Úr þjóðarbúskapnum : framvindan ... og horfur .. - 08.11.1979, Blaðsíða 7
7
meðaltali á árinu. Má rekja alla rýmun viðskiptakjara til hækkunar olíuverðs, þar
sem hækkun útflutningsverðs hefur vegið upp verðhækkun á innflutningi öðmm
en olíu.
Skráð verð á olíuvörum á Rotterdammarkaði var mjög stöðugt árin 1975 til
1977 og fram á mitt síðasta ár, er það tók að hækka og rauk upp á fyrstu mánuðum
þessa árs. Sem dæmi um framvinduna má taka verð á gasolíu, en hún vegur þyngst
í olíuinnflutningi íslendinga. Á árinu 1978 var meðalverð þeirrar gasolíu, er flutt
var til landsins, um 123 Bandaríkjadollarar hvert tonn f. o. b. Um síðastliðin
áramót var skráð verð 160 dollarar, en um miðjan febrúar var það komið í 340
dollara. Verðið lækkaði síðan ört niður í um 225 dollara eftir miðjan marz, en tók
þá að hækka á ný og fór hæst í um 385 dollara um mánaðamótin júní og júlí. f
september var verðið á bilinu 300—330 dollarar og eftir miðjan október var skráð
verð 325 dollarar1). Þegar litið er á verðþróunina á árinu verður að telja óvíst, að
verðið haldist óbreytt út árið, en að óbreyttu verði lætur nærri, að meðalinnflutn-
ingsverð, eins og það kemur fram í verzlunarskýrslum, verði um 260 dollarar
hvert tonn eða 111 % hærra en á síðasta ári. Síðari hluta októbermánaðar var
verðið 25% hærra en þetta áætlaða meðalverð ársins. Verð á benzíni hefur
hækkað álíka mikið og gasolíuverð, en hins vegar hefur svartolíuverð hækkað
mun minna. Að meðaltali gæti verð á innfluttum olíuvörum í erlendri mynt
rúmlega tvöfaldazt á þessu ári og undir lok ársins gæti verðið verið 20% yfir
ársmeðaltahnu.
Þróun útflutningsverðs hefur verið hagstæð á árinu og verð nær allra mikilvæg-
ustu útflutningsafurða farið hækkandi. Veigamesta undantekningin er verð á
loðnumjöli, en það var lægra á fyrri hluta ársins en í fyrra, en síðustu mánuðina
hefur mjölverð á heimsmarkaði þó heldur farið hækkandi. Líkur eru á, að út-
flutningsverð hækki nokkuð á síðustu mánuðum ársins, og gæti ársmeðaltalið
orðið um 9% hærra í erlendri mynt en í fyrra. Er það talsvert meiri hækkun en á
árinu 1978. Verð á innflutningi öðrum en olíu hefur einnig hækkað meira í ár en í
fyrra og útht fyrir, að það hækki líkt og útflutningsverð eða um 9% í erlendri
mynt, en að olíu meðtahnni hækkar innflutningsverð um 22%. Ef ekki hefði
komið til gengislækkun Bandaríkjadollars á síðari hluta ársins 1978 og síðan aftur
eftir mitt ár í ár, má gera ráð fyrir, að verðhækkun útflutnings hefði orðið nokkru
meiri og verðhækkun innflutnings minni en nú er spáð. Gæti munurinn verið um
2%, þ. e. viðskiptakjararýmunin hefði þá að öðm óbreyttu orðið um 9%.
Eins og áður sagði em horfur á, að viðskiptakjör verði lakari undir lok ársins en
þau verða til jafnaðar á árinu, miðað við núverandi olíuverð. Spár ýmissa al-
þjóðastofnana benda til, að verð á mikilvægum útflutningsafurðum íslendinga
gæti hækkað nokkuð á næsta ári, en í því efni em raunar ýmsar blikur á lofti. í ljósi
verðlagsþróunar í heiminum er hins vegar næsta ólíklegt, að hækkun útflutn-
ingsverðs geri betur en að vega upp áframhaldandi verðhækkun á innfluttum
vömm öðmm en olíu. Á næsta ári munu viðskiptakjörin því enn að miklu leyti
ráðast af olíuverði. Minnkandi hagvöxtur í heiminum dregur úr olíunotkun, en
‘) Fyrstu viku nóvembermánaðar hefur olíuverð á ný farið hækkandi.