Morgunblaðið - 22.05.2018, Page 15
FRÉTTIR 15Innlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2018
Skeifunni 8 | Kringlunni | Glerártorgi | Sími 588 0640 | casa.is
COMPONIBILI hirslur
3ja hæða – fleiri litir
Verð frá 17.900,-
BOURGIE
Borðlampi – fleiri litir
Verð frá 34.900,-
PLANET CRYSTAL
Borðlampi – fleiri litir
Verð 54.900,-
KARTELL
LOUIS GHOST
Stóll – fleiri litir
Verð 36.900,- stk. RITZENHOFF
Bjórglös og krúsir
Verð frá 2.150,-
IITTALA AALTO
Vasi 160mm grænn
Verð 18.950,-
KAY BOJESEN
Api lítill og
studentshúfa
Verð 19.800,- stk
KARTELL TAKE
Borðlampi – margir litir
Verð 10.900,-
JUST RIGHT STOFF
Kertastjaki
Verð frá 5.100,- stk.
VITA SILVIA
Borðlampi
Verð frá 19.900,-
Tímalaus
hönnun í
útskriftar
pakkann
- KAY BOJESEN
Söngfugl– fleiri litir
Verð 10.750,- LUKKUTRÖLL
Margar gerðir
Verð frá 3.890,-
MR.
LE
Ver
Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landvinnslu
u KASSAR
u ÖSKJUR
u ARKIR
u POKAR
u FILMUR
u VETLINGAR
u HANSKAR
u SKÓR
u STÍGVÉL
u HNÍFAR
u BRÝNI
u BAKKAR
u EINNOTA VÖRUR
u HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað
Jón Þórarinn Sveins-
son, tæknifræðingur og
fyrrverandi forstjóri
Stálvíkur, er látinn.
Hann lést 18. maí sl. á
Hrafnistu í Hafnarfirði.
Jón fæddist þ. 11.
apríl 1925 að Butru í
Fljótshlíð. Foreldrar
hans voru Sveinn Böðv-
arsson og Guðbjörg
Jónsdóttir. Hann var
næstelstur sex bræðra.
Jón var ásamt
bræðrum sínum alinn
upp að Uxahrygg á
bökkum Þverár í Rang-
árvallasýslu. Hann kvæntist Þuríði
Hjörleifsdóttur 10. júní 1961 í
Reykjavík og eignuðust þau tvær
dætur.
Jón bjó lengst af á Smáraflöt 8 í
Garðabæ.
Jón lauk skólagöngu frá Strönd á
Rangárvöllum og síðar námi í tækni-
fræði frá Tækniháskól-
anum í Kaupmanna-
höfn.
Jón stofnaði skipa-
smíðastöðina Stálvík
1961 í Garðabæ. Þegar
best lét störfuðu yfir
200 manns hjá Stálvík
og þá var fyrirtækið
stærsti atvinnurekand-
inn í Garðabæ. Í Stál-
vík voru smíðuð yfir 50
stálskip og þar af 12
skuttogarar, m.a. afla-
skipin Otto N. Þorláks-
son og Þórunn Sveins-
dóttir.
Jón var alla tíð virkur í félags-
málum. Hann var einn af stofn-
endum TFÍ og Félags dráttar-
brauta- og skipasmiða og Rotary
klúbbsins í Görðum. Hann sat í
bæjarstjórn Garðabæjar fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn og var um tíma for-
seti bæjarstjórnar.
Andlát
Jón Þórarinn Sveinsson
Veiðifélag Árnesinga samþykkti á
aðalfundi sínum þann 26. apríl sl.
tillögu um að engar netaveiðar yrðu
leyfðar á veiðisvæðum félagsins í
Ölfusá og Hvítá sumarið 2019. Ekki
var eining um tillöguna, 88 fé-
lagsmenn voru hlynntir henni og 68
á móti. Netaveiðimenn ræddu sam-
þykktina á fundi þann 16. maí og
voru sammála um að réttast væri
að beina kæru til Fiskistofu vegna
þessarar samþykktar aðalfundar,
sem þeir segja ólöglega og ómerka.
„Netaveiði hefur verið stunduð á
vatnasvæðinu frá öndverðu, hefur
lögvarinn rétt og verður ekki af
bændum tekin bótalaust, frekar en
önnur hlunnindi eða eignaréttindi.
Netaveiðibændur munu því áfram
stunda netaveiði samkvæmt þeim
lögum og reglum sem um hana
gilda,“ segir ennfremur í yfirlýs-
ingu frá netaveiðirétthöfum.
Hrafnkell Karlsson á bænum
Hrauni í Ölfusi stundar netaveiðar.
„Við höfum nú lifað í sátt og sam-
lyndi svona að mestu fram að þessu
en nú söfnuðu þeir meirihluta, söfn-
uðu umboðum og komu með umboð
á síðasta aðalfund, ákveðinn hópur
sem samanstendur aðallega af Lax-
árdeildinni og Tungufljótsdeildinni í
félaginu. Þau fluttu tillögu sem
samþykkt var á fundinum, um það
að engin veiði yrði stunduð í ánni
nema stangveiði. Þar voru réttindi
bara tekin af okkur netabændun-
um, bótalaust, án nokkurra samn-
inga eða viðleitni til þess,“ segir
Hrafnkell í samtali við Morgunblað-
ið.
„Við erum að kæra þessa ákvörð-
un og sérstaklega erum við að kæra
það að þetta skuli vera borið fram
án þess að þess sé getið í fund-
arboði. Það teljum við bara hrein-
lega ólöglegt, að koma svona aftan
að mönnum, því það eru miklu rík-
ari skyldur, félagslegar skyldur, í
félagi sem þessu þar sem hagsmun-
irnir eru ólíkir,“ segir Hrafnkell.
Þannig vilja netaveiðirétthafar að
Fiskistofa taki afstöðu til þess
hvernig tillagan var borin fram, án
þess að þess væri getið fyrir fund-
inn. Það segir Drífa Kristjánsdóttir,
sem lagði tillöguna fram á fund-
inum, að sér þyki hreinlega fyndið.
„Mér finnst það mjög skemmti-
legt, því að stjórn Veiðifélags Ár-
nesinga hefur aldrei frá því að ég
fór inn í þetta árið 2010 kynnt sína
tillögu um veiðitilhögun næsta árs.
Mér finnst bara hlægilegt að þeir
ætli að fara að kæra það að það sé
ekki kynnt sérstaklega, því stjórn
hefur aldrei kynnt það.“
Hún játar því að þeir sem voru
fylgjandi tillögunni hafi safnað um-
boðum og tekið yfir aðalfundinn.
Drífa segir að með því að hætta
netaveiðum í Ölfusá og Hvítá skap-
ist mun meiri verðmæti fyrir alla
landeigendur á svæðinu en af því að
drepa laxa í netum neðarlega í án-
um, áður en fiskurinn kemst á
hrygningarstöðvar ofar á veiði-
svæðinu. athi@mbl.is
Morgunblaðið/Golli
Laxveiði Netaveiðimenn gá að fengnum neðan við Ölfusárbrú á Selfossi.
Sunnlenskar
laxveiðideilur
Netaveiðimenn innan Veiðif. Árnes-
inga kæra netaveiðibann til Fiskistofu
Allt fór vel um hvítasunnuhelgina er
smábátur með tvo skipverja innan-
borðs sökk skyndilega við Reykja-
strönd í Skagafirði á laugardags-
kvöld. Um hálftími leið frá því að
neyðarboð barst frá bátnum til
Landhelgisgæslunnar og þar til
björgunarsveitarmenn úr Skagfirð-
ingasveit á Sauðárkróki voru komnir
á vettvang, en Landhelgisgæslunni
barst neyðarboð frá trillunni klukk-
an 20:39 á laugardagskvöld og skip-
verjunum var svo bjargað laust fyrir
klukkan 21:30.
Sjómennirnir tveir héngu utan á
bátnum er björgunarsveitarmenn
komu aðvífandi á Zodiac-bát og tóku
þá um borð. Þeir voru í björgunar-
göllum og því þurrir og í góðu ásig-
komulagi þrátt fyrir að hafa verið
nokkra stund í sjónum.
Baldur Ingi Baldursson, formaður
björgunarsveitarinnar segir í sam-
tali við mbl.is að hann þakki fyrir að
trillan hafi ekki verið að fullu sokkin
er björgunarsveitarmenn komu á
vettvang, þar sem þá hefði reynst
erfitt að finna mennina í sjónum.
„Ef þeir hefðu farið frá bátnum
hefði verið mjög erfitt að finna þá í
ölduganginum sem var. Í svona að-
stæðum eru það bara stærri skip eða
þyrla sem hafa einhverja yfirsýn,“
segir Baldur. Ástæður þess að bát-
urinn sökk eru ókunnar. athi@mbl.is
Voru talsverða stund í sjónum
Ljósmynd/Landsbjörg
Trilla Skipverjar héngu utan á bátn-
um uns hjálp barst.