Fréttablaðið - 04.07.2018, Side 38

Fréttablaðið - 04.07.2018, Side 38
Auk alþjóðlegra stórfyrirtækja eru flest stærstu fyrirtæki landsins í viðskiptum við Men & Mice. Brú íslenskra fyrirtækja í nýsköpun yfir á alþjóðlega markaði evris.is $ € £ Tiltölulega stutt er síðan hið gamalgróna hugbúnaðar-fyrirtæki Menn og mýs fékk nýtt nafn og var það tilkomið vegna þess að 99% viðskiptavina fyrirtækisins eru utan Íslands, aðallega í Bandaríkjunum og Evrópu. Men & Mice hefur vaxið hratt á undanförnum árum og er um 20% vöxtur á milli ára. Fyrir tveimur árum tók Magnús Eðvald Björnsson við stjórnar- taumunum en hann var áður hjá Oracle í Bandaríkjunum. „Frá þeim tíma tók Men & Mice upp gíraðri stefnu þegar kom að vöruþróun. Við sáum að viðskiptavinir fyrir- tækisins voru flestir hverjir að færa sig inn í ský og að oftar en ekki var notast við margar skýjaþjónustur innan hvers fyrirtækis. Þegar svo er getur komið fyrir að hægri höndin viti ekki hvað sú vinstri er að gera,“ segir Magnús. Magnús segir ekkert slæmt við það að fyrirtæki notist við margar skýjaþjónustur, það geti til dæmis verið afar eðlilegt enda eðli deilda innan fyrirtækjanna mismunandi og þá virka sumar skýjalausnir betur en aðrar. „Okkar sýn er sú að raunveruleiki fyrirtækja er að þau verða hybrid og multi-cloud, þ.e. þau munu geyma eitthvað af gögnum staðbundið og önnur í skýi (hybrid) og þau munu notast við fleira en eina skýjaþjónustu (multi-cloud). Það er eðlilegt og fyrirtæki vilja hafa þennan sveigjanleika. Okkar veraldarsýn er að þróa lausn sem er sniðin til að veita yfirsýn í þessu dreifða umhverfi.“ Öll þróun Men & Mice fer fram á Íslandi og segir Magnús að það sé afar jákvætt að vera með fyrirtæki af þessari stærðargráðu hér á landi. Nýsköpunarumhverfið sé sterkt og styrkjaumhverfið aðstoði fyrirtæki við að takast á við nýsköpunina. Styrkir hafi einmitt skipt verulegu máli í rekstri Men & Mice í gegnum árin. Men & Mice sérhæfir sig í þróun og sölu hugbúnaðarlausna fyrir DNS-, DHCP- og IP-innviði (DDI) alþjóðlegra stórfyrirtækja. Við- skiptavinirnir eru m.a. Microsoft, Intel, Hospital Corporation of America, IMF, Nestlé, Harvard Business School, PPG Industries, InterContinental Hotels Group og Kimberly-Clark Corporation. Auk alþjóðlegra stórfyrirtækja eru flest stærstu fyrirtæki landsins í viðskiptum við Men & Mice. Þá má nefna að fyrirtækið gaf Land- spítalanum hugbúnað að andvirði nokkurra milljóna nýverið. Lesa má meira um Men & Mice á vefsvæði fyrirtækisins, menandmice.com. Fyrirtækin færa sig inn í ský Hugbúnaðarfyrirtækið Men & Mice var stofnað fyrir 28 árum og sérhæfir sig í þróun og sölu hugbúnaðarlausna fyrir DNS-, DHCP- og IP-innviði (DDI) alþjóðlegra stórfyrirtækja. Magnús og  Gyða Dögg Jónsdóttir, fjár- málastjóri fyrir- tækisins. MYND/ SIGTRYGGUR ARI 16 KYNNINGARBLAÐ 4 . J ú L í 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U RNýSKöpUN á íSLANDI 0 4 -0 7 -2 0 1 8 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 5 0 -E 3 2 8 2 0 5 0 -E 1 E C 2 0 5 0 -E 0 B 0 2 0 5 0 -D F 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.