Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.03.2018, Qupperneq 35

Læknablaðið - 01.03.2018, Qupperneq 35
LÆKNAblaðið 2018/104 151 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R á dag. Og margir borða miklu meira en þetta af lakkrís á hverjum degi. Við höfum fengið nokkur tilfelli inn á gjörgæsludeid Landspítala þar sem fólk er í mjög krítísku ástandi vegna lakkrístengds háþrýstings og breytingum á kalíumgildi í blóði. Kal- íumbúskapur blóðsins er mjög viðkvæmur og glugginn sem mannslíkamanum er eðlilegur er þröngur bæði til hækkunar og lækkunar og veldur hjartsláttartruflunum sem geta verið lífshættulegar. Við höfum séð mörg slík tilfelli þar sem lakkrísát er orsökin fyrir alvarlega lækkuðu kalíum í blóði. Þetta er mjög alvarlegt ástand þar sem ekki er hægt að leiðrétta hjartsláttar- truflanirnar fyrr en búið er að leiðrétta kalíumið. Stundum næst þetta ekki og fólk hefur dáið vegna hjartsláttartruflana og mikils kalíumskorts.“ Segja læknar fólki með háan blóðþrýsting að það megi alls ekki borða lakkrís? „Þeir eiga alla vega að spyrja sjúk- linginn að því hvort hann borði mikinn lakkrís því það getur einfaldlega verið orsökin, og þó meðhöndla þurfi blóð- þrýstinginn tímabundið er aðalatriðið að hætta neyslu lakkrísins.. Blóðþrýstingur- inn getur einfaldlega orðið eðlilegur við það. Ég þekki marga sjúklinga sem hafa verið á mörgum blóðþrýstingslækkandi lyfjum en eftir lakkrísbindindi í þrjá til fjóra mánuði eru þeir lausir við öll lyf og blóðþrýstingurinn orðinn eðlilegur. Það tekur líkamann nefnilega þennan tíma að losa út lakkrísinn. Þetta er góð læknis- fræði. Að greina orsökina og með því að fá sjúklinginn til að breyta neysluvenjum sínum munu einkennin hverfa.“ Helga Ágústa segir að lakkrísneysla fólks minni stundum á reykingar eða áfengisneyslu. „Það er tilhneiging hjá fólki að draga úr magninu þegar maður spyr hversu mikinn lakkrís það borðar. Maður þarf stundum að spyrja oft áður en réttar upplýsingar fást. En ástæðan getur líka verið sú að fólk gerir sér ekki grein fyrir magninu því það veit hreinlega ekki að lakkrís er í ísnum, sælgætinu eða teinu. Þess vegna er full ástæða til að vekja fólk til umhugsunar um þetta. Það gildir um þetta eins og margt annað sem er gott, að það er í lagi í litlu magni og með nokkuð löngu millibili.“ Áhrif lakkrís á líkamann „Lakkrísinn hefur áhrif á tvö ensímkerfi í líkamanum. Hann bælir ensím sem heitir 11beta-HSD (11β-hydroxysteroid dehydrogenasi) og með því hindrar það niðurbrot á virka hormóninu kortisól sem venjulega breytir því í óvirka hormónið kortisón. Með þessu eykst magn kortisóls ekki en helmingunartími þess lengist og þá getur kortisólið sest á saltsteravið- takana líka, en kortisól er sykursteri, en hefur einnig sömu sækni í viðtaka saltster- ahormónsins aldósteróns og þannig virkar lakkrísinn eins og hormónið aldósterón ef magn þess eykst. Saltsteri veldur hækk- uðum blóðþrýstingi og skilur út kalíum og safnar á okkur bjúg. Lakkrísát virkar „Við höfum fengið nokkur tilfelli inn á gjörgæsludeid Landspítala þar sem fólk er í mjög krítísku ástandi vegna háþrýstings og breytinga á kalíumgildi í blóði sem lakkrís hefur hrundið af stað,“ segir Helga Ágústa Sigurjónsdóttir innkirtlalæknir.

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.