Fréttablaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 16
– Tengir þig við framtíðina!
Sjónvarpsdreifikerfi
fyrir hótel, gistiheimili og skip.
Auðbrekku 3 • Kópavogur • s. 564 1660
oreind@oreind.is • www.oreind.is
markaðurinn
Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5800
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5800
Ritstjóri Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@frettabladid.is Veffang frettabladid.is
Jón Haukur Baldvinsson vinnur
að því að eignast veitingastaðinn
Jamie’s Italian á Hótel Borg að
fullu. Hann staðfestir það í samtali
við Markaðinn. Viðræður standa
yfir við eigendur félaga sem fara
fyrir 60 prósenta hlut í staðnum,
samkvæmt upplýsingum úr árs-
reikningi. Um er að ræða Birgi Þór
Bieltvedt, Sigurgísla Bjarnason og
Stefán Örn Melsted. Þeir eiga saman
veitingastaðina Snaps við Týsgötu
og Kaffi París við Austurvöll.
Jón Haukur segir í samtali við
Markaðinn að kaupin séu „í far-
vegi“ og þeim sé ekki lokið. Veit-
ingastaðirnir Kaffi París og Jamie’s
Italian hafi verið opnaðir um
svipað leyti og það fari mikill tími
í að sinna rekstri hvors staðar fyrir
sig. „Við höfum því velt fyrir okkur
hvort það ætti ekki að aðskilja
rekstur veitingastaðanna,“ segir
Jón Haukur.
Jamie’s Italian var opnaður í júlí í
fyrra. Hann tapaði 85,5 milljónum
króna það ár og eigið féð var nei-
kvætt um 85 milljónir króna við ára-
mót, samkvæmt ársreikningi Borg-
arhorns. Skuldir félagsins námu 258
milljónum króna við árslok. Þar af
voru skuldir við lánastofnanir 97
milljónir og viðskiptaskuldir 102
milljónir króna. Veltan var 346
milljónir króna í fyrra. Launakostn-
aður er stærsti útgjaldaliðurinn, 240
milljónir króna, og stöðugildin voru
33. Allur rekstrarkostnaður var 425
milljónir króna. Innréttingar og
húsbúnaður voru keypt fyrir 100
milljónir króna í fyrra og áhöld og
tæki fyrir 39 milljónir króna. – hvj
Vinnur að því að eignast Jamie’s Italian að fullu
Hvalur seldi hvalaafurðir fyrir 863 milljónir króna á síðasta rekstrarári félagsins
sem lauk í september í fyrra. Salan
dróst saman um 31 prósent frá fyrra
rekstrarári þegar hún nam um 1.247
milljónum króna, að því er fram
kemur í ársreikningi Hvals.
Félagið átti hvalkjötsbirgðir að
virði 1.880 milljónir króna í lok
september í fyrra en til saman-
burðar voru birgðirnar metnar á
2.560 milljónir í lok september
árið 2016.
Hvalur hagnaðist um tæpa 1,5
milljarða króna frá tímabilinu
1. október 2016 til 30. septem-
ber 2017 og dróst hagnaðurinn
saman um ríflega 515 milljónir á
milli rekstrarára. Tekjur félagsins
námu ríflega 2,8 milljörðum króna
á tímabilinu og munaði þar mestu
um tekjur af eignarhlutum þess í
HB Granda, Hampiðjunni og
Nýherja sem námu saman-
lagt allt að 1,6 millj-
örðum.
R e k s t r a r g j ö l d
Hvals voru tæpir
1,7 milljarðar á
rekstrarárinu
e n ko st n -
aður vegna
r e k s t u r s
hvalveiði-
skipa og
hvalstöðv-
a r i n n a r
í H v a l -
firði sem og
útflutningstengdur kostnaður var
um 640 milljónir.
Hvalur átti eignir upp á 19,6 millj-
arða króna í lok september 2017.
Skuldirnar námu á sama tíma 2,3
milljörðum og var eigið fé félagsins
17,3 milljarðar.
Fiskveiðahlutafélagið Venus, sem
er í eigu Kristjáns Loftssonar, for-
stjóra Hvals, Birnu Loftsdóttur og
Sigríðar Vilhjálmsdóttur, er stærsti
hluthafi Hvals en félagið átti 39,5
prósenta hlut í lok september í fyrra.
Alls eru hluthafar Hvals 113 talsins.
Stjórn félagsins lagði í maí síðast-
liðnum til að greiddur yrði út arður
upp á einn milljarð króna
til hluthafa.
Hvalur gerir út tvö
hvalveiðiskip í sumar
en skipin hafa heimild
til þess að veiða útgef-
inn kvóta upp á 161
langreyði auk 20 pró-
senta af ónýttum kvóta
síðasta árs. Síðast
voru stundaðar
veiðar á langreyði
sumarið 2015 en
þá veiddust 155
langreyðar.
– kij
Hvalur seldi birgðir af
hval fyrir 860 milljónir
Kristján
Loftsson,
forstjóri
Hvals.
Festa lífeyrissjóður hefur fjárfest
í Kviku banka en sjóðurinn gekk
nýverið frá kaupum á tæplega 1,1
prósents hlut í fjárfestingarbank-
anum. Eftir kaupin er lífeyrissjóður-
inn tuttugasti stærsti hluthafi Kviku.
Seljandi hlutabréfanna er
meðal annars Mízar, fjárfestingar-
félag Guðmundar Steinars Jóns-
sonar, sem er gjarnan kenndur við
útgerðar félagið Sjólaskip. Hann á
nú tæplega 2,9 prósenta hlut en til
saman burðar nam eignarhlutur
hans um 5 prósentum í byrjun
sumars.
Festa er þriðji lífeyrissjóðurinn
sem kemst í hóp tuttugu stærstu
hluthafa bankans en Lífeyrissjóður
verslunarmanna er þriðji stærsti
hluthafinn með 8,3 prósenta hlut
og þá fer Lífsverk með 2,6 prósent.
Miðað við núverandi gengi bréfa í
bankanum – 7,75 krónur á hlut – er
1,08 prósenta eignarhlutur Festu
í Kviku metinn á um 155 milljónir
króna.
Stjórn Kviku samþykkti á fundi
sínum í fyrradag að stefna að skrán-
ingu hlutabréfa bankans á aðal-
markað Nasdaq-kauphallarinnar á
næstu sex til tólf mánuðum. Hluta-
bréfin voru tekin til viðskipta á First
North-markaðinum um miðjan
mars. VÍS er stærsti hluthafi bank-
ans með 21,8 prósenta hlut.
– kij
Festa kaupir hlut í Kviku
Norski olíusjóðurinn, sem er stærsti fjár-festingarsjóður í ríkiseigu í heimin-um, keypti í Arion banka fyrir um
500 milljónir króna í nýafstöðnu
hlutafjárútboði bankans. Nemur
eignarhlutur sjóðsins, samkvæmt
heimildum Markaðarins, í kringum
0,3 prósentum sem er litlu minni
hlutur en stærstu lífeyrissjóðir
landsins fengu úthlutað í útboði
bankans.
Olíusjóðurinn, sem á samtals
eignir að virði um 1.100 milljarða
Bandaríkjadala, hefur vaxið gríðar-
lega frá stofnun hans árið 1990 og
á sjóðurinn í dag að meðaltali um
2,4 prósenta hlut í hverju einasta
skráða fyrirtæki í Evrópu. Ekki er
vitað til þess að sjóðurinn eigi eign-
arhlut í öðrum skráðum félögum í
Kauphöllinni á Íslandi en Arion
banka.
Við lokun markaða í gær nam
hlutabréfaverð Arion banka 86
krónum á hlut og var um fimm-
tán prósentum hærra en í útboði
bankans þegar Kaupþing og vog-
unarsjóðurinn Attestor seldu um
29 prósenta hlut á genginu 75 fyrir
samtals um 39 milljarða. Kaupend-
ur að bréfunum voru að stærstum
hluta erlendir fjárfestingarsjóðir á
meðan íslenskir fjárfestar – almenn-
ingur, fagfjárfestar og lífeyrissjóðir
– fengu aðeins að kaupa samanlagt
um 9 prósenta hlut.
Nöfn þeirra erlendu sjóða sem
fjárfestu í Arion banka hafa enn
ekki birst á hluthafalista bankans
– fyrir utan sjóði í stýringu Lands-
downe, Miton og Eaton Vance sem
eiga samanlagt nærri sex prósenta
hlut – en eignarhlutur þeirra er í
dag skráður í vörslu bandarískra
fjárfestingarbanka. Að sögn þeirra
sem þekkja vel til nam fjöldi nýrra
erlendra fjárfestingarsjóða sem
bættust við hluthafahóp bankans
í kjölfar útboðsins nærri tuttugu
talsins, en þar er einkum um að
ræða bandaríska sjóði.
Í flestum tilfellum keyptu sjóð-
irnir hvor um sig á bilinu um 0,5 til
1 prósents eignarhlut í bankanum
en í þeim hópi var meðal annars
sjóður í rekstri sænska eignastýr-
ingarfyrirtækisins Lannebo Fonder,
samkvæmt heimildum Markaðar-
ins. Sjóður í stýringu félagsins er
einnig í hópi stærstu hluthafa
íslenska stoðtækjafyrirtækisins
Össurar, sem er skráð í dönsku
kauphöllina, með um 2,4 prósenta
hlut. Miðað við núverandi hluta-
bréfaverð Arion banka er markaðs-
virði eins prósents hlutar í bank-
anum um 1.700 milljónir króna.
Fjárfestingarfélagið Stoðir, sem
er í meirihlutaeigu meðal annars
Jóns Sigurðssonar, Einars Arnar
Ólafssonar og Magnúsar Ármann í
gegnum eignarhaldsfélagið S121, er
stærsti íslenski einkafjárfestirinn í
hluthafahópi Arion banka með
0,6 prósenta hlut, eins og upplýst
var í Markaðnum í síðustu viku.
Samkvæmt lista yfir alla hluthafa
miðvikudaginn 20. júní átti félagið
samtals 12 milljónir hluta, sem eru
metnir á rúmlega milljarð króna
miðað við núverandi gengi bréfa
bankans.
Þá átti félagið Vogun hf., sem
seldi fyrir skemmstu þriðjungshlut
sinn í HB Granda, samtals 0,4 pró-
sent af heildarútgefnum bréfum
bankans. Markaðsvirði hlutar Vog-
unar, en stærsti hluthafi þess félags
er Kristján Loftsson og fjölskylda
í gegnum Fiskveiðihlutafélagið
Venus, er í dag um 690 milljónir
króna. Eignarhlutur annarra einka-
fjárfesta í Arion banka er hverfandi.
Samkvæmt hluthafalista Arion
banka eiga átta af stærstu lífeyris-
sjóðum landsins samtals um 3,1
prósents hlut í bankanum. Þar
munar mest um 0,65 prósenta hlut
Gildis, Lífeyrissjóður starfsmanna
ríkisins á 0,53 prósent, Frjálsi og
Stapi eiga hvor um sig 0,4 prósenta
hlut, Lífeyrissjóður verslunarmanna
fer með 0,38 prósent og Almenni á
0,35 prósent. Eignarhlutur annarra
sjóða – Birtu og Lífsverks – er tals-
vert minni. hordur@frettabladid.is
Olíusjóðurinn keypti
fyrir um 500 milljónir
Norski olíusjóðurinn á um 0,3 prósenta hlut í Arion. Nærri 20 nýir erlendir sjóðir
bættust við hluthafahópinn í nýafstöðnu útboði. Flestir keyptu á bilinu 0,5 til
1 prósents hlut, meðal annars sænska eignastýringarfyrirtækið Lannebo Fonder.
Norski olíusjóðurinn er stærsti fjárfestingarsjóður í ríkiseigu í heiminum.
Sjóðurinn á eignir að virði um 1.100 milljarða dala. NordicpHotoS/Getty
hlut á norski olíusjóðurinn
að meðaltali í hverju einasta
skráða fyrirtæki í heiminum.
1,4%
tap á veitingastaðnum Jamie’s italian við pósthússtræti var 86 milljónir króna
í fyrra. eigið fé var neikvætt um 85 milljónir króna. frÉttabLaðið/aNtoN briNK
4 . j Ú l í 2 0 1 8 M I Ð V I K u D a g u R2 markaðurinn
0
4
-0
7
-2
0
1
8
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
5
0
-A
C
D
8
2
0
5
0
-A
B
9
C
2
0
5
0
-A
A
6
0
2
0
5
0
-A
9
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
3
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K