Fréttablaðið - 04.08.2018, Side 22
Þann 15. desember 2017 fluttu fyrstu íbúarnir í Víðines, tilraunaverk-efni fyrir heimilis-lausa á vegum Reykja-víkurborgar. Nú búa
þar um fimmtán manns. Þeirra á
meðal Svanur og Tindur Gabríel.
Svanur hafði áður búið í gömlum
húsbíl á tjaldsvæðinu í Laugardal.
Tindur Gabríel hefur síðustu sjö ár
nýtt sér gistiskýlið á Lindargötu.
Íbúar greiða 50 þúsund krónur
á mánuði í leigu og þurfa að ganga
vel um sameiginlegt eldhús og bað-
herbergi. Þá er skilyrði að þeir sem
þarna búa hafi aðgang að bíl eða séu
sjálfbjarga um ferðir til og frá staðn-
um en nokkurra kílómetra gangur
er í næsta strætóskýli. Einu sinni
á dag býður velferðarsvið Reykja-
víkur upp á ferðir til borgarinnar,
fram og til baka.
Vilja vera með hænur
Svanur og Tindur Gabríel sitja fyrir
utan Víðines og sleikja sólina. Það er
bjart yfir og stillt. Einhvern tímann
hafa skrautbeð prýtt stæðið, nú
blandast skrautblómin villigróðri
ýmiss konar. Ekki langt frá eru kart-
öflugrös. Tindur Gabríel setti niður
útsæði fyrir skömmu.
„Nú þegar hann er kominn í
sveitina þá hugsar hann ekki um
annað en sveitastörf,“ segir Svanur.
„Og hann vill líka vera með hænur,“
segir hann og Tindur Gabríel kinkar
kolli. „Ég setti niður kartöflur frem-
ur seint, við sjáum hvernig það fer.
Ég á von á því að það spretti eitthvað
af þessu. Ég myndi líka vilja setja
niður rauðrófur og halda hænur. Ég
kann vel við sveitalífið. Einu sinni
ætlaði ég mér að verða bóndi en það
fór út um þúfur,“ segir hann.
Svanur brá sér til borgarinnar
í byrjun vikunnar. Hann mætti í
Ráðhús Reykjavíkur sem fulltrúi
þeirra sem búa í úrræðum fyrir
heimilislausa og sóttist eftir því
að fá að sitja aukafund borgarráðs
um málefni hópsins. En fékk ekki.
Á fundinum voru samþykktar
átta tillögur meirihlutans um
aðgerðir, meðal annars að útvega
lóðir fyrir 25 smáhýsi. Þá var sam-
þykkt tillaga fulltrúa Sósíalista-
flokksins um að kanna þarfir hóps-
ins.
Dómharka og yfirlæti
„Við fengum ekki að fylgjast með.
Mér finnst skrýtið að mega ekki
hlýða á eða ávarpa fundinn Þegar
umfjöllunarefnið er við. Það er oft
fjallað um okkur án þess að við
höfum nokkuð um það að segja,“
segir Svanur og segir oft rætt um
heimilislausa af dómhörku og
yfirlæti. Þá sé þeim oft ætlaður
ákveðinn lífsstíll sem einkennist
af löstum og óþrifnaði. „Hér er ekk-
ert lastabæli,“ segir hann og býður
í heimsókn.
„Víðines stóð autt um árabil, þar
var rekið elliheimili. Þangað til
það var nýtt fyrir hælisleitendur,“
segir Svanur. „Þetta er mjög vist-
legt. Húsnæðið var tekið í gegn fyrir
um 90 milljónir. Hér hafa verið
settar nýjar eldavélar, þvottavélar
og frystar. Við eldum matinn okkar
sjálfir, þvoum þvott og höfum
heimilisfrið,“ segir hann og þeir
Tindur Gabríel sýna vistarverurnar.
Húsnæðið er þrifalegt og bjart.
Í eldhúsinu kassar af grænmeti og
matreiðslubók um franska matar-
gerð.
Hvað finnst þér gott að elda,
Svanur?
„Ég elda eitthvað einfalt og fljót-
legt, oft nota ég örbylgjuofninn
og elda smárétti. Ég nenni ekki að
standa í flókinni eldamennsku. Það
er einn hér sem fer oft í Samhjálp
og kemur með mat þaðan til okkar.
Það væsir ekki um okkur.“
Þannig að þið eigið góða að?
„Já, það eru margir liðlegir í að
aðstoða okkur. En svo hjálpum við
okkur líka sjálfir og kaupum mat
og fleira.“
Herbergi Tinds Gabríels er
hlýlegt. Hann hefur inni hjá sér
stærðarinnar sjónvarp, fallegar
plöntur og reiðhjól. Bókahillan ber
þess vott að hann er víðlesinn. „Ég
elska blóm, þau hreinsa svo and-
rúmsloftið. Æi, mér finnst þetta svo
notalegt þótt herbergið sé lítið. Ég
þyrfti aðeins stærra herbergi. Ég
er mest hér og fer ekkert í bæinn.
Þar er enda ekkert að hafa nema
leiðindi,“ segir hann og sest á rúm-
stokkinn.
Les Platón og Aristóteles
Hvernig eyðir þú tímanum hér?
„Ég horfi mest á Netflix. Þátta-
raðir á borð við Merlín og Orange
Is the New Black eru í uppá-
haldi. Ég hef líka mikinn áhuga á
bókmenntum. Ég les ljóð og heim-
spekirit. Ég er núna að glugga í
Ríkið eftir Platón. Ég hef einnig
gaman af Aristótel esi. Ég pæli í öllu
og leiðist ekkert hér í sveitinni. Það
er gott andrými hér. Hér eru líka
fínir strákar og stelpur og það er ró
yfir núna. Það var einn órólegur hér
og það markaði lífið,“ segir Tindur
Gabríel frá.
Tindur Gabríel segist finna mik-
inn mun á líðan sinni í Víðinesi.
„Ég var í gistiskýlinu á Lindar-
götu í heil sjö ár. Ég meiddist þar.
Ég ætla að fara í mál við Reykja-
víkurborg. Pólskur vaktmaður
þar mölvaði á mér höndina,“ segir
hann og strýkur yfir hnúð á innan-
verðum úlniðnum sem er merki um
að brotið hafi verið mjög slæmt.
Tindur Gabríel? Það er óvanalegt
nafn fyrir mann á þínum aldri?
„Ég var skírður Ingimundur Valur
Hilmarsson, ég breytti því í Tind
Gabríel. Ekki út af einhverju mis-
Hér er ekkert
lastabæli
Þeir Svanur og Tindur Gabríel voru heimilis-
lausir en búa nú í Víðinesi og líkar lífið þar
vel. Þeir hafa sett niður kartöflur og vilja
hafa hænur. Lesa og horfa á Netflix.
jöfnu. Ég hafði verið átján mánuði
edrú og valdi mér þetta nafn út af
andlegum draumförum sem ég
hafði,“ útskýrir hann og segir nýtt
nafn hafa veitt sér styrk.
Hann segist heimilislaus vegna
erfiðra aðstæðna. „Ég er úr Reykja-
vík og alinn upp í borginni. Móðir
mín drakk sig í hel. Faðir minn
drakk líka. Hann fékk krabbamein
og dó á Vífilsstaðaspítala. Ég á son
og eitt afabarn. Sonur minn er
bókasafnsfræðingur á Borgarbóka-
safninu. Ég er stoltur af honum og
afabarninu,“ segir hann um líf sitt.
Tók Kleó að sér fyrir lífstíð
Herbergi Svans er öllu stærra.
Honum fylgja tveir hundar, Kleó
og hvolpurinn Jana. „Kleó hefur
fylgt mér í sex ár. Ég elska hana og
hún elskar líka mig,“ segir Svanur
ástúðlega þegar hann opnar inn í
herbergið sitt. Kleó flaðrar upp um
Úrræðið í Víðinesi
er á Vegum reykja-
Víkurborgar og hefur
borgin samið Við önnur
sVeitarfélög um að
greiða fyrir þá þjón-
ustu sem fólk þaðan
fær í Víðinesi.
Tindur Gabríel var í gistiskýlinu í sjö ár áður en hann kom i Víðines.
Kristjana Björg
Guðbrandsdóttir
kristjana@frettabladid.is
Þórsteinn Sigurðson
thorsig@frettabladid.is
4 . á g ú s t 2 0 1 8 L A U g A R D A g U R22 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð
0
4
-0
8
-2
0
1
8
0
3
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
0
8
8
-6
2
D
0
2
0
8
8
-6
1
9
4
2
0
8
8
-6
0
5
8
2
0
8
8
-5
F
1
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
6
4
s
_
3
_
8
_
2
0
1
8
C
M
Y
K