Úr þjóðarbúskapnum : framvindan ... og horfur .. - 08.11.1979, Side 19
19
rúmlega 3%. Þetta er mikil breyting frá síðustu þremur árum, er þjóðartekjur á
mann jukust að jafnaði um 5'/2% á ári, enda bötnuðu viðskiptakjör mikið árin
1976 og 1977 en héldust síðan óbreytt árið 1978. Eftir þennan afturkipp í ár eru
þjóðartekjur á mann svipaðar og á árinu 1977. Taflan hér á eftir sýnir þróun
þessara stærða allt frá árinu 1970, og til samanburðar er sýnd þróun kaupmáttar
ráðstöfunartekna á mann.
1970 1971 1972 1973 1974 1975 1976 1977 1978 Spá 1979
ÞJódarframleidsla á mann: Vísitölur 100 112 116 123 126 122 124 130 135 137
Breyting frá fyrra ári, % 7,7 11,7 4,1 6,1 2,1 -5-3,3 1,6 5,2 3,4 1,6
Viðskiptakjör: Vísitölur 100 112 111 128 116 99 111 120 120 106
Breyting frá fyrra ári, % .. 14,0 12,0 -5-0,9 15,3 -5-9,8 -5-14,6 12,7 8,4 0,0 -5-11,0
Þjóðartekjur á mann: Vísitölur 100 115 119 131 131 121 128 138 143 140
Breyting frá fyrra ári, % 11,9 14,7 3,8 10,0 h-0,3 -5-7,0 5,0 8,1 3,4 -5-1,9
Kaupmáttur ráðstöfunartekna á Vísitölur mann: 100 114 127 137 146 130 133 149 161 161
Breyting frá fyrra ári, % 13,8 14,4 10,8 7,9 7,1 -5-11,2 2,0 12,5 8,0 0,0
Niðurstöður þeirrar spár og dæma um þjóðarútgjöld, útflutning og innflutning,
sem rakin voru hér að framan, eru þær, að þjóðarframleiðslan í heild vaxi aðeins
um 1 % á næsta ári og þjóðartekjur verði óbreyttar. Þetta felur í sér, að þjóð-
artekjur á mann dragist saman á árinu 1980. Ástæður þessa hæga hagvaxtar eru
fyrst og fremst þær, að aðeins er unnt að reikna með lítilsháttar aukningu útflutn-
ingsframleiðslu á næsta ári, ef draga þarf úr þorskafla og loðnuafla frá því, sem var
í ár. Við þetta bætist síðan líkleg versnun viðskiptakjara að óbreyttu olíuverði.
Aukningu þjóðarútgjalda umfram það, sem hér er gert ráð fyrir, myndi fylgja
frekari aukning innflutnings og þar með halli á utanríkisviðskiptum og þá einnig
hætta á vaxandi verðbólgu.