Úr þjóðarbúskapnum : framvindan ... og horfur .. - 08.11.1979, Blaðsíða 18
18
Fyrstu áætlanir benda til þess, að endurgreiðslur langra erlendra lána muni
nema um 36 milljörðum króna á næsta ári reiknað á gengi ársins í ár. Til viðbótar
endurgreiðslu langra lána þarf að greiða 8 milljarða af skammtímaskuldum á
næsta ári, einkum til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, en það hefur þó ekki áhrif á
gjaldeyrisstöðuna en rýrir gjaldeyrisforðann. Til þess að forðinn rýmaði ekki
þyrfti að taka um 44 milljarða króna að láni erlendis auk þess sem viðskiptahalli
kynni að gefa tilefni til. Fæm erlendar lántökur fram yfir þetta mark gæti það hins
vegar torveldað stjóm peningamála á næsta ári. Einnig er útlit fyrir, að greiðslu-
byrðin muni fara vaxandi á næstu ámm, jafnvel þótt gert sé ráð fyrir nokkurri
aukningu útflutningstekna en ekki reiknað með lántökum umfram afborganir af
eldri lánum eftir 1980.
Þjóðarframleiðsla — þjóðartekjur
Nú em horfur á, að þjóðarframleiðsla vaxi um 2'/2% í ár eða um rúmlega N/2% á
mann. Þetta er nokkm meiri hagvöxtur en reiknað var með framan af árinu, fyrst
og fremst vegna þess, að útflutningsframleiðslan verður meiri en þá var gert ráð
fyrir. Hins vegar er þetta minni aukning en árin 1976 til 1978 og einnig minni
aukning en að meðaltali á þessum áratug, en þjóðarframleiðsla á mann hefur á
Þjóðarframleiðsla, þjóðartekjur og þjóðarútgjöld 1978—1980.
Milljarðar króna á verðlagi hvórs árs Magnbreytingar frá fyrra ári,%
1978 Spá 1979 1978 1979 Dæmi 1980
Einkaneyzla 354,6 520,0 6,0 1,5
Samneyzla 68,4 100,4 3,8 2,0
Fjármunamyndun, alls 150,5 206,6 -s-7,1 -5-6,0
Atvinnuvegir 66,9 88,1 -5-4,3 -5-10,0
íbúðarhús 34,0 48,1 -5-1,0 -5-3,0
Opinberar framkvæmdir 49,6 70,4 -5-15,0 -5-3,0
Birgða- og bústofnsbreytingar ... H-6,1 —
Þjóðarútgjöld 567,4 827,0 0,4 1,0 1,0
Útflutningur vöru og þjónustu ... 249,8 387,0 14,6 4,5 1,5
Innflutningur vöru og þjónustu .. 241,4 387,0 5,8 0,5 1,5
Viðskiptajöfnuður 8,4 0,0
Verg þjóðarframleiðsla 575,8 827,0 4,2 2,5 1,0
Viðskiptakjaraáhrif1) 0,0 -5-3,2 -5-1,0
Vergar þjóðartekjur 4,2 -5-0.7 0,0
1) Hlutfall af þjóðarframleiðslu fyrra árs.
þeim tíma vaxið um nálægt 4 % til jafnaðar á ári. Er það heldur meiri hagvöxtur en
næstu tvo áratugi á undan.
Vegna versnandi viðskiptakjara munu þjóðartekjur minnka um nálægt 1% í ár
eða um nær 2% á mann. Viðskiptakjaraskellurinn skerðir því þjóðartekjur um