Morgunblaðið - 22.05.2018, Side 33
DÆGRADVÖL 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. MAÍ 2018
Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • tengi@tengi.is
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is
Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15
Gæði, þjónusta, ábyrgð - það er Tengi
HÁGÆÐA BLÖNDUNARTÆKI
Þýska fyrirtækið Hansa hefur framleitt bað- og eldhústæki í meira en 100 ár.
Tengi hefur mikla og góða reynslu af vörunum frá Hansa.
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Skrifaðu niður allt sem þú þarft að
gera og raðaðu svo verkefnunum eftir mik-
ilvægi þeirra. Reyndu að sýna samstarfs-
mönnum þínum þolinmæði þó þeir vinni allt
of hægt fyrir þinn smekk.
20. apríl - 20. maí
Naut Í lok dagsins sérðu fólk í nýju ljósi.
Gefðu þér því tíma til að kryfja málin til
mergjar. Þú reynir að lægja öldurnar á
vinnustað þínum.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú þarft að horfast í augu við
vandamál liðins tíma. Það kastast í kekki í
vinahópnum en það angrar þig ekki, þú
veist sem er að vinskapurinn er traustur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þér sárna ummæli sem falla í sam-
tali innan fjölskyldunnar. Þú leitar logandi
ljósi að nýjum bíl, sá rétti er handan við
hornið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Velgengni í fjármálum og ástamálum
kemur og fer. Þú sleppir tökum á því sem
þú hefur ekki stjórn á lengur.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Fjármálin þarfnast yfirlegu. Þó þú
hafir grætt á tá og fingri þá þarftu að sýna
aðhald svo ekki fari illa. Ástamálin eru ekki
upp á marga fiska þessar vikurnar.
23. sept. - 22. okt.
Vog Partur af því að vera dugnaðarforkur
er að mistakast stundum. Þú átt fullt í
fangi með að fara eftir ráðum næring-
arfræðings.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Oft er það svo að þér finnst þú
vera eina manneskjan sem getur gert hlut-
ina rétt. Einhver lofar þér gulli og grænum
skógi en hafðu varann á.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Vinir þínir skipta þig miklu og
þú tekur alltaf upp hanskann fyrir þá. Þú
lætur hart mæta hörðu í deilu við ná-
granna.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það gæti verið rétt að fresta öll-
um framkvæmdum meðan þú ert að gera
þínum nánustu grein fyrir því hvað það sem
þú raunverulega vilt. Heppnin eltir þig.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er hætt við að þú bíðir lægri
hlut ef þú reynir að standa uppi í hárinu á
þeim sem eru ofar settir. Allt sem þú tekur
þér fyrir hendur aflar þér virðingar.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þetta er góður dagur til að endur-
skoða hversdagslega hluti í lífi þínu. Settu
þig ekki upp á móti hugmyndum fjölskyld-
unnar.
Sigurlín Hermannsdóttir yrkirum „Gvend á Eyrinni“:
Með gamalær hokraði Gvendur
af Gammel Dansk oftast var kenndur.
Var gamalær sjálfur
og gekk eins og kálfur
en aldrei við kvenmann var kenndur.
Páll Imsland heilsaði leirliði í
vorrigningunni:
Á Fjöllum bjó Finnur með rollur,
ferhyrndar, tví- og svo kollur.
Á höfði bar skalla
sem hendir oft kalla
og notaði flekkóttar frollur.
Ólafur Stefánsson skrifar að
fyrst sé ein vitlaus limra, eins og
þær tíðkast á Leir og sjást líka í
Vísnahorni:
„Hann kenndi sér klárlega meins,
kvalinn, - var ekki til neins.
Konan var farin,
kúguð og barin,
svona líkt var það liðið hans Sveins.
Síðan setur hann sig í spor Fjalla-
Eyvindar, ef svo ólíklega vildi til að
einhvern tíma skyldi hlýna á
Hveravöllum á þessu kalda vori. –
Þau eru þar áreiðanlega ennþá!:
Það hlýnar og blæs og hriktir í öllu,
Hlöðufell blánar og sólin skín.
Sælt er þá að sjá’ana Höllu,
syngjandi ljóðið um gullin þín.
Hún er nefnilega sterk útlagaást-
in til fjalla, og Halla sagði sjálf, að
hún gæti þolað að Eyvindur hætti
að elska hana,en alls ekki að hún
hætti að elska hann. Comprendo !“
Páll Imsland gerðir þessa at-
hugasemd: „Auðvitað er það rétt
hjá Ólafi að limrur séu bara vit-
leysa en einmitt þess vegna hélt ég
þær ættu heima á leir, jafnvel öðru
fremur. Það er hins vegar algjör
óþarfi hjá þér Ólafur að vera að
skensa Moggann. Hann hefur aldrei
ort og jafnvel ekki einu sinni verið
litterer. Mér verður þó reyndar á,
að reyna að yrkja annað en limrur
(og þar af leiðandi ekki vitleysu) og
þessi varð útkoman í dag:
Engan hef ég eðalsmekk
og yrki rakið bull.
Aðrir komi upp á dekk
sem yrkja skíragull.“
Ármann Þorgrímsson ber fram
ósk til þjóðskrár.
Eftir mikla íhugun
og allskyns grúsk í fornum blöðum
er mín staðföst ákvörðun
að eiga heima á Bessastöðum.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Gvendur á Eyrinni,
Eyvindur og Halla
„FRAUÐIÐ MITT ER GÓMSÆTT. HVERNIG
ER SÆNGIN ÞÍN?“
„ÞAÐ ER EKKI MÉR AÐ KENNA AÐ OKKUR
VANTAR FLEIRI RÚM.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að skera lauk fyrir
hana.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
VAKNAÐUR LOKSINS ENGIN SKRÚÐ-
GANGA?
LÆKNIR, FYRST VIL ÉG ÞAKKA ÞÉR FYRIR AÐ
SAUMA SAMAN SÁRIN MÍN EFTIR ORRUSTUNA
Í SÍÐASTA MÁNUÐI!
EKKERT AÐ ÞAKKA!
NÚ ÞEGAR KONAN MÍN ER AÐ
HEIMSÆKJA MÓÐUR SÍNA VAR
ÉG AÐ VELTA FYRIR MÉR…
HVORT ÞÚ GÆTIR SAUMAÐ
SAMAN NOKKRAR RIFUR
Í SKYRTUNNI MINNI OG
SOKKUNUM?
Sumir eru þeirri náttúru gæddir aðþeir vita allt. Að minnsta kosti
nóg til að láta svo út líta að þeir viti
allt. Víkverji er ekki svo heppinn og
stendur sig iðulega að því að stara
tómlega út í loftið þegar hann er
spurður um eitthvað og ætti að vera
að bauna frá sér fróðleik. Þetta á sér-
staklega við um ýmsa praktíska hluti,
eins og hvað gerðist á hvaða stórhá-
tíð.
x x x
Nú er hvítasunnuhelgin nýafstaðin.Hún var einstaklega ljúf og Vík-
verji naut frídagsins í gær vel, þrátt
fyrir að hafa ekkert til hans unnið.
Víkverji sækir ekki kirkjur nema
hann neyðist til þess vegna jarð-
arfara, ferminga eða hjónavígslna.
Það þarf því ekki að koma lesendum
á óvart að Víkverji var rekinn á gat
þegar einn af afkomendunum spurði
af hverju það væri frí og hvað hefði
gerst á hvítasunnunni.
x x x
Til að reyna að bjarga andlitinu varleitað á náðir Vísindavefsins: „Á
hvítasunnudag tóku postularnir á
móti heilögum anda. Þeir töluðu
tungum - það er mæltu þannig að
hver og einn nærstaddur skildi þá
líkt og þeir töluðu á hans móðurmáli,
en þar voru menn af mörgum þjóð-
ernum. 3000 manns létust skírast til
kristni þann daginn. Þessi þrjú þús-
und voru fyrsti kristni söfnuðurinn.“
Unga fólkið starði í forundran á Vík-
verja eftir lesturinn og sneri sér svo
að einhverju skemmtilegra.
x x x
Að fenginni reynslu þykist Víkverjivita að svipað verði uppi á ten-
ingnum að ári og aftur þurfi að rifja
upp. Honum hefur lærst það á nokk-
uð langri ævi, í það minnsta lengri en
hann kærir sig stundum um, að sá
fróðleikur sem maður hefur engan
áhuga á festist sjaldnast í kollinum á
manni. Hins vegar gat Víkverji slegið
um sig í samræðum um daginn og
upplýst hver myrti Abraham Lin-
coln. Það var John Wilkes Booth.
Þetta hefur Víkverji vitað síðan þess
var getið í Simpson-þætti fyrir um
aldarfjórðungi síðan.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Játið að Drottinn er Guð, hann hefur
skapað oss og hans erum vér, lýður
hans og gæsluhjörð.
(Sálm: 100.3)