Úr þjóðarbúskapnum : framvindan ... og horfur .. - 08.11.1979, Blaðsíða 3
Inngangur.
í fyrsta hluta skýrslu um þjóðhagsáætlun, sem lögð var fyrir Alþingi hinn 11.
október síðastliðinn1, gerði Þjóðhagsstofnun nokkra grein fyrir ástandi og horfum
í efnahagsmálum. Frá því sú greinargerð var samin hafa komið fram ítarlegri
upplýsingar um ýmsar mikilvægar hagstærðir á fyrstu þremur f jórðungum þessa
árs. Þessar upplýsingar leiða fátt óvænt í ljós og staðfesta í aðalatriðum þær
áætlanir um helztu þjóðhagsstærðir ársins 1979, sem fram voru settar í skýrslunni
um þjóðhagsáætlun.
í þessari skýrslu er leitazt við í ljósi nýjustu hagtalna að gera nánari grein fyrir
framvindunni 1979 með gleggri samanburði við fyrri ár en kostur var í þjóð-
hagsáætlun. Þessi samanburður kemur víða fram í textanum og ennfremur er
allmikið talnaefni yfir hagþróun síðustu ára sett fram í sérstökum töflukafla í lok
skýrslunnar.
Efnahagshorfur í nánustu framtíð virðast um þessar mundir venju fremur
óráðnar. Efnahagsástand í umheiminum er nú einkar ótryggt og framvinda efna-
hagsmála á innlendum vettvangi afar óviss, enda eru kosningar til Alþingis og
stjómarmyndun og almennir kjarasamningar á næsta leiti. Af þessum sökum
hefur þeim óvissu og óþekktu atriðum, sem áhrif hafa á gang efnahagsmála á
næsta ári, fjölgað á síðustu vikum. Skýrsla þessi dregur óumflýjanlega dám af
þessu, að því er umfjöllun um horfumar varðar.
Á árinu 1979 hefur efnahagsframvinda í flestum ríkjum heims breytzt til hins
verra. Áætlanir alþjóðastofnana benda til, að þjóðarframleiðsla iðnríkjanna auk-
ist um minna en 3% á árinu, samanborið við um það bil 4% aukningu síðustu tvö
árin, og víða gætir svartsýni um horfur fyrir næsta ár. Verðbólga og atvinnuleysi
færist samhliða í vöxt í mörgum ríkjum, og gætir þar í senn áhrifa hinnar stórfelldu
hækkunar olíuverðs á árinu og minnkandi hagvaxtar í Bandaríkjunum, sem
jafnvel er tahð, að geti snúizt í alvarlegan afturkipp. Olíuverðshækkunin er nú
þeim mun erfiðari viðfangs, að hún bætist ofan á verðbólgu- og atvinnu-
leysisvanda, sem ærinn var fyrir.
íslenzki þjóðarbúskapurinn hefur orðið fyrir barðinu á öfugþróun efnahags-
mála í heiminum á árinu 1979 á þann hátt fyrst og fremst, að olíuverðshækkunin
kemur hér harðar niður en víðast hvar annars staðar. Talið er að þjóð-
arframleiðslan muni aukast um 2V2% að raungildi á árinu 1979, en vegna versn-
andi viðskiptakjara af völdum olíuverðshækkunar munu þjóðartekjur hins vegar
minnka um tæplega 1%. Þrátt fyrir viðskiptakjararýrnun er búizt við jafnvægi í
1) 1979 (101. löggjafarþing), Sþ. 2. Skýrsla um þjóðhagsáætlun fyrir árið 1980, bls. 3—20.