Morgunblaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1. M A Í 2 0 1 8
Stofnað 1913 101. tölublað 106. árgangur
PRJÓNAUPP-
SKRIFTIR OG
MORSSENDINGAR SÆLUVIKA Í SKAGAFIRÐI
ÞAR SEM ÁIN
STREYMIR EFTIR
NORMAN MACLEAN
FJÖLDI VIÐBURÐA 14 FIMM STJÖRNUR 31ÚTGÁFA 12
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Gangi áform Icelandair Group, Prim-
era Air og WOW air eftir gætu nærri
150 farþegaþotur verið í rekstri félag-
anna innan fárra ára. Við það bætist
m.a. að Air Atlanta Icelandic hefur nú
14 þotur og Bluebird Cargo 8 þotur.
Bæði félög eru í vexti.
Hrafn Þorgeirsson, forstjóri Prim-
era Air, segir tækifærin mörg.
„Ef áætlanir okkar ganga eftir
ið að íþyngja rekstri Primera Air.
Bogi Nils Bogason, framkvæmda-
stjóri fjármála hjá Icelandair Group,
segir „líklegt að ef olíuverð helst
óbreytt, eða hækkar frá því sem nú
er, muni fargjöld hækka á síðari hluta
ársins“. „Á móti kemur að Icelandair
Group ver ríflega helming af áætlaðri
eldsneytisnotkun tólf mánuði fram í
tímann og það minnkar skammtíma-
áhrifin talsvert.“
Stefna á 130-148 þotur
Félögin Primera Air, WOW air og Icelandair Group áforma vöxt á næstu árum
Forstjóri Primera Air segir hækkandi olíuverð farið að íþyngja rekstri félagsins
MFlugfélögin í háflugi »4
sjáum við auðveldlega fyrir okkur að
vera með 30-40 þotur í flotanum eftir
þrjú til fjögur ár… Það á sér stað
ákveðin bylting. Nýju þoturnar gera
lággjaldaflugfélögunum mögulegt að
fara inn á þessar lengri leiðir sem
hafa ekki verið hagkvæmar hingað
til,“ segir Hrafn og vísar m.a. til flugs
frá Austur-Evrópu til Asíu.
Þá sér Skúli Mogensen, stofnandi
WOW air, fyrir sér jafnvel tvöföldun á
flota félagsins á næstu árum.
Hrafn segir hækkandi olíuverð far-
Flugflotinn stækkar
148
háspá130
lágspá
Fjöldi véla samkv. spám flugfélaganna
2018 2021
92
Yfirvöld í Ísrael hafa komist yfir mikið
magn stolinna gagna sem sýna að Ír-
anar hafi verið að þróa kjarnorkuvopn
í langan tíma og logið að umheiminum
í aðdraganda kjarnorkusamkomulags-
ins sem gert var við landið árið 2015.
Samkomulagið fól í sér að Íranar
hægðu á kjarnorkutilraunum og
minnkuðu birgðir af auðguðu úrani,
gegn því að refsiaðgerðum og við-
skiptaþvingunum gegn þeim yrði af-
létt.
„Kjarnorkusamkomulagið er byggt
á lygum. Þetta er skelfilegt sam-
komulag sem hefði aldrei átt að sam-
þykkja,“ sagði Benjamin Netanyahu á
blaðamannafundi þar sem hann
greindi frá upplýsingunum. Utanríkis-
ráðherra Írans hafnar ásökunum Ísr-
aela með öllu og segir Netanyahu kalla
„úlfur, úlfur“ á mjög hentugum tíma.
Donald Trump Bandaríkjaforseti mun
taka ákvörðun um hvort samkomulag-
inu verði slitið 12. maí.
Hið minnsta 26 hermenn, þ. á m.
margir Íranar, féllu í flugskeytaárás-
um á stöðvar Sýrlandshers í Hama og
Aleppo í gær. Jafnvel er talið að Ísr-
aelsher hafi gert árásirnar, en tals-
maður stjórnar Ísraels hefur sagt að
þeir séu staðráðnir í að koma í veg fyr-
ir að Íranar geti gert árásir á Ísrael frá
grannríkinu. »17
Íranar hafa
logið að um-
heiminum
AFP
Lygasamkomulag Netanyahu
greindi frá upplýsingunum í gær.
Ísrael segir þá
þróa kjarnorkuvopn
Haukar fögnuðu í gærkvöldi sigri á Íslandsmóti kvenna í körfuknattleik í
mikilli stemningu á heimavelli sínum á Ásvöllum í Hafnarfirði. Lauk þar
með afar spennandi úrslitarimmu á milli Hauka og Vals en oddaleik þurfti
til að knýja fram úrslit. Þar höfðu Hafnfirðingar betur, 74:70, og samtals
3:2 í rimmunni. Liðlega þúsund áhorfendur voru á Ásvöllum í gær og var
vel mætt frá báðum félögum. » Íþróttir
Spennandi úrslitarimmu lokið með sigri Hauka
Morgunblaðið/Hari
Fram-
kvæmdum við
lagfæringar á
Grindavíkurvegi,
Borgarfjarðar-
vegi og Þing-
vallavegi verður
flýtt og notaður
til þess skerfur
af sérstöku fram-
lagi ríkisins til
vegamála í ár. Annars fer megin-
hluti fjárins til að styrkja vegi um
allt land og leggja nýtt slitlag í stað
þess sem skemmst hefur í vetur.
Samgönguráðherra segir að aukið
viðhald í ár muni leiða til mikils
sparnaðar í framtíðinni. »2
Úrbótum á Grinda-
víkurvegi flýtt
Vegur Slitlag verð-
ur lagt um allt land.
Hámarksfjárhæð vinninga í
söfnunarkössum á vínveitinga-
stöðum og í spilasölum hefur
hækkað úr 100.000 kr. í 300.000
kr. eftir breytingu á reglugerð
um söfnunarkassa. Með þessu er
stefnt að því að jafna samkeppn-
isstöðu söfnunarkassa og happ-
drættisvéla en í happdrættis-
vélum sem m.a. Háskóli Íslands
rekur undir heitinu Gullnáman
geta vinningar verið margar
milljónir.
Magnús Snæbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri Íslandsspila sf. sem
reka fjölda söfnunarkassa, segir
að þau muni ekki hækka há-
marksfjárhæðina í öllum sínum
söfnunarkössum en þó ein-
hverjum eftir breytinguna.
Gildir breytingin einungis á
vínveitingastöðum og í spilasölum
og er hámarksfjárhæð einstaks
vinnings í spilakassa í sjoppu
20.000 kr. »6
Hámarksvinningur í söfnunarkössum
þrefaldast með reglugerðarbreytingu
Morgunblaðið/Kristinn
Spilakassar Hámarksfjárhæð í söfn-
unarkössum hefur hækkað.
Samgöngu- og sveitarstjórnar-
ráðuneytið hefur fengið í hend-
urnar niðurstöðu úttektar sem það
lét Oxford-háskóla gera í júní
2017 á netöryggismálum hérlendis
eftir líkani sérfræðinga.
Sigurður Ingi Jóhannsson, sam-
göngu- og sveitarstjórnarráð-
herra, kynnti hana á Alþingi.
Hann segir aðrar þjóðir vera með
netöryggismál í forgangi og eðli-
legt sé að gera úttekt á netöryggi
á Íslandi til að fá samanburð við
aðrar þjóðir. Ísland kom vel út
hvað varðar lagaumhverfi og
stefnu stjórnvalda í málaflokknum,
en stendur veikar að vígi hvað
varðar netöryggi í sambandi við
varnarmál og gæði hugbúnaðar
hérlendis. Niðurstöðunni svipaði
til niðurstöðu úttektar í Bretlandi
nema Ísland er komið skemur á
leið. Úttektin skilaði 120 ábend-
ingum til úrbóta. »14
Netöryggismál til skoðunar hjá stjórnvöld-
um eftir úttekt Oxford-háskóla á stöðunni
Morgunblaðið/Golli
Niðurstaða 120 tillögur til úrbóta.