Fréttablaðið - 04.07.2018, Page 35
Hugverk og hug-
verkavernd eru
lykilhlekkir í nýsköp-
unarkeðjunni og allt frá
hugmynd að vöru á
markaði skiptir stjórnun
hugverka höfuðmáli.
Hugverkaréttindi
snúast ekki bara
um vörn gegn því að aðrir
nýti sér hugverk fyrir-
tækisins, heldur felast
líka gríðarleg tækifæri til
sóknar í því að nota
hugverkaréttindi.
Hugverk eru oft grunnstoðir nýsköpunarfyrirtækja og því eru hugverkaréttindi
mikilvæg tól sem geta hjálpað fyrir-
tækjunum að vaxa og dafna. Fyrir-
tæki um allan heim átta sig sífellt
betur á þessu og sjá æ betur þau
gríðarlegu tækifæri sem eru fólgin
í verndun hugverka. Hér á landi
fer Einkaleyfastofan með málefni
hugverkaréttinda og gegnir því
mikilvægu hlutverki í að aðstoða
fyrirtæki við að tryggja rekstrar-
grundvöll sinn.
Hugverkaréttindi vernda
forskotið
„Á síðustu árum höfum við séð
áhugaverða þróun hér á landi hjá
nýsköpunarfyrirtækjum sem sjá í
auknum mæli tækifærin í hug-
verkum og hugverkavernd,“ segir
Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri
Einkaleyfastofunnar. „Bæði sjáum
við fjölgun í skráningu hugverka
en einnig fleiri dæmi um frum-
kvöðlafyrirtæki sem eru byggð á
hugverkum. Hér á landi eru frábær
dæmi um slíkt, eins og Lauf forks,
IceMedico, Nox og Kerecis. Þetta
eru fyrirtæki sem hafa byggst upp
nær eingöngu á hugviti og hafa náð
árangri með því að vernda sín verð-
mætu hugverk.
Hugverk og hugverkavernd eru
lykilhlekkir í nýsköpunarkeðjunni
og allt frá hugmynd að vöru á
markaði skiptir stjórnun hugverka
höfuðmáli,“ segir Borghildur. „Hug-
verkaréttindi snúast um að vernda
samkeppnisforskotið sem skapast
með nýsköpun, en þessi nýsköpun
drífur svo vöxt fyrirtækjanna.“
Verndun hugverka skilar
betri árangri
„Hugverkaréttindi eru ekki eitt-
hvað sem er hægt að líta framhjá
eða huga að seinna. Það er oft
ávísun á vandræði, meiri kostnað
eða þaðan af verra,“ segir Borg-
hildur. „Það er mikilvægt að fyrir-
tæki séu með það á hreinu hvert
samkeppnisforskot þeirra er og
nýti hugverkaréttindi á réttan hátt
til að vernda það.
Rannsóknir sýna að fyrirtæki
sem vernda hugverkin sín séu
líklegri til að ná árangri. Þau vaxa
meira og hraðar og skila meiri
arðsemi. Þau eru líka líklegri til að
þrauka í gegnum „Dauðadalinn“
sem frumkvöðlafyrirtæki þurfa að
komast í gegnum snemma í rekstri
sínum,“ segir Borghildur. „Rann-
sókn sem skoðaði árangursrík
sprotafyrirtæki í Bandaríkjunum
komst að þeirri niðurstöðu að
þau áttu það helst sameiginlegt að
vernda hugverkin sín. Þetta er ekki
tilviljun og fjárfestar vita þetta.“
Góð vörn og nýting tækifæra
„Nýsköpun snýst um að skapa sam-
keppnisforskot á markaði en verð-
mæti nýsköpunarfyrirtækja eru
alltaf byggð á hugviti, hugverkum
og ímynd,“ segir Borghildur. „Þessi
afrakstur nýsköpunar er í eðli sínu
óáþreifanlegur og þar af leiðandi
eru helstu verðmæti nýsköpunar-
fyrirtækja í dag óáþreifanleg.
Nýsköpunarfyrirtæki geta notað
hugverkaréttindi til að minnka
áhættu og hámarka tækifæri.
Hugverkaréttindi snúast ekki bara
um vörn gegn því að aðrir nýti sér
hugverk fyrirtækisins, heldur felast
líka gríðarleg tækifæri til sóknar
í því að nota hugverkaréttindi til
að laða að fjárfesta, koma sér fyrir
á nýjum markaði, auka tekjur eða
hefja samstarf,“ segir Borghildur.
„Rétt eins og íslenska landsliðið þá
getur lítið fyrirtæki komist langt
með því að vera með sterka vörn í
vernd hugverka og hámarka tæki-
færin þegar þau gefast. Það er oft
eina leiðin til að ná árangri á móti
stóru liðunum.“
Nýtt hagkerfi að taka við
„Við erum að sjá miklar breytingar
í iðnaði og viðskiptum. Þetta er að
miklu leyti afleiðing upplýsinga- og
tæknibyltingar síðustu áratuga,
þekkingarsamfélagsins og fjórðu
iðnbyltingarinnar. Við erum að
færa okkur úr iðnaðarhagkerfi í
þekkingar- og hugverkahagkerfi,“
segir Borghildur. „Því eru verðmæti
fyrirtækja í dag óáþreifanleg. Þessi
iðnaður er grunnur að sjálfbærum
hagvexti og skapar ekki bara störf,
heldur hálaunastörf.
Í dag er nýsköpun og hugvit
verðmætasta auðlindin sem við
eigum og hlutverk okkar á Einka-
leyfastofunni er að hjálpa fyrir-
tækjum að standa vörð um þessi
verðmæti og hámarka þau,“ segir
Borghildur.
Mörg tól til staðar
„Fyrirtæki verða að vera með sín
mál á hreinu og mega ekki láta
tilviljun eða heppni ráða því hvort
þau ná árangri,“ segir Borghildur.
„Þau hafa mörg tól sem hægt er að
grípa til. Einkaleyfi, vörumerki,
skráð hönnun, höfundarréttur og
viðskiptaleyndarmál geta öll nýst
til að vernda helstu verðmæti fyrir-
tækisins.
Stundum getur þetta virst flókið,
en við hjá Einkaleyfastofunni
reynum eftir fremsta megni að
koma fyrirtækjum til aðstoðar,
greiða úr flækjunni og beina þeim
á rétta braut,“ segir Borghildur.
„Oft geta einfaldar aðgerðir sem
kosta lítið eða ekkert skipt sköpum
seinna meir. Símtal, heimsókn eða
jafnvel bara heimsókn á heimasíð-
una okkar getur gert gæfumuninn.“
Tækifæri í verndun hugverka
Nýsköpunarfyrirtæki byggja rekstur sinn á hugviti og hugverkum. Einkaleyfastofan getur hjálpað
þeim að vernda þessi hugverk, svo fyrirtækin tapi hvorki verðmætum né samkeppnisforskoti.
Borghildur Erlingsdóttir, forstjóri Einkaleyfastofunnar, segir að verndun hugvits og hugverka verði sífellt mikilvægari. MYND/ÞÓRSTEINN SIG
KYNNINGARBLAÐ 13 M I ÐV I KU DAG U R 4 . j ú l í 2 0 1 8 NýSKöpUN á íSLANDI
0
4
-0
7
-2
0
1
8
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
5
0
-C
A
7
8
2
0
5
0
-C
9
3
C
2
0
5
0
-C
8
0
0
2
0
5
0
-C
6
C
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
6
4
s
_
3
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K