttir
Sunnudagur
90 ára
Ása Kristín Hermannsdóttir
Bergljót Einarsdóttir
Einar Hörður Einarsson
Guðrún Sigríður Ingimarsd.
85 ára
Elísabet Jóna Erlendsdóttir
Erna Ósk Guðmundsdóttir
Lilja Ársælsdóttir
Marteinn Elíasson
80 ára
Ari Hermann Einarsson
Jón Hilmar Þórarinsson
Ragnar Páll Einarsson
Þóra Sandholt
75 ára
Anna Jóna Ágústsdóttir
Ari Stefánsson
Bergvin Oddsson
Elín Dóra Ingibergsdóttir
Erla Sigurlaug Indriðadóttir
Guðmundur M. Oddsson
Ingi Sigurjónsson
Kristín J.H. Green
Magnúsína Guðmundsd.
Sigurbjörg Magnúsdóttir
Sigurður Björgvinsson
Sigurður Hannesson
Stefanía Hávarðsdóttir
70 ára
Elín Björg Jóhannsdóttir
Gísli P. Gunnarsson
Guðbjörg Benjamínsdóttir
Hildur G. Jónsdóttir
Sveinbjörn Einarsson
60 ára
Alistair Kim Macintyre
Anna Dóra Garðarsdóttir
Anna Lárusdóttir
Ágúst Kristján Eyjólfsson
Ásgerður Ingólfsdóttir
Bjarndís Lárusdóttir
Guðrún Guðmundsdóttir
Hannes Friðriksson
Janina Pieriene
Oddur Bjarni Thorarensen
Oddur Friðriksson
Páll Marel Sigþórsson
Sigríður Aðalgeirsdóttir
Unnur Birna Þórhallsdóttir
Þóra Laufey Storm
50 ára
Erik Marcus Pettersson
Gunnar Óli Pétursson
Halla Hallgrímsdóttir
Jónína Þórunn Erlendsd.
Kristín U. Aðalsteinsdóttir
Kristrún Þorvaldsdóttir
Margrét Óskarsdóttir
Sigfús Snorrason
Sveinn Heiðar Sveinsson
Þorsteinn Helgason
40 ára
Erla Ósk Benediktsdóttir
Gunnur Ýr Stefánsdóttir
Ingólfur Einar Kjartansson
Jeanevee Y. Dagbjartsson
Monika Józefa Mruk
Orri Svavar Guðjónsson
Ólafur Ómarsson
Runólfur Björn Elíasson
Signý Kolbeinsdóttir
Sigtryggur B. Jónatansson
Steinn Jónsson
Valentin Sinapov
Þórunn Hafstað
Örn Óskar Guðjónsson
30 ára
Anna Þórunn Guðbjörnsd.
Arnór Gunnar Hjálmarsson
Ása Dögg Aðalsteinsdóttir
Einar Jóhann Konráðsson
Guðjón Þór Hjaltalín
Guðrún Marta Örvar
Haraldur A.Á. Bjarman
Idajet Zahiri
Jóhannes Pálsson
Marinó Már Valsson
Michal Wojciech Nikodem
Pawel Artur Kowal
Þórður Jason Þórðarson
Þórhallur Björnsson
Til hamingju með daginn
86
ÁRA
Starfsmannafatnaður
fyrir hótel og veitingahús
Hótelrúmföt og handklæði
fyrir ferðaþjónustuna
Eigum allt fyrir:
• Þjóninn
• Kokkinn
• Gestamóttökuna
• Þernuna
• Vikapiltinn
• Hótelstjórnandann
Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | sími 525 8210 | eddaehf@eddaehf.is | www.eddaehf.is
Allt lín fyrir:
Hótelið • Gistiheimilið
Bændagistinguna • Airbnb
Veitingasalinn • Heilsulindina
Þvottahúsið • Sérverslunina