Úr þjóðarbúskapnum : framvindan ... og horfur .. - 08.11.1979, Side 15
15
ár er útlit fyrir um 1% aukningu þjóðarútgjalda en nær 2%, ef birgðabreytingar
eru undanskildar.
Innflutningur.
Fyrstu þrjá fjórðunga þessa árs var vöruinnflutningur um 13% meiri en á sama
tíma í fyrra, ef reiknað er á sama gengi bæði árin. Að teknu tilliti til verðbreytinga í
erlendri mynt er um lítilsháttar samdrátt að ræða. Eins og áður kom fram, hefur
innflutningur neyzluvöru, ekki sízt bílainnflutningur, dregizt saman á árinu. Sama
máli gegnir um innflutning fjárfestingarvöru, en innflutningur rekstrarvöru til
atvinnuveganna er nokkru meiri í ár en í fyrra. Gildir það meðal annars um
olíuinnflutning, sem var um 7% meiri að magni fyrstu níu mánuði ársins en á sama
tíma í fyrra, einkum vegna aukins innflutnings á svartolíu og þotueldsneyti.
Líklegt er þó, að á árinu öllu verði olíuinnflutningur svipaður að magni og í fyrra.
Reiknað í erlendri mynt hefur olíuinnflutningur aukizt um 93% á árinu saman-
borið við 5% aukningu annars vöruinnflutnings.
Horfur eru á, að almennur vöruinnflutningur1) dragist saman um 4—5% að
magni í ár samanborið við 7% aukningu 1978 og 22% aukningu 1977. Innflutn-
ingur skipa og flugvéla verður heldur meiri í ár en í fyrra en innflutningur til
stórframkvæmda minni. Rekstrarvöruinnflutningur álverksmiðjunnar gæti orðið
svipaður og á síðasta ári, en nokkur innflutningur verður vegna framkvæmda. í
heild gæti vöruinnflutningur orðið 3 % minni að raungildi en á síðasta ári saman-
borið við 1% aukningu 1978 og 22% aukningu 1977.
Eins og áður kom fram, er reiknað með, að innflutningsverð olíu hækki um
100—110% í dollurum frá síðasta ári. Til samanburðar má nefna, að árið 1974,
þ. e. í kjölfar olíuverðshækkunar olíuútflutningsríkja um áramótin 1973/74,
hækkaði innflutningsverð á olíu um 150% í dollurum. Frá 1974 til 1978 hækkaði
verðið að meðaltali um 6% á ári, eða svipað og verð á öðrum innflutningi. Verð á
almennum innflutningi öðrum en olíu hækkar að líkindum um 9% í erlendri mynt
á árinu 1979 og verðhækkun almenns vöruinnflutnings að olíu meðtalinni yrði þá
um 22 %. Litlar verðbreytingar voru á rekstrarvörum álverksmið junnar framan af
árinu og sé allur vöruinnflutningur tekinn saman, gæti verðbreytingin orðið
19—20% í erlendri mynt. í krónum er verðbreytingin hins vegar um 60%, þar
sem verð á erlendum gjaldeyri hækkar að meðaltali um 33—34%, en það jafn-
gildir 25% lækkun á gengi krónunnar. Samtals yrði vöruinnflutningur þá um 260
milljarðar króna (f. o. b.). Þar af yrði olíuinnflutningur 50 milljarðar króna eða
19,2% alls vöruinnflutnings. Miðað við núverandi olíuverð og gengi næmi olíu-
innflutningur hins vegar 69 milljörðum króna eða 23—24% alls vöruinnflutnings
á sambærilegu gengi. Árið 1973 var olíuinnflutningur 7V2% af heildarvöruinn-
flutningi, en árið 1974 hækkaði þetta hlutfall í 12,2%. Frá 1975 til 1978 var
hlutfallið á bilinu 12—12^2% og var t. d. 11,9% árið 1978. Sé innflutnings-
verðmæti olíu reiknað í dollurum verður aukningin nú miklu meiri en árið 1974.
1) Vöruinnflutningur án innflutnings skipa og flugvéla, til Landsvirkjunar, álverksmiðju og járnblendiverksmiðju.