Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 01.03.2018, Qupperneq 36

Læknablaðið - 01.03.2018, Qupperneq 36
152 LÆKNAblaðið 2018/104 U M F J Ö L L U N O G G R E I N A R Lyngonia — áhrifarík meðferð án sýklalyfja Lyngonia er notað við vægum endurteknum þvagfærasýkingum hjá konum og verkar m.a. á brunatilfinningu og aukin þvaglát. Lyngonia er fyrsta skráða jurtalyfið á Íslandi og er unnið úr sortulyngslaufi. Fæst án lyfseðils í flestum apótekum. Sjá meira á florealis.is Notkun Fullorðnar og aldraðar konur: 2 töflur 2–4 sinnum á dag. Ekki nota Lyngonia ef þú ert með einhverja truflun á nýrnastarfsemi. Hvorki ætlað þunguðum konum né konum með barn á brjósti, körlum eða börnum og unglingum yngri en 18 ára. Notið ekki lengur en í 1 viku. Ef einkenni eru viðvarandi í meira en 4 daga, eða versna við notkun Lyngonia, skal hafa samband við lækni. Lesið vandlega upplýsingar á umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins. Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á frekari upplýsingum um áhættu og aukaverkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á www.serlyfjaskra.is. þannig einsog við séum að taka hormón. Lakkrís bælir líka renin-útsundrun í nýr- unum sem tekur þrjá til fjóra mánuði að leiðrétta.“ En hvað varð til þess að Helga Ágústa fékk þennan brennandi áhuga á lakkrís? „Minn áhugi á áhrifum lakkrís var ung stúlka sem lagðist inn og var orðin svo veik af kalíumskorti að hún gat ekki geng- ið óstudd. Hún reyndist hafa lakkrísorsak- aðan háþrýsting með alvarlegri lækkun á blóðgildi kalíums sem leiddi meðal annars til vöðvaslappleikans. Þegar við svo feng- um tvö önnur tilfelli stuttu síðar skrifuð- um við um þessi tilfelli í Læknablaðið 1993; 79; 87-91. Þetta varð til þess að við spurð- um okkur hvað þyrfti mikinn lakkrís til að þetta ástand skapaðist. Gunnar Sigurðsson yfirlæknir var driffjöðurin á bak við þessa fyrstu rannsókn og við fengum starfsfólk spítalans til að taka þátt í þessu með 100 gramma stúdíu og niðurstöðurnar voru ótrúlega skýrar. Við ákváðum þá að gera 50 gramma stúdíu og hún skilaði líka mjög skýrum niðurstöðum. Ég fór síðan í fram- haldsnám til Svíþjóðar og ákvað að halda áfram með þessar rannsóknir og nú með stærri hóp en áfram með 50 grömmin. Þá fæ ég helmingi lægri tölur og við nánari athugun kemur í ljós að lakkrís sænska framleiðandans innihélt helmingi minna magn lakkríssýru en íslenski lakkrísinn. Sælgætisframleiðendur hafa alltaf verið mjög samvinnufúsir og það kom í ljós að íslenski framleiðandinn keypti sinn lakk- rís frá öðrum framleiðenda en sá sænski þegar við gerðum fyrstu rannsóknirnar, en þeir íslensku byrjuðu reyndar að skipta við þann sama síðar, svo magn lakkríssýru hefur verið það sama í íslenskum lakkrís og erlendum um árabil. Þarna var ég engu að síður komin með þrjá mismunandi skammta og gat sýnt fram á að hækkun blóðþrýstings var algjörlega háð magninu. Við sýndum líka fram á að áhrif lakkrís á konur eru önnur en á karlmenn og það styður þá skoðun mína að konur eigi ekki endilega að fá sömu blóðþrýstingslyfja- meðferð og karlar. Sérstaklega þarf að rannsaka betur hvort konur á frjósemis- keiði eigi að vera meðhöndlaðar öðruvísi við háum blóðþrýstingi en karlar þar sem hormónahringur þeirra er allt annar. Allt varð þetta til þess að ég skrifaði doktors- ritgerðina mína um hömlur á 11βHSD og áhrif þess á blóðþrýsting og ýmis horm- ón.“ Er lakkrís kannski ávanabindandi? „Það hefur aldrei verið rannsakað en þeim sem þykir lakkrís góður segja gjarn- an að þeir séu háðir honum og magnið sem sumir láta ofan í sig gæti bent til þess.“

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.