Fréttablaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 25

Fréttablaðið - 04.07.2018, Blaðsíða 25
veruleika. „Það er ekkert óeðlilegt við það. Styrkur frá sjóðnum er fjárfesting í þekkingu og hún skilar sér alltaf inn í samfélagið með einum eða öðrum hætti og hana er ekki alltaf hægt að meta til fjár,“ segir hann. Hæsti styrkurinn sem Tækni- þróunarsjóður veitir einu verkefni er samtals 70 milljónir og hann er greiddur út á tveimur árum, en lægsti styrkurinn, sem kallast Fræ, er hugsað fyrir þá sem þurfa stuðning til að móta þróunarferlið og viðskiptaáætlun sína, koma slíkum áætlunum á blað og gefa viðkomandi kost á að sækja um stuðning í áframhaldandi vinnslu. Sigurður segir að áhersla sé lögð á að hvetja frumkvöðla til að sækja um einkaleyfi og það er styrkt sérstaklega. „Þetta eru miklir fjár- munir og það eru gerðar miklar kröfur til þeirra sem hljóta slíkan styrk. Sumum finnst við óþarflega kröfuhörð en þetta er opinbert fjármagn sem þarf að fara vel með. Það er líka æfing og lærdómur fyrir umsækjendur að ganga í gegnum umsóknarferlið. Fjárfestar kanna oft hvort frumkvöðlar hafi komist í gegnum síuna hjá Tækniþróunar- sjóði áður en þeir taka ákvarðanir um fjárfestingar,“ segir Sigurður. Konur hafa sótt í sig veðrið og fer hlutur þeirra í styrkjum sívaxandi. „Árið 2015 var fimmtungur styrk- þega konur en þær eru núna orðnar þriðjungur styrkþega, sem er mjög jákvætt,“ segir hann. Alþjóðlegt samstarf Þá er alþjóðlegt samstarf mikilvægt, að sögn Sigurðar. „Við megum ekki byggja veggi í kringum Ísland. Við verðum að hugsa á alþjóðavísu. Norrænt sam- starf skiptir okkur miklu máli og enn fremur hefur rannsókna- og þróunaráætlun Evrópusambands- ins, Horizon 2020, reynst okkur notadrjúg.“ Eurostars áætlunin, sem er hluti af Horizon 2020, gefur íslenskum nýsköpunarfyrirtækjum kost á samstarfi við kollega í Evrópu. „Það eru heimalöndin sem styrkja sína þátttakendur og hér er það Tækniþróunarsjóður sem styrkir íslensku fyrirtækin. Fyrir- tæki eins og Orf líftækni, Videnti- fier, sem hefur hlotið sérstaka viðurkenningu Eurostars fyrir sinn árangur, og Nox Medical hafa notið góðs af þessu samstarfi. Íslensk fyrirtæki hafa náð mjög góðum árangri, svo að eftir er tekið, í SME hluta Horizon 2020. SME stendur fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki og hafa um 50 félög hlotið á síðustu árum yfir einn og hálfan milljarð króna, þar af hafa 6 fyrirtæki hlotið „stóra“ styrkinn sem er yfir 200 milljónir króna. Þetta er bein inn- spýting í nýsköpunarsamfélagið,“ segir Sigurður að lokum. Styrkt verkefnið, það bara kom fyrirtækinu af stað í rauninni. Ég er ekkert viss um að við hefðum stofnað fyrirtækið án þess. Benedikt, Lauf Forks Við værum ekkert hérna ef við hefð- um ekki fengið þessa styrki það er bara svo- leiðis. Það er mjög einfalt svar. Það skiptir sköpum sko. Ég veit ekki hvaða skala þú ert með en settu þetta bara alveg yst á skalann … Vilborg, InfoMentor Við hefðum ekki getað þetta án styrkja frá Rannís og sérstaklega Tækniþró- unarstyrksins gegnum árin, það er bara ekki hægt. Ef við hefðum ekki fengið styrkina þá hefð- um við ekki getað fram- leitt augndropa. Þorsteinn, Oculis Fyrirtækið hefði sennilega dáið út hægt og rólega því að ég vann þetta sem hliðar- vinnu. Þegar styrkurinn kemur þá get ég einbeitt mér að þessu og ráðið fólk í vinnu og það hleyp- ir öllu upp þannig að við erum með gífurlega öflugt tæki núna sem er þessi hugbúnaður. Kjartan, ErkiTónlist Ég fullyrði að ef styrkurinn hefði ekki verið til staðar þá að öllum líkindum hefði þetta aldrei orðið það sem þetta varð. Pétur, Nox Medical Hrund Gunnsteinsdóttir, stjórnarformaður Tækniþróunarsjóðs, stýrði vorfundi sjóðsins en þar var styrkjum úthlutað. Þórdís Kolbrún nýsköpunarráðherra flutti ávarp á vorfundi sjóðsins. Tækniþróunarsjóður Náðu lengra með Tækniþróunarsjóði tths.is KYNNINGARBLAÐ 3 M I ÐV I KU DAG U R 4 . j ú l í 2 0 1 8 0 4 -0 7 -2 0 1 8 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 0 -F 6 E 8 2 0 5 0 -F 5 A C 2 0 5 0 -F 4 7 0 2 0 5 0 -F 3 3 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.