Fréttablaðið - 04.07.2018, Page 55
4. júlí 2018
Tónlist
Hvað? Alþjóðlegt orgelsumar –
Schola cantorum
Hvenær? 12.00
Hvar? Hallgrímskirkja
Í dag syngur kammerkór Hall-
grímskirkju, Schola cantorum,
íslenskar og erlendar kórperlur
eftir Jón Nordal, Sigvalda Kalda-
lóns, Byrd, Mendelssohn, Sigurð
Sævarsson, Bruckner og Händel
í bland við íslensk þjóðlög. Tón-
leikagestum er boðið í kaffi og
spjall við meðlimi kórsins að
tónleikunum loknum. Miðaverð
2.500 kr.
Hvað? Stirni Ensemble
Hvenær? 21.00
Hvar? Mengi, Óðinsgötu
Stirni Ensemble er hópur íslenskra
tónlistarmanna og -kvenna sem
öll eru virk í (tón)listarlífi lands-
ins. Kvartettinn leggur áherslu á
nútímatónlist og hefur frumflutt
hin ýmsu verk hérlendis. Þau hafa
komið fram meðal annars í Hörpu
á Sígildum Sunnudögum og á
Myrkum Músíkdögum en halda nú
af stað á tónleikaferð um landið.
Fyrsta stopp er í Mengi á Óðins-
götu.
Hvað? Kólga í Djúpinu
Hvenær? 21.00
Hvar? Hornið, Hafnarstræti
Kólga spilar í Djúpinu, litlum en
gamalgrónum tónleikastað með
mikla sál. Boðið verður upp á
þjóðlagatónlist héðan og þaðan í
hæsta gæðaflokki, og allt sungið
á íslensku. Með almennilegum
textum! Miðar seldir við inn-
ganginn. Aðgangseyrir er kr. 1.500
en þeir sem kaupa nýjan geisladisk
sveitarinnar á 2.500 kr. fá frítt inn.
Einungis um 40 manns komast að
í Djúpinu.
Hvað? HIMA Opnunartónleikar -
Strengjakvartettar
Hvenær? 20.00
Hvar? Harpa
Á opnunartónleikum Alþjóðlegu
tónlistarakademíunnar í Hörpu
má hlýða á kafla úr strengjakvart-
ettum eftir Mozart, Shostakovich,
Schumann, Haydn og Mendels-
sohn sem leiknir verða af nem-
endum námskeiðsins í strengja-
kvartettleik.
Hvað? Óskar Guðjónsson MOVE á
Múlanum
Hvenær? 21.00
Hvar? Harpa
Á næstu tónleikum sumardag-
skrár Múlans kemur fram kvartett
saxófónleikarans Óskars Guð-
jónssonar, MOVE. Á tónleikunum
verða leikin lög eftir meðlimi.
Einnig annarra manna lög frá gull-
aldarárum amerískrar djasstónlist-
ar. Leikgleði og innrím einkennir
nálgun kvartettsins sem tekur
mið af sameiginlegum hugsana-
flutningi og flæði. Ásamt Óskari
koma fram Eyþór Gunnarsson,
Valdimar Kolbeinn Sigurjónsson
og Matthías MD Hemstock.
Hvað? Tónlistarflutningur í Akra-
nesvita
Hvenær? 13.00
Hvar? Akranesviti
Nemendur Tónlistarskóla Akra-
ness sjá um tónlistarflutning í
Akranesvitanum.
Hvað? Slitnir Strengir - Cèilidh
Hvenær? 20.30
Hvar? Gamla kaupfélagið, Akranesi
Slitnir Strengir ætla að starta Írsk-
um dögum með því að leika Írska
tónlist á Gamla Kaupfélaginu.
Hvað? Krummi og hinir Alpafugl-
arnir
Hvenær? 20.00
Hvar? Listasafn Árnesinga, Hvera-
gerði
Ekki missa af þessari austurrísku
hljómsveit sem spilar íslenska
þjóðlagatónlist í nýrri útsetningu
sem einkennist af kímni, frá-
sagnar gleði og ástríðu fyrir Íslandi.
Viðburðir
Hvað? Söguganga um Skálholt
18. aldar
Hvenær? 19.30
Hvar? Skálholt
Í dag ætlar Bjarni Harðarson að
bjóða upp á sögugöngu. Bjarni
er bóksali á Selfossi, fyrrverandi
blaðaútgefandi og var alþingis-
maður um skamma hríð. Hann
sendi á síðasta ári frá sér skáldsög-
una Í skugga drottins sem fjallar
um Skálholt 18. aldar. Á þessu og
næsta ári kemur framhald þeirrar
sögu í bókum sem ná til þess tíma
að skóli og stóll hafa flutt endan-
lega til Reykjavíkur. Gengið verður
frá staðnum upp til Helgusystur í
Hvað?
Hvenær?
Hvar?
Miðvikudagur
Hvar@frettabladid.is
Bjarni Harðarson býður upp á sögu-
göngu í Skálholti.
Langasundi og Smiðjuhóla þar sem
margvísir Skálholtssmiðir hafa
breytt mýrarrauða í járn.
Sýningar
Hvað? Sýningin Þetta vilja börnin
sjá! farin á flakk
Hvenær? 10.00
Hvar? Bókasafnið í Menningarmið-
stöð Hornafjarðar
Farandsýningin Þetta vilja börnin
sjá! er komin til Hafnar í Horna-
firði og verður þar til 15. júlí. Á
sýningunni getur að líta mynd-
skreytingar 14 íslenskra mynd-
listarmanna við samtals 17 barna-
bækur sem komu út á árinu 2017,
ásamt bókunum sjálfum. Myndir
sýnenda eru eins fjölbreyttar og
þær eru margar. Þarfir barna eru
sérstaklega hafðar í huga við upp-
setningu sýningarinnar, enda ljóst
að viðfangsefni hennar er ætlað
börnum frá byrjun.
Hvað? Welcome to New Zoéland |
Zoé Sauvage
Hvenær? 13.00
Hvar? Listastofan, Hringbraut
New Zoéland/ Nýja Zoéland, er
innblásin ferð í duttlungafullan
hugarheim listamannsins Zoé
Sauv age gegnum teikningu/mál-
verk, myndband, innsetningu.
Landið sem er heimsótt: frændeyja
Nýja-Sjálands.
TónliST
Píanótónleikar
HHHHH
Verk eftir liszt, Ravel og Vincent
van Gelder í flutningi hins síðast-
nefnda.
Myndlist: Natalie van Gelder
Kaldalón í Hörpu
laugardaginn 30. júní
Hvað eiga hafmeyja, hengdur maður og illgjarn dvergur sameiginlegt? Jú, þau eru
öll viðfangsefni franska tónskálds-
ins Maurice Ravel í píanóverkinu
Gaspard de la Nuit. Það er í þremur
köflum sem eru innblásnir af ljóð-
um Aloysiusar Bertrand. Hið fyrsta
er um hafmeyju sem seiðir til sín
dauðlega menn. Næst er dregin upp
mynd af aftöku við rautt sólarlag.
Þriðja ljóðið er um einhvers konar
púka sem veldur gríðarlegum usla
hjá saklausu mannfólkinu.
Hollenski píanóleikarinn Vin-
cent van Gelder lék þessa tónsmíð
Ravels á tónleikum í Kaldalóni í
Hörpu á laugardaginn. Túlkun hans
var kraftmikil og gædd viðeigandi
stemningu; söngur hafmeyjunnar
var heillandi og munúðarfullur,
senan við gálgann tregafull og púk-
inn ógnandi.
Tæknilega séð var leikurinn þó
ekki alltaf ásættanlegur. Talsvert er
um hröð tónahlaup og alls konar
skraut sem krefst nákvæmni og hana
vantaði stundum. Í tónleikaskránni
stóð að Gelder hefði lent í slysi sem
varð þess valdandi að hann missti
næstum vísifingur vinstri handar.
Vel heppnuð skurðaðgerð bjargaði
honum og hann náði nánast fullum
bata. Kannski var þetta ástæðan
fyrir því að tæknileg hlið tónlistar-
innar var ekki eins og best varð á
kosið. Gelder virtist þó eiga í erfið-
leikum með hægri höndina líka, en
honum er vorkunn; Gaspard de la
Nuit er eitt vandasamasta píanóverk
tónbókmenntanna.
Gelder lék einnig tvær tónsmíðar
eftir Liszt, Liebestraum og Aufent-
halt, en sú síðarnefnda er útsetning
Liszts á söngljóði eftir Schubert.
Túlkunin var skáldleg og þrungin
innblæstri, helst mátti finna að leik
hraðra nótnaruna í Liebestraum,
sem var nokkuð loðinn.
Forvitnilegasti hluti tónleikanna
var samruni tónlistar og mynd-
listar, en um hann snerist dagskráin
eftir hlé. Þrettán ára dóttir píanó-
leikarans, Natalie van Gelder, sýndi
málverk eftir sig sem varpað var á
tjald fyrir ofan sviðið. Faðirinn lék
við þau frumsamda tónlist. Natalie
er ákaflega hæfileikarík og efnileg,
enda hefur hún þegar unnið til verð-
launa. Málverkin hennar voru hvert
öðru flottara.
Forsaga málsins er sú að Gelder-
fjölskyldan hefur komið til Íslands
margoft, og þjóðsagnaheimur
landsins, sérstaklega allt sem varðar
landvættina, varð feðginunum inn-
blástur. Natalie teiknaði inn í ljós-
myndir af náttúru Íslands ýmiss
konar furðuverur, og Vincent samdi
við myndirnar rómantíska, tilþrifa-
ríka tónlist í anda Liszts og samtíðar-
manna hans. Þetta kom vel út á tón-
leikunum. Tónlistin var stórbrotin
og magnaði upp stemninguna í
myndlistinni, og myndmálið setti
píanóleikinn ætíð í rétt samhengi.
Útkoman var óneitanlega skemmti-
leg. Jónas Sen
niðuRSTaða: Tæknilegar hliðar tón-
listarflutningsins voru ófullkomnar,
en túlkunin var sannfærandi. Samruni
tónlistar og myndlistar eftir hlé var
áhrifamikill.
Risi, örn, dreki, naut og illgjarn dvergur
Túlkun Vincents van Gelder á verki Ravels, Gaspard de la Nuit, var kraftmikil.
FAXAFENI 5
Reykjavík
588 8477
DALSBRAUT 1
Akureyri
588 1100
SKEIÐI 1
Ísafirði
456 4566
STILLANLEG RÚM • HEILSURÚM OG -DÝNUR • GAFLAR • SÆNGUR • KODDAR • SVEFNSÓFAR • STÓLAR • SÆNGURFÖT, O.FL.
60%A F S L ÁT T U R
A L LT A Ð
ÚTSALA
VEFVERSLUN
www.betrabak.is
OPIN ALLAN SÓLARHRINGINN
SUMAR
M e n n i n G ∙ F R É T T a B l a ð i ð 19M i ð V i K u D a G u R 4 . j ú l í 2 0 1 8
0
4
-0
7
-2
0
1
8
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
5
0
-E
8
1
8
2
0
5
0
-E
6
D
C
2
0
5
0
-E
5
A
0
2
0
5
0
-E
4
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
6
4
s
_
3
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K