Fréttablaðið - 18.08.2018, Page 80

Fréttablaðið - 18.08.2018, Page 80
Í ágústmánuði 1982 var frum-sýnd ný íslensk bíómynd. Slíkt þóttu stórtíðindi á þessum árum og landsmenn flykktust í kvikmynda-húsin líkt og um borgaralega skyldu væri að ræða. Að þessu sinni var eftirvæntingin sérstaklega mikil, þar sem augljóst var talið að verkið myndi vekja hneykslun og ganga fram af góðborgurum. Myndin bar titilinn „Okkar á milli: í hita og þunga dagsins“ og leikstjórinn var Hrafn Gunnlaugsson. Þeir hneykslunarsæknu fengu nóg fyrir sinn snúð. Myndin segir frá miðaldra verkfræðingnum Benja- mín, leiknum af Benedikt Árnasyni, sem missir fótanna í lífinu við fráfall vinar síns. Tilvistarkreppan leiðir hann á pönktónleika, milli þess sem hann dreymir kynlífsdrauma um táningsdóttur sína og jafnöldru hennar, dóttur vinarins látna. Líkt og gilt hefur um fleiri myndir leikstjórans, mótuðust viðbrögð áhorfenda talsvert af pólitískum skoðunum þeirra og afstöðu til listamannsins sjálfs. Í Morgun- blaðinu var farið fögrum orðum um myndina, en gagnrýnandi Þjóðvilj- ans var mun hófstilltari í orðavali sínu. Í lesendabréfi í Veru, málgagni Kvennaframboðsins í Reykjavík, var þeirri mynd sem Hrafn drægi upp af konum líkt við „kynferðislegan fas- isma“ og annar bréfritari sagði hana slá öll met hvað snertir ófrumleik og lélega vinnslu, þótt „vinir leikstjór- ans úr Sjálfstæðisflokknum“ væru kannski á öðru máli. Kvikmyndin var orðin að bitbeini manna mörgum mánuðum áður en hún var frumsýnd, þegar í ljós kom að kvikmyndatökuliðið hafði látið opna rauf í hverbarm Geysis og bera í hann sápu til að framkalla gos fyrir lokaatriði myndarinnar. Rauf þessi hafði verið útbúin á fjórða ára- tugnum til að auka gostíðni Geysis en síðan verið fyllt upp aftur. Var nú hart deilt um hvort framganga Hrafns og félaga teldust náttúruspjöll á einhverri helgustu náttúruperlu lands- ins. Kom þá mörgum á óvart að uppgötva að sáralitlar reglur væru í gildi varðandi Geysi, sem aldrei hefði verið friðlýstur. Ósmekklegir effektar Skömmu eftir frumsýningu myndarinnar kom upp annað hneykslunarefni. Jón Þórarinsson tónskáld ritaði bréf til mennta- málaráðuneytisins þar sem vakin var athygli á ósæmilegri notkun á íslenska þjóðsöngn um í myndinni. Hljómplötuútgáfan Fálkinn hafði þá gefið út á plötu tónlistina úr myndinni, sem þegar fór á topp hljómplötulistans, enda hafði hún að geyma hið gríðarvinsæla lag Magnúsar Eiríkssonar, „Drauma- prinsinn“, í flutningi Ragnhildar Gísladóttur. Í bréfi Jóns kom fram að á plöt- unni væri að finna tvær útgáfur af Lofsöng Sveinbjörns Sveinbjörns- sonar. Önnur bæri titilinn „Lof- söngurinn í hita og þunga“ og væri eignuð Sveinbirni á plötumiða, en útsetningin sögð eftir „Þursana“. „Lagið sjálft er hér ekki beinlínis aflagað. Hljómaval er að mestu hið sama og í frumgerðinni, en radd- skipan er með þeim hætti, að lagið glatar með öllu eðlilegri reisn sinni. Tónblær rafmagnshljóðfæranna, sem notuð eru, er óviðfelldinn í þessu sambandi, og frá eigin brjósti hafa útsetjarar bætt inn í lagið mjög ósmekklegum og algerlega tilefnis- lausum „slagverkseffektum“.“ Hin útgáfan var útsett og leikin af píanistanum Guðmundi Ing- ólfssyni. Þar sagði Jón að um væri að ræða „algera umritun í jazz-stíl, svo gagngera að jafnvel má gera ráð fyrir, að skyldleiki þessarar tón- smíðar við þjóðsönginn hefði farið fram hjá ýmsum hlustendum, ef ekki væri gefin bending um hann með titlinum og með því að nefna nafn Sveinbjörns Sveinbjörns- sonar í þessu sambandi“. Tók Jón Þórarinsson fram að á sinn hátt væri þessi útgáfa nokkuð snjöll og sköru- lega leikin. Beindi bréfritari því til ráðuneytisins að það léti kanna hvort ekki væri rétt að stöðva sölu á hljómplötunni og ef til vill að grípa til aðgerða af opinberri hálfu vegna hennar og kvikmyndarinnar? Hófust nú nokkrar vangaveltur um hvort lögbann yrði sett á sýn- ingu Okkar á milli eða dreifingu plötunnar, en þær hljóðnuðu fljótlega eftir að ráðuneytið lýsti því yfir að það teldi ekki ástæðu til að bregðast við að svo stöddu. Ástæðan var einföld: engin lög voru í gildi um þjóðsöng- inn. Voru nú hafðar hraðar hendur og samið lagafrumvarp sem dr. Gunn- ar Thoroddsen forsætisráðherra lagði fram á haustþingi 1982. Lögin voru stutt en tiltóku meðal annars að þjóðsöngur Íslendinga væri „Ó, guð vors lands“, ljóð eftir Matthías Jochumsson með lagi Sveinbjörns Sveinbjörnssonar. Söngurinn teldist í eigu íslensku þjóðarinnar, en for- sætisráðuneytið skyldi hafa umráð með útgáfurétti hans og óheimilt væri að flytja eða birta í annarri mynd en hinni upphaflegu gerð. Var þar ekki kveðið eins sterkt að orði og í upphaflega frumvarpinu, þar sem tekið var fram að óheimilt væri að hrófla við ljóði, laggerð, hljómsetningu eða hljóðfalli þjóð- söngsins. Þjóðsöngur á reiki Óneitanlega kom það mörgum spánskt fyrir sjónir að flytja þyrfti frumvarp um þjóðsönginn og í greinargerð með lögunum var saga málsins rakin. Lofsöngurinn, „Ó, Guð vors lands“, var fyrst fluttur við hátíðarguðsþjónustu í Dóm- kirkjunni þann 2. ágúst 1874, sem hluti hátíðarhalda vegna þúsund ára afmælis Íslandsbyggðar. Haust- ið áður hafði Matthías Jochumsson verið gestur á heimili tónskáldsins í Edinborg í Skotlandi og ort þar fyrsta erindi ljóðsins, sem lagði út af Davíðssálmi sem ákveðið hafði verið að taka til umfjöllunar í kirkjum landsins vegna afmælis- ins. Þá um vorið orti Matthías svo tvö seinni erindin og Sveinbjörn samdi lagið. Oft er sagan sögð á þann veg að Lofsöngurinn hafi þá þegar hlotið stöðu þjóðsöngs, en sú var þó ekki raunin. Á hátíðarstundum sungu Íslendingar kvæðið Eldgamla Ísa- fold við enska lagið „God save the King/Queen“ og munu flestir hafa litið á það sem þjóðsönginn næstu áratugina. Til marks um það seldi Sveinbjörn Sveinbjörnsson erlendu útgáfufélagi öll réttindi að laginu árið 1910, sem aldrei hefði komið til álita ef það hefði þá haft stöðu þjóðsöngs. Með tímanum þótti lands- mönnum það óviðeigandi að taka þjóðsöng erlends ríkis að láni og mun íþróttahreyfingin sérstaklega hafa beitt sér fyrir því að þessu yrði breytt. Í tengslum við Alþingis- hátíðina 1930 var reynt að kaupa réttindin að lagi Sveinbjörns, en rétthafinn vildi ekki selja. Árið 1948 náðust loks samningar um málið og ári síðar keypti menntamálaráðu- neytið réttindin að ljóðinu af erf- ingjum Matthíasar Jochumssonar. Með samningum um réttinda- málin voru mikilvæg skref stigin í átt til þess að gera Lofsönginn formlega að þjóðsöng landsmanna. Árið 1957 stóð forsætisráðuneytið svo fyrir útgáfu lagsins á hljóm- plötu, þar sem það hlaut undir- titilinn „Þjóðsöngur Íslendinga“ og á aldarafmæli lagsins, var sett minningarplata á hús Sveinbjarnar í Edinborg þar sem berum orðum er talað um þjóðsöng Íslands. Umræðurnar um frumvarpið voru allnokkrar og býsna fróðlegar. Öllum mátti ljóst vera að frumlegar útfærslur lagsins í mynd Hrafns Gunnlaugssonar voru kveikjan að lagafrumvarpinu, en Gunnar Thoroddsen vék þó ekki að því einu orði í ræðum sínum. Stjórnar- liðinn Stefán Jónsson, þingmaður Alþýðubandalagsins, gat ekki stillt sig um að erta forsætisráðherra vegna þessa: „Það er á almanna- vitorði hvers vegna það þykir nú fyrst við hæfi að flytja frumvarp til laga um þjóðsöng okkar og með- ferð hans, þ.e. ósmekklega með- ferð á þjóðsöngnum, ljóði og lagi, á opinberum vettvangi. Ég skil það vel, þar sem við búum nú svo vel, Íslendingar, að hafa þann mann á forsætisráðherrastóli sem er ekki aðeins sjálfur músíkalskur maður, heldur einnig smekkmaður á ljóð, að efalítið hafa þessar staðreyndir heldur ýtt undir gerð þess laga- frumvarps sem hér liggur fyrir.“ Stefán fór fögrum orðum um kvæði Matthíasar, sem væri upp- hafið og dýrlegt með frjálslyndum trúarskoðunum. Hins vegar sá hann ekki þörfina á að njörva niður flutninginn þannig að lagið skyldi ætíð vera í sömu mynd. „Ég minn- ist þess að hafa heyrt þjóðsönginn okkar fluttan í djassútsetningu, sunginn af íslenskri söngkonu og á þann hátt að hann snart mína fremur hrjúfu músíkölsku sál jafn- vel ennþá dýpra en í hinni klass- ísku mynd.“ Benti hann á að jafnvel heitustu bandarísku þjóðernissinnar kynnu vel að meta jazzskotnar útsetn- ingar á þjóðsöng sínum og nefndi velheppnuð dæmi um slíkt. „Ég hygg að við verðum að eiga það á hættu, vegna þess að þar er nokk- urs til að vinna, að hægt verði að bæta þjóðsönginn okkar í flutningi, gera hann við hæfi hvers tíma, fella hann að gildandi og ríkjandi smekk fólksins í landinu á hverjum tíma og opna jafnvel þannig leið fyrir þjóðsönginn okkar að hjörtum fólksins með því að sníða flytj- endum ekki svo þröngan stakk að þarna megi hvergi frá víkja.“ Sem fyrr segir urðu sjónarmið Stefáns Jónssonar og félaga ofan á í meðförum þingsins og var horfið frá því að setja of stíf skilyrði um útsetningar á lagi Sveinbjörns Sveinbjörnssonar. Lögin náðu svo fram að ganga á vorþingi 1983 og Íslendingar eignuðust loksins Ó, guð vors lands … KOMDU Í – dásamleg deild samfélagsins OPIÐ UM HELGAR FRÁ KL. 11 – 17 K V IK A Saga til næsta Stefán Pálsson skrifar um alræmda kvikmyndatónlist 1 8 . á g ú s t 2 0 1 8 L A U g A R D A g U R28 H e L g i n ∙ F R É t t A B L A ð i ð 1 8 -0 8 -2 0 1 8 0 4 :2 8 F B 1 0 4 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 1 0 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 0 9 A -3 E F 0 2 0 9 A -3 D B 4 2 0 9 A -3 C 7 8 2 0 9 A -3 B 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 1 0 4 s _ 1 7 _ 8 _ 2 0 1 8 C M Y K
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.