Morgunblaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 2
Ljósmynd/Josef Malknecht
Lengjast Vinnan við Dýrafjarðar-
göng gengur vel.
Verktakar við Dýrafjarðargöng
grófu 105 metra í síðustu viku. Er
það langtum meiri árangur en náðst
hefur til þessa og með því lengsta,
eða það lengsta sem tekist hefur að
grafa á einni viku í veggöngum hér á
landi.
Göngin eru nú orðin rúmir 2 kíló-
metrar að lengd, sem er 38% af
heildarlengd ganganna. Göngin
verða 5,6 kílómetrar, þar af 5,3 kíló-
metrar í bergi og vegskálar bætast
síðan við.
Í allt verður vegurinn frá Mjólkár-
virkjun, í gegnum göngin og að
Dýrafjarðarbrú tæpir 14 kílómetrar
og styttir Vestfjarðaveg á milli sunn-
an- og norðanverðra Vestfjarða um
rúma 27 kílómetra. helgi@mbl.is
Nýtt met í
gangagreftri
Dýrafjarðargöng
lengdust um 105 m
unarsýning sem grundvallast að
mestu á sýningum sem fyrirtækið
Gagarín setti upp í Lava Centre á
Hvolsvelli og Perlunni í Reykjavík.
Hún dregur fram frumkrafta Ís-
lands, eldinn, hraunið, seigluna og
kraftinn og beinir sjónum að því
hvernig náttúruöflin hafa skapað
landið og mótað fólkið sem þar
býr.
Á von á 30 þúsund gestum
Sýningin hefur fengið góðar
viðtökur því um 1.000 gestir hafa
skoðað hana frá því á fimmtudag
að dyr hennar voru opnaðar. Hún
verður uppi í tvo og hálfan mánuð
og á Martin von á því að fá 30 þús-
und gesti á þeim tíma.
Sameiginlega sýningarrýmið
er um 350 fermetrar að stærð og
skiptast sendiráðin á um að hafa
sýningar þar. Íslenska sendiráðið
fær afnot af sýningarsvæðinu í þrjá
mánuði á eins og hálfs árs fresti.
Þótti tilvalið að nota það í þessum
tilgangi nú. Sendiráðið hyggst vera
með ýmsar uppákomur í Felleshus
á þessum tíma, til dæmis þegar
leikir íslenska landsliðsins verða á
HM í Rússlandi. Kemur ekki á
óvart þegar gamli markaskorarinn
úr Eyjum á í hlut.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Tveggja tonna steini úr hrauninu
sem rann úr Eldfelli í Vestmanna-
eyjagosinu árið 1973 hefur verið
komið fyrir við norrænu sendiráðin
í Berlín. Hefur steinninn vakið
mikla athygli og nær þar með til-
gangi sínum sem er að vekja at-
hygli á margmiðlunarsýningu um
ógnarkrafta náttúrunnar á Íslandi í
sameiginlegu rými sendiráðanna.
Fyrir þessu framtaki stendur
Martin Eyjólfsson, sendiherra Ís-
lands, og lét hann sækja „hraun-
molann“ með ærinni fyrirhöfn til
gömlu heimahaganna í Eyjum.
Steinninn er aðeins 45 ára gamall
og er kynntur með réttu sem
yngsti steinninn í Þýskalandi.
Liður í fullveldisafmæli
„Tilgangurinn með sýningunni
er að fagna 100 ára fullveldis-
afmæli Íslands með vinaþjóð okk-
ar. Ríkisstjórnin styrkti tvö sendi-
ráð sérstaklega af þessu tilefni, í
Berlín og Kaupmannahöfn,“ segir
Martin.
Sýningin í sameiginlegu sýn-
ingarrými norrænu sendiráðanna,
Felleshus, er gagnvirk margmiðl-
„Hraunmoli“ úr
Eyjum vekur athygli
Sendiráð Íslands í Berlín með margmiðlunarsýningu um ógnarkrafta náttúrunnar á Íslandi
Opnun Guðlaugur Þór Þórðarson og Martin Eyjólfsson við steininn.
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2018
RAFVÖRUR
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Sorpkvarnir
í vaska
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Meginhlutinn af 4 milljarða króna
aukaframlagi ríkisstjórnarinnar til
vegamála fer í að styrkja vegi og
leggja slitlag sem rifnað hefur upp og
halda við malar-
vegum. Þessir
kaflar eru um allt
land. Einnig verð-
ur sett aukið fjár-
magn í lagfæring-
ar á Grinda-
víkurvegi og
Borgarfjarðar-
vegi í Njarðvíkur-
skriðum og jafn-
vel til að flýta
framkvæmdum við Þingvallaveg.
Ríkisstjórnin samþykkti á dögun-
um að veita 4 milljarða króna fram-
lag úr almennum varasjóði sem fjár-
málaráðherra fer með til brýnna
vegaframkvæmda í ár. Vegagerðin
hefur unnið að því að forgangsraða
verkefnum og greina hvar mögulegt
er að bæta í af tæknilegum ástæðum
og fór vegamálastjóri yfir stöðu
málsins með samgönguráðherra í
gær.
Vegir styrktir og nýtt slitlag
Sigurður Ingi Jóhannsson sam-
gönguráðherra segir að vegirnir hafi
farið illa í vetur og umferð aukist
mikið. Þá þurfi að bæta umferðar-
öryggi. Það sé ástæðan fyrir því að
ákveðið var að auka viðhaldsfram-
kvæmdir í sumar. Ráðherra vekur
athygli á því að búið sé að bjóða út
mörg verk. Í sumum tilvikum sé
hægt að auka magnið en önnur verk
þurfi að bjóða út að nýju.
Hann segir að meginþorri fjár-
munanna fari í að leggja slitlag þar
sem vegir hafa skemmst, styrkja
vegi og leggja slitlag að nýju og halda
við malarvegum. Þetta séu verkefni
um allt land.
Sigurður Ingi nefnir þrjú einstök
verkefni sem eru á mörkum þess að
vera viðhald og nýframkvæmdir.
Verja átti 200 milljónum í ár til að
bæta umferðaröryggi á hættulegum
kafla Grindavíkurvegar með því að
breikka veginn og aðskilja aksturs-
stefnur. Ráðherra segir að meira
fjármagn verði veitt í þetta verkefni
þannig að hægt verði að gera aðeins
meira í ár. Framkvæmdum við Borg-
arfjarðarveg í Njarðvíkurskriðum
verður flýtt. Leggja á jarðstreng í
vegkantinn og þykir mikilvægt að
laga veginn í leiðinni svo ekki þurfi að
opna hann aftur.
Vegagerðin vinnur að undirbún-
ingi breikkunar og styrkingar Þing-
vallavegar og segir Sigurður Ingi
stefnt að því að auka við fjármuni til
þess að hægt sé að gera aðeins meira
þar í sumar. Það verkefni er raunar í
biðstöðu vegna kærumála. Þá verða
fjármunir lagðir í að undirbúa stærri
verkefni.
Sparar stórfé í framtíðinni
„Þetta fjármagn mun nýtast mjög
vel. Það að geta flýtt viðhaldi á þessu
ári mun spara okkur stórfé í framtíð-
inni,“ segir Sigurður Ingi.
Aukið viðhald vega um allt land
Framkvæmdum við Grindavíkurveg, Borgarfjarðarveg og Þingvallaveg flýtt Slitlag víða endurnýjað
Sigurður Ingi
Jóhannsson
Morgunblaðið/Hanna
Grindavíkurvegur Sérstakt tillit er tekið til öryggis við skiptingu fjármuna.
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
Til skoðunar er möguleg samvinna
Heilbrigðisstofnunar Suðurlands og
hjúkrunarheimil-
anna Kirkjuhvols
á Hvolsvelli og
Lundar á Hellu
vegna máls
Tryggva Ingólfs-
sonar, sem hefur
dvalið á lungna-
deild Landspítal-
ans í rúman
mánuð eftir út-
skrift, að sögn
sonar Tryggva. Ástæður þess að
Tryggvi hefur ekki snúið aftur á
heimili sitt á hjúkrunarheimilinu
Kirkjuhvoli er undirskriftalisti
starfsmanna um að þeir myndu
ganga út ef Tryggvi kæmi aftur.
„Talað var um að það vantaði
faglega mönnun á Kirkjuhvol.
Þetta snýst um það að starfsfólkið
er að kalla eftir faglegri aðstoð,
þekkingu og þjálfun. Það er bara
verst að hann pabbi lendir á milli í
þessu öllu saman,“ segir Finnur
Bjarki Tryggvason. Hann segist
ekki vita nákvæmlega að hverju sé
verið að vinna, en hann treystir því
að verið sé að vinna málið eins
hratt og örugglega og hægt er.
Bergur Þorri Benjamínsson, for-
maður Sjálfsbjargar, landssam-
bands hreyfihamlaðra, segir súrt
að starfsfólk á Kirkjuhvoli hafi
þurft að grípa til þessa óyndisúr-
ræðis, en að Tryggvi sé tilvalinn
kandídat fyrir notendastýrða per-
sónulega aðstoð (NPA), sem Al-
þingi lögfesti í síðustu viku. „Án
þess að ég vilji taka fram fyrir
hendurnar á honum sjálfum og fjöl-
skyldu hans, þá myndi ég telja
réttast að honum yrði a.m.k. boðin
þessi þjónusta.“
Finnur, sonur Tryggva, segir
notendastýrða persónulega aðstoð
eitthvað sem fjölskyldan ætli að
skoða í samvinnu við Tryggva.
„Eins og pabbi orðaði það þá er
hann opinn fyrir öllu sem gæti
leyst málið. Það er það sem hann
vill. Hann vill bara komast heim.“
Kandídat fyrir NPA
Skoða samstarf HSU og hjúkrunarheimilanna Tryggvi
hefur dvalið á Landspítala í meira en mánuð eftir útskrift
Tryggvi
Ingólfsson