Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.08.2018, Qupperneq 22

Fréttablaðið - 04.08.2018, Qupperneq 22
Þann 15. desember 2017 fluttu fyrstu íbúarnir í Víðines, tilraunaverk-efni fyrir heimilis-lausa á vegum Reykja-víkurborgar.  Nú búa þar um fimmtán manns.  Þeirra  á meðal Svanur og Tindur Gabríel. Svanur hafði áður búið í gömlum húsbíl á tjaldsvæðinu í Laugardal. Tindur Gabríel hefur síðustu sjö ár nýtt sér gistiskýlið á Lindargötu. Íbúar greiða 50 þúsund krónur á mánuði í leigu og þurfa að ganga vel um sameiginlegt eldhús og bað- herbergi. Þá er skilyrði að þeir sem þarna búa hafi aðgang að bíl eða séu sjálfbjarga um ferðir til og frá staðn- um en nokkurra kílómetra gangur er í næsta strætóskýli. Einu sinni á dag býður velferðarsvið Reykja- víkur upp á ferðir til borgarinnar, fram og til baka. Vilja vera með hænur Svanur og Tindur Gabríel sitja fyrir utan Víðines og sleikja sólina. Það er bjart yfir og stillt. Einhvern tímann hafa skrautbeð prýtt stæðið, nú blandast skrautblómin villigróðri ýmiss konar. Ekki langt frá eru kart- öflugrös. Tindur Gabríel setti niður útsæði fyrir skömmu.  „Nú þegar hann er kominn í sveitina þá hugsar hann ekki um annað en sveitastörf,“ segir Svanur. „Og hann vill líka vera með hænur,“ segir hann og Tindur Gabríel kinkar kolli. „Ég setti niður kartöflur frem- ur seint, við sjáum hvernig það fer. Ég á von á því að það spretti eitthvað af þessu. Ég myndi líka vilja setja niður rauðrófur og halda hænur. Ég kann vel við sveitalífið. Einu sinni ætlaði ég mér að verða bóndi en það fór út um þúfur,“ segir hann. Svanur brá sér til borgarinnar í byrjun vikunnar. Hann mætti í Ráðhús Reykjavíkur sem fulltrúi þeirra sem búa í úrræðum fyrir heimilislausa og sóttist eftir því að fá að sitja aukafund borgarráðs um málefni hópsins. En fékk ekki. Á fundinum voru samþykktar átta tillögur meirihlutans um aðgerðir, meðal annars að útvega lóðir fyrir 25 smáhýsi. Þá var sam- þykkt tillaga fulltrúa Sósíalista- flokksins um að kanna þarfir hóps- ins. Dómharka og yfirlæti „Við fengum ekki að fylgjast með. Mér finnst skrýtið að mega ekki hlýða á eða ávarpa fundinn Þegar umfjöllunarefnið er við. Það er oft fjallað um okkur án þess að við höfum nokkuð um það að segja,“  segir Svanur og segir oft rætt um heimilislausa af dómhörku og yfirlæti. Þá sé þeim oft ætlaður ákveðinn lífsstíll sem einkennist af löstum og óþrifnaði. „Hér er ekk- ert lastabæli,“ segir hann og býður í heimsókn. „Víðines stóð autt um árabil, þar var rekið elliheimili. Þangað til það var nýtt fyrir hælisleitendur,“ segir Svanur. „Þetta er mjög vist- legt. Húsnæðið var tekið í gegn fyrir um 90 milljónir. Hér hafa verið settar nýjar eldavélar, þvottavélar og frystar. Við eldum matinn okkar sjálfir, þvoum þvott og höfum heimilisfrið,“ segir hann og þeir Tindur Gabríel sýna vistarverurnar. Húsnæðið er þrifalegt og bjart. Í eldhúsinu kassar af grænmeti og matreiðslubók um franska matar- gerð. Hvað finnst þér gott að elda, Svanur? „Ég elda eitthvað einfalt og fljót- legt, oft nota ég örbylgjuofninn og elda smárétti. Ég nenni ekki að standa í flókinni eldamennsku. Það er einn hér sem fer oft í Samhjálp og kemur með mat þaðan til okkar. Það væsir ekki um okkur.“ Þannig að þið eigið góða að? „Já, það eru margir liðlegir í að aðstoða okkur. En svo hjálpum við okkur líka sjálfir og kaupum mat og fleira.“ Herbergi Tinds Gabríels er hlýlegt. Hann hefur inni hjá sér stærðarinnar sjónvarp, fallegar plöntur og reiðhjól. Bókahillan ber þess vott að hann er víðlesinn. „Ég elska blóm, þau hreinsa svo and- rúmsloftið. Æi, mér finnst þetta svo notalegt þótt herbergið sé lítið. Ég þyrfti aðeins stærra herbergi. Ég er mest hér og fer ekkert í bæinn. Þar er enda ekkert að hafa nema leiðindi,“ segir hann og sest á rúm- stokkinn. Les Platón og Aristóteles Hvernig eyðir þú tímanum hér? „Ég horfi mest á Netflix. Þátta- raðir á borð við Merlín og Orange Is the New Black eru í uppá- haldi. Ég hef líka mikinn áhuga á bókmenntum. Ég les ljóð og heim- spekirit. Ég er núna að glugga í Ríkið eftir  Platón. Ég hef einnig gaman af Aristótel esi. Ég pæli í öllu og leiðist ekkert hér í sveitinni. Það er gott andrými hér. Hér eru líka fínir strákar og stelpur og það er ró yfir núna. Það var einn órólegur hér og það markaði lífið,“ segir Tindur Gabríel frá. Tindur Gabríel segist finna mik- inn mun á líðan sinni í Víðinesi. „Ég var í gistiskýlinu á Lindar- götu í heil sjö ár. Ég meiddist þar. Ég ætla að fara í mál við Reykja- víkurborg. Pólskur vaktmaður þar mölvaði á mér höndina,“ segir hann og strýkur yfir hnúð á innan- verðum úlniðnum sem er merki um að brotið hafi verið mjög slæmt. Tindur Gabríel? Það er óvanalegt nafn fyrir mann á þínum aldri? „Ég var skírður Ingimundur Valur Hilmarsson, ég breytti því í Tind Gabríel. Ekki út af einhverju mis- Hér er ekkert lastabæli Þeir Svanur og Tindur Gabríel voru heimilis- lausir en búa nú í Víðinesi og líkar lífið þar vel. Þeir hafa sett niður kartöflur og vilja hafa hænur. Lesa og horfa á Netflix. jöfnu. Ég hafði verið átján mánuði edrú og valdi mér þetta nafn út af andlegum draumförum sem  ég hafði,“ útskýrir hann og segir nýtt nafn hafa veitt sér styrk. Hann segist heimilislaus vegna erfiðra aðstæðna. „Ég er úr Reykja- vík og alinn upp í borginni. Móðir mín drakk sig í hel. Faðir minn drakk líka. Hann fékk krabbamein og dó á Vífilsstaðaspítala. Ég á son og eitt afabarn. Sonur minn er bókasafnsfræðingur á Borgarbóka- safninu. Ég er stoltur af honum og afabarninu,“ segir hann um líf sitt. Tók Kleó að sér fyrir lífstíð Herbergi Svans er öllu stærra. Honum fylgja tveir hundar, Kleó og hvolpurinn Jana. „Kleó hefur fylgt mér í sex ár. Ég elska hana  og hún elskar líka mig,“ segir Svanur ástúðlega þegar hann opnar inn í herbergið sitt. Kleó flaðrar upp um Úrræðið  í Víðinesi  er á Vegum reykja- Víkurborgar og hefur borgin samið Við önnur sVeitarfélög um að greiða fyrir þá þjón- ustu sem fólk þaðan fær í Víðinesi.  Tindur Gabríel var í gistiskýlinu í sjö ár áður en hann kom i Víðines. Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjana@frettabladid.is Þórsteinn Sigurðson thorsig@frettabladid.is 4 . á g ú s t 2 0 1 8 L A U g A R D A g U R22 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð 0 4 -0 8 -2 0 1 8 0 3 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 8 8 -6 2 D 0 2 0 8 8 -6 1 9 4 2 0 8 8 -6 0 5 8 2 0 8 8 -5 F 1 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 6 4 s _ 3 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.