Fréttablaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 22
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og um-
fjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið ritstjórnar-
efni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 512 5349 | Ragnheiður Tryggvadóttir,
heida@frettabladid.is, s. 512 5367 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@frettabladid.is, s. 512 5368
| Sigríður Inga Sigurðardóttir, sigriduringa@frettabladid.is, s. 512 5372 | Starri Freyr Jónsson, starri@
frettabladid.is, s. 512 5358 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is s. 512 5338
Útgefandi:
365 miðlar
Ábyrgðarmaður:
Elmar Hallgríms Hallgrímsson
Sölumenn: Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 512 5457 | Jón Ívar Vil-
helmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson,
olafurh@frettabladid.is, s. 512 5433 |
Hólmfríður Ben Benedikts-dóttir er grafískur hönnuður og fyrrverandi blaðamaður
m.a. Gestgjafans. Hún hafði rétt
náð tilskildum aldri til að vera
gjaldgeng í íbúð fyrir 60 ára og eldri
þegar hún flutti í glænýja íbúð í
Mörk við Suðurlandsbraut. Íbúðin
er björt og rúmgóð og henni fylgja
um 6 fermetra yfirbyggðar svalir.
Þar hefur Hólmfríður útbúið nota-
lega aðstöðu fyrir eitt fjölmargra
áhugamála sinna, kryddjurta- og
blómaræktun, og þar finnst henni
gott að setjast og fá sér kaffi eða
heimaræktað jurtate.
„Ég verð syngjandi garðyrkju-
kona í næsta lífi en nú hef ég
ekki heilsufar til að skríða um í
moldarbeði svo ég læt pottaræktun
duga mér. Þetta litla pláss hentar
mér fullkomlega og ég nota það
heilmikið,“ segir Hólmfríður glöð
í bragði.
Á svölunum eru stórar hillur
fyrir pottaplöntur af öllum stærð-
um og gerðum. Hillurnar mynda
gott skjól án þess að loka svalirnar
af. Hólmfríður hefur komið stærri
pottaplöntum upp á bekk og undir
honum er kassi fyrir ýmislegt sem
fylgir ræktuninni en þannig nýtist
plássið vel. Garðyrkjuverkfæri eru
á hjólaborði og annað smáborð
er til að umpotta. „Ég saumaði
brúnan plastpoka undir moldina
og hann tekur allt að 25 lítra af
mold. Með þessu móti sýnist allt
vera mjög pent hér á svölunum,“
segir Hólmfríður.
Flytur plönturnar út og inn
„Eftir svo stutta búsetu er lítil
reynsla komin á svalirnar en þær
lofa góðu. Ég hef aldrei áður haft
yfirbyggðar svalir og þarf því að
læra hvaða plöntur dafna best. Ég
hélt að þær yrðu algjör hitapottur
en veðrið hefur verið hálf undar-
legt það sem af er sumri og frekar
að það sé of kalt á þeim. Aloe vera
plantan verður grá af kulda sé hún
lengi á svölunum svo ég set hana og
kumquat-ávaxtatréð út á daginn en
inn í íbúðina yfir nóttina og báðar
plönturnar virðast lukkulegar með
það fyrirkomulag,“ segir Hólmfríður
en hún hefur gaman af því að útbúa
eitt og annað úr því sem hún ræktar.
„Þeir ávextir sem falla af sítrus-
trénu fara í krukku með vodka
og enda sem snafs eða í einhverja
kokteila. Ég ætla líka að prófa að
gera líkjör úr þeim en vanalega
geri ég jólalíkjör úr hrútaberjum
en kannski má gera tilraunir með
að blanda kumquat-ávextinum
út í til að vega á móti dísætum
drykknum. Myntan er ávana-
Hillurnar skapa
gott skjól og
nýtast vel undir
pottaplöntur og
matjurtir. MYND/
ÞÓRSTEINN
Hólmfríður
hefur lengi
verið með svo-
kallaða micro
green ræktun og
klippir jurtirnar
jafnóðum út á
salat eða smur-
brauð. MYND/
ÞÓRSTEINN
Sigríður Inga
Sigurðardóttir
sigriduringa@frettabladid.is
bindandi, því meira sem ég neyti
hennar því meira hrífst ég af
bragðinu. Ég nota hana ferska
í heilsudrykki á morgnana og í
myntute eða marokkóskt te en þá
bæti ég við grænum eða svörtum
telaufum. Ég þurrka hana líka og
nota í te yfir veturinn. Sítrónumel-
issan er líka góð í tedrykk og falleg
sem skraut á eftirrétti. Hún dafnar
vel á svölunum, ég hef aldrei áður
séð hana með svona stór blöð og
þurrka þau líka í jurtate fyrir næsta
vetur,“ upplýsir Hólmfríður.
Nær í salat af svölunum
Vegna flutninganna sáði Hólm-
fríður ekki fyrir kryddjurtunum
þetta vorið líkt og vanalega heldur
keypti þær í pottum. „Ég setti
kryddjurtirnar í stærri potta og
dekra við þær svo ég fæ heilmikla
uppskeru. Það sem ég nota ekki
ferskt þurrka ég og ýmist saxa
smátt eða mala fínt og hræri
saman í kryddblöndur. Ef fram-
leiðslan er mikil finnst mér tilvalið
að gefa kryddblöndu og jurtate
í jólagjafir. Ég er líka með salat
og spínat á svölunum og ætla að
prófa að rækta fleiri gerðir af mat-
jurtum. Það er frábært að ná sér
í salat í matinn og klippa ferskar
kryddjurtir beint í pottana eða yfir
matardiskinn,“ segir hún.
Í nokkur ár hefur Hólmfríður
verið með svokallaða micro green
ræktun í smáu gróðurhúsi. „Fræin
fást í flestum garðyrkjuverslunum.
Fyrst notaði ég sáðmold en núna
sái ég þeim í kókosmold. Fræin
spíra á örfáum dögum og vaxa
hratt. Ég klippi þessar örsmáu en
bragðmiklu plöntur jafnóðum
út á matinn, t.d. fiskrétti, salöt og
smurbrauð, bæði til bragðbætis og
skrauts.“
Hólmfríður segist aldrei áður
hafa búið þar sem er eins ófagurt
umhverfis og nú. „En auðvitað er
ekkert að marka það. Þetta er enn
þá byggingasvæði og allt fullt af
vinnuvélum og róti í kring um það.
Ég vona þó að það rætist úr garð-
inum hér á milli húsanna, hann
er lokaður öðrum en íbúum og
væri hægt að gera hann virkilega
skemmtilegan. Ég verð oft hissa á
hvað húsalóðir og þá sérstaklega
við blokkir eru óspennandi og illa
nýttar, oft látið nægja að leggja
gras yfir slétta flöt sem enginn
virðist nota, en viðhaldið er samt
mikið því það þarf reglulega að
slá grasið. En það er vel hægt að
gera fallegt og notalegt hjá sér á
svölunum og í frekar leiðinlegu
veðurfari, eins og nú hefur verið,
eru yfirbyggðar svalir algjörlega
málið,“ segir Hólmfríður Ben glöð
Fæst í
apótekum
heilsubúðum og
heilsuhillum
verslana
Er hárið farið
að þynnast?
25,5x10 hair gro hvítt.pdf 1 08/06/2018 13:03
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 4 . J Ú L Í 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U R
0
4
-0
7
-2
0
1
8
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
5
0
-E
3
2
8
2
0
5
0
-E
1
E
C
2
0
5
0
-E
0
B
0
2
0
5
0
-D
F
7
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
3
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K