Úr þjóðarbúskapnum : framvindan ... og horfur .. - 08.11.1979, Blaðsíða 20
20
Framleiðsla og hagur atvinnuvega
Sjávarútvegur
Eins og áður hefur verið getið eru nú horfur á, að sjávarvöruframleiðslan aukist
um 8% á þessu ári. Verðmæti sjávarvöruframleiðslunnar f. o. b. verður að
líkindum um 202 milljarðar króna, en það er 71 milljarði, eða 54%, meira en á
árinu 1978. Þessi verðmætisaukning er einkum af þrennum toga spunnin, þ. e. 8%
aukningu framleiðslunnar, 9—10% hækkun útflutningsverðs í dollurum og 30%
hækkun á verði dollars í krónum. Þessi aukning framleiðslunnar á árinu 1979
kemur í kjölfar 6% aukningar á árinu 1978 og rúmlega 20% aukningar á árinu
1977. Á árinu 1977 var aukningin borin uppi af loðnuafla, sem jókst úr 459
þúsund tonnum í 813 þúsund tonn, og jafnframt jókst þorskafli úr 284
þúsund tonnum í 330 þúsund tonn. Á árinu 1978 mátti að meginhluta rekja
aukningu framleiðslunnar til aukins loðnuafla, en afli þorsks minnkaði hins vegar
um 10 þúsund tonn. Á árinu 1979 eru horfur á því, að þorskafli aukist og verði
320—330 þúsund tonn, en auk þess eykst botnfiskafli talsvert. Loðnuafli mun að
líkindum minnka nokkuð, en á móti því vegur, að mun meira var fryst af loðnu á
vetrarvertíðinni 1979 en mörg undanfarin ár.
Magnvísitala sjávarafurðaframleiðslu 1970—1979.
1970 = 100.
1970 1971 1972 1973 1974 1975 1976 1977 1978 Spá 1979
100 94.2 88.7 97.8 99.9 99.8 111.3 134.8 142.5 153.9
Hagur sjávarútvegsgreina hefur verið ærið misjafn á þessu ári. Þannig verður
hagur útgerðarfyrirtækja að teljast þolanlegur um þessar mundir, þótt miklir
rekstrarerfiðleikar steðjuðu að útgerðinni, eftir að hækkandi olíuverðs fór að
gæta í byrjun þessa árs. Við þeim vanda var snúizt með upptöku olíugjalds utan
hlutaskipta og síðar með hækkun olíugjalds og upptöku verðuppbóta á ufsa og
karfa. Þessar aðgerðir og mikill sjávarafli hafa haldið útgerðinni gangandi og
stöðu afkastamesta hluta flotans — skuttogara — vel viðunandi. Auk þess má
nefna, að breytingar á vélum úr gasolíubrennslu yfir í svartolíubrennslu hafa
dregið mjög úr rekstrarkostnaði margra útgerðarfyrirtækja. Rekstur skuttogara-
flotans hefur í heild verið hallalaus og hagur togarútgerðar hefur ekki verið betri
um nokkurt árabil. Bátaflotinn á hins vegar enn í erfiðleikum eins og undanfarin
ár, ef undan eru skildir loðnubátamir.
Afkoma frystihúsanna var orðin afar erfið á miðju ári 1978, en batnaði síðan
eftir gengislækkunina í september. Markaðsverð frystiafurða hækkaði um ára-
mótin og aftur í maímánuði síðastliðnum og framleiðsluaukning var mjög mikil
framan af árinu, meðal annars vegna mikillar loðnufrystingar. Afkoma frystihús-