Fréttablaðið - 04.07.2018, Qupperneq 40
Iðnvætt fiskeldi er sá markaður sem við vinnum á, höfum náð forystu þar og höldum henni
með öflugri vinnu við þróun. Það
er fyrst og fremst mannauðurinn
sem skilaði okkur þessu forskoti
og að við höldum því,“ segir Her-
mann Kristjánsson rafmagns-
verkfræðingur, forstjóri hjá Vaka,
en fyrirtækið hefur hannað og
framleitt búnað til að telja, og
mæla fisk í sjókvíum ásamt öðrum
búnaði til fiskeldis. Hjá fyrir-
tækinu starfa sjötíu starfsmenn,
þar af 32 á Íslandi, fimm í Noregi,
þrír í Skotlandi og um tuttugu í
Síle. Af starfsmönnum Vaka eru
um 90% háskólamenntaðir í verk-
fræði, tæknifræði, tölvunarfræði,
sjávarlíffræði og viðskiptafræði.
Vaki hefur átt í góðu samstarfi við
háskóla landsins og er alltaf með
augun opin fyrir góðu fólki.
Selja víða um heim
Hermann segir að Vaki hafi verið
öflugur í nýsköpun í tæknibúnaði
fyrir fiskeldi allt frá því fyrir-
tækið var stofnað árið 1986 og selji
búnað fyrir u.þ.b. 1,6 milljarða
2018 til yfir sextíu landa en Nor-
egur, Skotland, Síle, Kanada og
Færeyjar séu stærstu markaðir. „Þá
erum við með búnað í örugglega
90% seiðastöðva laxeldis um allan
heim.“ Hann nefnir að íslensku
laxeldisfyrirtækin hafi reynst
Vaka afar vel og samstarfið við þau
verið mikilvægt, en næstum allar
vörur Vaka hafa verið þróaðar í
samvinnu við íslenska jafnt sem
erlenda fiskeldismenn. „Íslensku
fiskeldisfyrirtækin hafa verið mjög
móttækileg fyrir nýjungum en
einnig leitað til okkar og greint
frá sínum þörfum og beðið okkur
að koma með hugmyndir, þann-
ig að það samstarf hefur gengið
glimrandi vel.“
Flestar af vörum Vaka hafa
algjöra sérstöðu á markaði og
má nefna sem dæmi um verkefni
innan fyrirtækisins stærðar-
mælingu á eldisfiski með innrauðu
ljósi, talningu á eldisrækju með
línumyndavél, tölvusjón og mynd-
greiningu, vöktun á villtum fiski og
tegundagreiningu þar sem stuðst
er við gervigreind. Hermann segir
jafnframt margt fram undan. „Við
erum til dæmis að vinna með að
telja lús á fiskum neðansjávar og
telja og fylgjast með lús í laxeldi
og hvernig hún þróast. Þá er hægt
að grípa inn í á réttum tíma. Það
eru heilmikil tækifæri sem felast í
þróunarvinnu okkar, ekki síst við
tegundagreiningu og að þekkja lýs
og greina þær á fiskinum.“
Orðið stórt alþjóðlegt
fyrirtæki
Miklu skipti Vaka þegar alþjóðlega
fyrirtækið Pentair Aquatic Systems
keypti öll hlutabréf í Vaka. Pentair
ætlaði sér stóra hluti á fiskeldis-
markaði og voru kaupin á Vaka
ætluð til þess að tryggja framgang á
þeim mörkuðum þar sem fyrir-
tækið hefur haft góða markaðs-
stöðu en rúmlega 95% af tekjum
Vaka eru vegna útflutnings.
Þá eykst vöruúrval Vaka til muna
með nýjum eigendum en til við-
bótar við fiskiteljara, stærðarmæla,
flokkara og fiskidælur býður fyrir-
tækið upp á Point4 súrefnissteina
og eftirlitsbúnað margs konar,
UV filtera, vatnsdælur af öllum
stærðum, hreinsikerfi, loftun,
ljós, ráðgjöf og hönnun á heildar-
lausnum í endurnýtingarkerfum í
fiskeldi.
Flestar vörur Vaka
hafa algjöra sér-
stöðu á markaði og má
nefna verkefni eins og
stærðarmælingu á eldis-
fiski með innrauðu ljósi,
talningu á eldisrækju
með línumyndavél,
tölvusjón og myndgrein-
ingu, vöktun á villtum
fiski og tegundagreiningu
þar sem stuðst er við
gervigreind.
Vaki hefur átt í góðu
samstarfi við
háskóla landsins og er
alltaf með augun opin
fyrir góðu fólki.
Með tæknibúnað í níutíu
prósent seiðastöðva laxeldis
Vaki var stofnað árið 1986 og er í dag alþjóðlegt fyrirtæki í fararbroddi á heimsvísu í þróun á
tæknibúnaði fyrir talningu og stærðarmælingu á eldisfiski. Heilmörg tækifæri eru fyrir hendi í
rekstrinum og mikill uppgangur er framundan. Sjötíu starfsmenn starfa hjá fyrirtækinu.
Hluti af starfsmönnum hjá fyrirtækinu Vaka en þeir eru víða um heim, til dæmis eru 32 á Íslandi, fimm í Noregi, þrír í Skotlandi og um tuttugu í Síle.
Vaki hefur hannað og framleitt búnað til að telja og mæla fisk í sjókvíum ásamt öðrum búnaði til fiskeldis.
Öflugur hátæknibúnaður sem Vaki hefur hannað.
18 KYNNINGARBLAÐ 4 . j ú L Í 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U RNýSKÖpuN á ÍSLANdI
0
4
-0
7
-2
0
1
8
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
5
0
-F
6
E
8
2
0
5
0
-F
5
A
C
2
0
5
0
-F
4
7
0
2
0
5
0
-F
3
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
6
4
s
_
3
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K