Fréttablaðið - 04.07.2018, Side 28
Á tæpum tólf
árum hefur fyrir-
tækið vaxið úr sjö
starfsmönnum upp í
fimmtíu manns. Velta
síðasta árs var tæpir
tveir milljarðar og hefur
fyrirtækið verið rekið
með hagnaði frá því að
það hóf að selja vörur
sínar. Megnið af kostn-
aði okkar fer í þróunar-
starf og að fylgja eftir
hugmyndum.
Ingvar Hjálmarsson, fram-kvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunar hjá Nox
Medical, segir að þótt fyrirtækinu
hafi verið hleypt af stokkunum
árið 2006 eigi það lengri sögu.
„Saga fyrirtækisins hófst form-
lega árið 2006 þegar nokkrir
verkfræðingar tóku sig saman og
stofnuðu fyrirtæki sem skapar
lækningatæki til að sinna svefn-
rannsóknum. Áður störfuðu
stofnendur Nox Medical hjá öðru
fyrirtæki sem nefndist Flaga hf.
Það fyrirtæki var stofnað af Helga
Kristbjarnarsyni. Flaga hannaði
líka svefnrannsóknartæki og fór
í gegnum mikið uppgangstíma-
bil fyrir bankahrunið. Á þessum
árum, í kringum 2005-2006, var
gengi íslensku krónunnar mjög
sterkt. Þetta sterka gengi kom sér
mjög illa fyrir útflutningsfyrir-
tæki í hátækni. Þetta rekstrar-
umhverfi varð til þess að fyrir-
tækið var flutt til Bandaríkjanna
og Kanada og starfsemi hætt á
Íslandi. Eftir sátu starfsmenn
með mikla sérþekkingu,“ útskýrir
Ingvar og bætir við að sjö þeirra
hafi tekið sig saman og stofnað
Nox Medical til að þróa næstu
kynslóð af tækjum til greiningar
svefnvandamála.
„Hjá Nox varð til næsta kyn-
slóð í tækjum til svefngreininga.
Margir stofnenda eru enn starf-
andi hjá Nox. Á tæpum tólf árum
hefur fyrirtækið vaxið frá sjö
starfsmönnum upp í fimmtíu
manns. Velta síðasta árs var tæpir
tveir milljarðar og hefur fyrir-
tækið verið rekið með hagnaði
frá því að það hóf að selja vörur
sínar. Megnið af kostnaði okkar
fer í þróunarstarf og að fylgja eftir
hugmyndum,“ útskýrir Ingvar.
Viðskiptavinir Nox Medical eru
sjúkrahús, læknar og annað heil-
brigðisstarfsfólk um allan heim.
„Öll okkar framleiðsla er seld til
útlanda. Fyrir nokkrum árum
styrkti fyrirtækið Landspítala –
háskólasjúkrahús með tækjum
að verðmæti 20 milljónir. Við
höfum átt mjög gott rannsóknar-
samstarf við starfsfólk Land-
spítalans og þar er mikil þekking
í svefnrannsóknum. Nánast öll
okkar velta kemur hins vegar
frá útlöndum. Stærstu markaðs-
svæðin eru Bandaríkin, Frakk-
land, Norðurlönd, Ástralía, Kína
og Japan. Starfsfólk Nox aðstoðar
umboðsmenn sína erlendis til
að ná fótfestu með vörur okkar á
sínu markaðssvæði.“
Nox Medical á nokkra stóra
keppinauta á heimsmarkaði.
„Við höfum töluverða samkeppni
í Bandaríkjunum, Ástralíu og
Þýskalandi. Engu að síður hefur
Nox haldið miklu forskoti vegna
þess hversu mikið við leggjum í
vöruþróun. Við aðgreinum okkur
á vissan hátt. Okkar tæki eru ein-
föld, skilvirk og þægileg hjá öllum
aldri sjúklinga,“ segir Ingvar en
fyrirtækið hefur hlotið margar
viðurkenningar, meðal annars
Útflutningsverðlaun forseta
Íslands og Nýsköpunarverðlaun.
„Við höfum notið góðs varðandi
styrki bæði hjá Rannís og Tækni-
þróunarsjóði. Skattaafsláttur
sem fyrirtækið nýtur góðs af til
að stunda rannsóknir hjálpar
okkur að fjárfesta í vöruþróun
til þess að halda samkeppnisfor-
skoti okkar. Fyrirtæki sem við
erum í samkeppni við, eins og
til dæmis í Þýskalandi, eru með
sinn kostnað í evrum á meðan
við notum íslenskar krónur. Við
þurfum að takast á við miklar
sveiflur í gengi á meðan Þjóð-
verjar geta treyst því að gengið sé
nánast alltaf eins. Krónan er því
afar óþægileg í þessum rekstri.“
Ingvar telur að fyrirtækið muni
stækka enn frekar á næstu árum.
„Við erum í stöðugri þróun og
vexti,“ segir hann. Tækin sem
Nox framleiðir eru ákaflega þægi-
leg í meðförum. Þau taka upp
öndun, súrefnismettun, hjartslátt
og fleira á meðan fólk sefur. Þau
geta greint kæfisvefn og önnur
svefnvandamál. Háþróaðir nemar
greina svefninn og hugbúnaður-
inn les úr þeim merkjum. Með
því geta læknar fundið meðferð
til bata hjá sjúklingnum. Mjög
margir þjást af alls kyns svefn-
vandamálum og meðal þeirra
er kæfisvefn sem er mjög hættu-
legur. Kæfisvefn getur aukið
hættuna á því að fá heilablóðfall
og hjarta- eða æðasjúkdóma.
Við munum í framtíðinni ein-
beita okkur að frekari rannsókn-
um og þróun á þessu sviði þannig
að betri svefn sé mögulegur fyrir
alla. Við sjáum gríðarleg tækifæri
í því að hanna tæknilausnir á
þessu sviði til að allir geti fengið
þá greiningu á svefnvandamálum
sem þeim ber. Við sjáum fyrir
okkur frekari fjárfestingar á sviði
vöruþróunar og áframhaldandi
uppbyggingu markaðsstarfs
á heimsvísu. Hjá Nox er m.a.
mjög öflug rannsóknardeild sem
hefur nýlega fengið rúmlega 250
milljóna króna styrk frá Evrópu-
sambandinu til að útfæra nýjar
lausnir og gera svefnrannsóknir
aðgengilegri fyrir alla.
Við erum með frábært teymi
fólks með mismunandi bak-
grunn í menntun og fyrsta flokks
gæðakerfi sem við vinnum eftir.
Íslendingar njóta þessarar tækni
á Landspítalanum, Læknasetrinu,
Reykjalundi og víðar,“ segir
Ingvar Hjálmarsson.
Íslensk hátækni nýtt til
að greina svefnvandamál
Nox Medical er hátæknifyrirtæki sem þróar og framleiðir lækningavörur sem bæta svefngrein-
ingu. Fyrirtækið kynnir byltingarkenndar nýjungar sem gagnast læknum út um allan heim til að
greina svefnvandamál. Nox Medical hefur stækkað ört á síðustu árum.
Ingvar Hjálmarsson, framkvæmdastjóri markaðs- og viðskiptaþróunar hjá Nox Medical. MYND/STEFÁN karlSSoN
Tækið er nett og þægilegt í meðförum.
6 kYNNINGarBlaÐ 4 . j ú l Í 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U RNýSköpuN Á ÍSlaNDI
0
4
-0
7
-2
0
1
8
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
5
0
-D
E
3
8
2
0
5
0
-D
C
F
C
2
0
5
0
-D
B
C
0
2
0
5
0
-D
A
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
6
4
s
_
3
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K