Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.07.2018, Qupperneq 20

Fréttablaðið - 04.07.2018, Qupperneq 20
Forstjórar tveggja stærstu fasteignafélaga lands-ins segja auðséð að hærri fasteignagjöld á atvinnuhúsnæði muni að öðru óbreyttu leiða til hærra leiguverðs. Þeir gagnrýna sveitarfélögin harðlega fyrir að hafa ekki lækkað skatta á atvinnu- húsnæði á sama tíma og fasteigna- mat hafi hækkað verulega. „Maður vonar bara að við förum að sjá fyrir endann á þessu. Þetta er algjörlega galið,“ segir Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, um hækkandi fast- eignagjöld sveitarfélaganna. Gert er ráð fyrir að tekjur sveitar- félaganna á höfuðborgarsvæðinu vegna fasteignagjalda á atvinnuhús- næði aukist um 30 prósent frá árinu 2017 til 2019, að því er fram kemur í nýlegri greiningu sérfræðinga Arion banka. „Fasteignamatið hækkar og hækkar sem leiðir til hærri fast- eignagjalda og á endanum smitast hækkanirnar að öllum líkindum út í leiguverðið. Það stuðlar aftur að hærra fasteignamati. Úr verður vondur spírall,“ segir Guðjón Auð- unsson, forstjóri Reita. Þorsteinn Andri Haraldsson, sér- fræðingur í greiningardeild Arion banka, segist því miður telja það „óumflýjanlegt“ að fasteignafélögin velti hærri fasteignagjöldum á einn eða annan hátt yfir á leigjendur til þess að rétta framlegðina af rekstri sínum af. Hætta sé á því að „hækk- ununum verði að lokum velt út í verðlagið og ýti þannig undir verð- bólgu“. Samkvæmt sviðsmynd greining- ardeildarinnar eru horfur á því að fasteignagjöld, sem eru langstærsti útgjaldaliður félaga sem leigja út atvinnuhúsnæði, muni nema allt 70 prósentum af rekstrarkostnaði Reita, stærsta fasteignafélags lands- ins, á næsta ári. Til samanburðar hefur hlutfallið að jafnaði verið um 62 prósent undanfarin átta ár. Á sama tíma og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa lækkað álagningarprósentu sína á íbúðar- húsnæði hafa þau nær ekkert hreyft við álagningarprósentunni á atvinnuhúsnæði. Þannig hafa flest sveitarfélaganna haldið álagningu á atvinnuhúsnæði í eða við hámarkið, sem er 1,65 prósenta skattur af fast- eignamati, allt frá árinu 2010. Samkvæmt úttekt Félags atvinnu- rekenda hyggjast aðeins þrjú af stærstu sveitarfélögum landsins, Hafnarfjörður, Kópavogur og Akra- nes, lækka gjöldin í ár. Sökum hækkandi fasteigna- mats hefur álagningin sjálf vaxið umtalsvert. Til marks um það hefur greiningardeild Arion banka bent á að gera megi ráð fyrir að tekjur sveitarfélaganna á höfuðborgar- svæðinu vegna fasteignagjalda á atvinnuhúsnæði aukist um allt að 4,5 milljarða – eða um 30 prósent – á árunum 2017 til 2019, að því gefnu að álagningarprósentur haldist óbreyttar. Í nýjum sáttmála borgarstjórnar Samfylkingarinnar, Pírata, Viðreisn- ar og Vinstri grænna er því lofað að fasteignaskattar á atvinnuhúsnæði verði lækkaðir úr 1,65 prósentum í 1,60 prósent fyrir lok kjörtímabils- ins árið 2022 til þess að mæta hækk- andi fasteignamati. Ef sú lækkun kæmi að fullu til framkvæmda á næsta ári myndu – samkvæmt mati greinenda Arion banka – álögur borgarinnar á atvinnuhúsnæði verða rúmlega 420 milljónum króna lægri en ella. Engu að síður yrðu álögurnar í það heila tæplega 1.600 milljónum króna hærri en árið áður vegna hækkandi fasteignamats. Hækkað um 65 prósent Samkvæmt fasteignamati Þjóðskrár Íslands fyrir næsta ár, sem var gert opinbert í byrjun síðasta mánaðar, hækkar matið fyrir atvinnuhúsnæði um 15 prósent á landinu öllu borið saman við 12,7 prósenta hækkun á fasteignamati íbúða. Eftir að Þjóð- skrá hóf að beita nýrri aðferð við útreikning á fasteignamati atvinnu- húsnæðis árið 2014 hefur matið fyrir slíkt húsnæði hækkað umfram aðrar tegundir húsnæðis. Alls nemur hækkunin á fasteigna- mati atvinnuhúsnæðis á höfuðborg- arsvæðinu, þar sem þorri fyrirtækja landsins er staðsettur, ríflega 65 prósentum frá árinu 2014 til 2019. Guðjón segir að aðferðafræðin sem Þjóðskrá tók upp árið 2014 hafi leitt til þess að fasteignamatið hækki ár eftir ár umfram aðrar teg- undir húsnæðis. Sveitarfélögin hafi í mjög litlum mæli, ef nokkrum, komið til móts við hækkanirnar með því að lækka álagningarpró- sentu sína. „Sveitarfélögin geta ekki hagað sér líkt og þau vinni lottópottinn á hverju ári og tekið óbreytta pró- sentu í skatt af síhækkandi fast- eignamati. Það er ekki sjálfbært til lengdar,“ nefnir Guðjón. Hærri fasteignagjöld þrýsta upp leigu Forstjórar stærstu fasteignafélaga landsins segja hærri fasteignagjöld, sem taka mið af hækkandi fasteignamati, smitast út í verð á leigu. Greinendur telja svigrúm fyrirtækja til þess að takast á við leiguverðshækkanir lítið. Hærri fasteignagjöld ýti þannig undir verðbólgu. Útlit er fyrir að fasteignafélögin þurfi að hækka leiguna hjá sér til þess að mæta hærri fasteignagjöldum. Sérfræðingur hjá greiningardeild Arion banka segir svigrúm fyrirtækja til þess að takast á við hærri leigukostnað lítið eftir miklar kostnaðarhækkanir á undanförnum árum. Hætta sé á því að hækkununum verði að lokum velt út í verðlagið og þær ýti þannig undir verðbólgu. FréttAblAðið/Ernir Kristinn Ingi Jónsson kristinningi@frettabladid.is Sveitarfélögin geta ekki hagað sér líkt og þau vinni lottópottinn á hverju ári og tekið óbreytta prósentu í skatt af síhækkandi fasteigna- mati. Guðjón Auðuns- son, forstjóri Reita Hættan er sú að leiguverðshækkun- unum verði að lokum velt út í verðlagið og þær ýti þannig undir verðbólgu. Þorsteinn Andri Haraldsson, sérfræðingur í greiningardeild Arion banka Maður vonar bara að við förum að sjá fyrir endann á þessu. Þetta er algjörlega galið. Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins Stjórnendur Reita sáu sig knúna til þess að upplýsa fjárfesta um að fasteignamatið á eignasafni félags- ins myndi hækka um 17 prósent á milli ára samkvæmt nýja fast- eignamatinu. Ljóst væri að svo miklar breytingar myndu „leiða til hækkunar á rekstrargjöldum fast- eignanna“. Helgi segir nokkur sveitarfélag hafa lækkað álagningarprósentur fasteignagjalda en þær lækkanir séu „sáralitlar“. Á meðan hafi „gríðar- legar“ hækkanir orðið á fasteigna- gjöldum vegna hærra fasteignamats. Ekki sé hægt að „leggja endalausar álögur á atvinnulíf og íbúa“. Taka þurfi skattheimtuna til gagngerrar endurskoðunar. Eðlilegt hefði verið að sveitarfélögin endurskoð- uðu álagningarprósentuna þegar Þjóðskrá breytti aðferðafræði sinni skyndilega árið 2014. „Það liggur í hlutarins eðli,“ bætir Helgi við. Guðjón segir ljóst að hækkandi fasteignamat auki rekstrarkostnað fasteigna Reita. Það geti birst í leigu- verði á atvinnuhúsnæði. Ákvæði eru í nýrri leigusamningum félagins sem heimila því að hækka leiguverð verði verulegar hækkanir á fast- eignagjöldum. Sams konar ákvæði eru í nýrri samningum Eikar og Reg- ins. Helgi segir Regin hins vegar ekki hafa beitt ákvæðinu.„Við erum að horfa á það,“ segir hann aðspurður. Smitast út í leiguverð Helgi nefnir að í „eðlilegu sam- keppnisumhverfi“ endi allar skatta- hækkanir í verðlagi. „Þetta tosar upp verðið,“ segir hann um síhækk- andi fasteignagjöldin. „Rétt eins og virðisaukaskattshækkanir hækka verð á vörum leiða hærri fasteigna- 4 . j ú l í 2 0 1 8 M I Ð V I K U D A G U R6 Markaðurinn 0 4 -0 7 -2 0 1 8 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 0 -C F 6 8 2 0 5 0 -C E 2 C 2 0 5 0 -C C F 0 2 0 5 0 -C B B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.