Úr þjóðarbúskapnum : framvindan ... og horfur .. - 08.11.1979, Blaðsíða 6
6
verður ekki nema að nokkru leyti unnt að mæta með aukinni sókn í aðra botn-
fiska, enda hefur sá afli þegar aukizt verulega á þessu ári. Eins og nú horfir gæti
loðnuafli á næsta ári einnig orðið minni en í ár. Af þessu leiðir, að gera verður ráð
fyrir, að framleiðsluaukning í ár umfram upphaflega spá gangi til baka á næsta ári
og framleiðsla sjávarafurða minnki um 4—5% á árinu 1980.
Álframleiðslan í ár verður líklega heldur minni en í fyrra, þar sem vatnsskortur
hefur valdið því, að Landsvirkjun hefur orðið að draga úr raforkusölu til stóriðju
síðustu vikumar. Á næsta ári lýkur stækkun verksmiðjunnar og eykst þá fram-
leiðslan líklega um 7%, ef hún getur starfað með fullum afköstum allt árið.
Útflutningur ullar- og skinnavöm hefur aukizt talsvert á þessu ári og búast má við
frekari aukningu á næsta ári. Útflutningur á jámblendi er hafinn og verður hann
líklega rúmlega 1 % af heildarútflutningi á þessu ári. Síðari áfanga jámblendi-
verksmiðjunnar á að ljúka haustið 1980 og framleiðslan gæti þá tvöfaldazt á næsta
ári og framleiðsluaukningin jafngilt nær 2% aukningu heildarframleiðslu til út-
flutnings. Hér veltur þó á miklu, að nægilegt rafmagn fáist til framleiðslunnar.
Séu framangreindar spár um framleiðslu í einstökum útflutningsgreinum
dregnar saman, verður niðurstaðan sú, að útflutningsframleiðslan vaxi um 8 % í ár
og verði síðan óbreytt á næsta ári, þrátt fyrir minni fiskafla.
Markaður fyrir afurðir hefur verið góður og ekki útlit fyrir, að birgðir útflutn-
ingsvöm verði meiri í árslok en um síðustu áramót. Vaxandi óvissa ríkir hins vegar
um efnahagsframvindu í heiminum á næsta ári, eins og áður er að vikið og þar með
um þróun utanríkisviðskipta. í þessu sambandi má geta þess, að fiskveiðar fara nú
vaxandi á ný við austurströnd Norður-Ameríku með 200 mílna efnahagslögsögu á
þeim slóðum. Þaðan gæti komið aukið framboð á fiski á Bandaríkjamarkað á
næstu ámm. í þessu sambandi er þess þó að geta, að fiskneyzla hefur aukizt
nokkuð vestanhafs og gæti það vegið á móti auknu framboði. Sjávarafurðafram-
leiðsla í Vestur-Evrópu hefur aftur á móti dregizt saman og þar gæti því orðið um
vaxandi markað að ræða fyrir íslenzkar sjávarafurðir.
Viðskiptakjör.
Viðskiptakjör þjóðarinnar gagnvart útlöndum ( þ. e. hlutfallið milli útflutnings-
verðs og innflutningsverðs) bötnuðu um samtals 21 % á ámnum 1976 og 1977, en
vom þó enn um 6% lakari en þau urðu bezt á þessum áratug, 1973. í fyrra héldust
viðskiptakjörin óbreytt að meðaltali frá árinu 1977 en fóm versnandi er leið á
árið. í byrjun þessa árs bötnuðu þau nokkuð vegna verðhækkunar á frystiafurðum
á Bandaríkjamarkaði, en hafa síðan rýrnað að mun vegna hinnar miklu hækkunar
á olíuverði. Á fyrstu þremur ársfjórðungunum vom viðskiptakjörin 8—9% lakari
en að meðaltah á árinu 1978, og var það eingöngu vegna olíuverðshækkunarinn-
ar, þar sem verð á öðmm inntlutningi hækkaði líkt og útflutningsverð. Á fjórða
ársfjórðungi er ekki að búast við mikilli breytingu á viðskiptakjömm frá því sem
var á þriðja ársfjórðungi og er útlit fyrir, að viðskiptakjörin verði að jafnaði 11 %
lakari í ár en þau vom í fyrra. Undir lok ársins gætu þau verið 3—4% lakari en að